Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Mygla fannst í húsnæði Kristnesspítala

Stjórn­völd hvött til að bjarga end­ur­hæf­ing­unni

Mygla fannst í húsnæði Kristnesspítala

Mygla fannst fyrr á árinu í hús­næði Krist­nesspít­ala í Eyja­fjarð­ar­sveit. Ákveðið hefur verið að færa alla starf­semi Sjúkra­húss­ins á Akureyri (SAk) af staðnum og til Akur­eyrar um óákveð­inn tíma, eins og akur­eyri.net greindi frá á dög­unum. SAk hefur verið þar með end­ur­hæf­ing­ar­þjón­ustu en eftir ítar­lega skoðun og grein­ingu á hús­næð­inu fékkst sú nið­ur­staða að það væri óhæft fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu.

Starfs­hópur sem heil­brigð­is­ráðu­neytið skip­aði til að vinna að fram­tíð­ar­sýn Krist­nesspít­ala skoð­aði aðstæður á staðnum og er óráðið hver næstu skref verða miðað við svar ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn akur­eyri.net: „Engar fram­kvæmdir standa yfir á Krist­nesspít­ala um þessar mundir. Veru­legra úrbóta er þörf til að koma hús­næð­inu í full­nægj­andi og heil­næmt ástand og er ekki talið tíma­bært að ráð­ast í slíkar fram­kvæmdir fyrr en nið­ur­stöður liggja fyrir um fram­tíð­ar­nýt­ingu hús­næð­is­ins og fram­tíð­ar­skipan starf­sem­innar.“

Unnið er að því að koma dag- og göngu­deild­ar­hluta þjón­ust­unnar í Krist­nesi fyrir í nýju 815 fer­metra leigu­hús­næði á Akureyri. Starf­semin þar muni hefj­ast í sept­em­ber en það á að vera hægt að veita allt að tutt­ugu skjól­stæð­ingum þjón­ustu á dag- og göngu­deild. Auk þess verði sex leg­u­rými fyrir end­ur­hæf­ing­ar­sjúk­linga tekin í notkun á skurð­lækn­inga­deild SAk í byrjun ágúst.

Krist­nesspít­ali, eða Heilsu­hæli Norð­ur­lands að Krist­nesi eins og hann var fyrst kall­aður, var tek­inn í notkun 1927. Hann reynd­ist mik­il­væg brjóst­vörn í bar­átt­unni við hinn hvíta dauða, berkla­veik­ina.

Í mars 1985 sam­þykkti stjórn­ar­nefnd Rík­is­spít­al­anna nýja stefnu­mörkun og að á neðri hæð spít­al­ans yrði rekin end­ur­hæf­ing­ar­deild fyrir lyf­læknis-, bækl­unar- og gigt­ar­sjúk­linga. Þá var lögð áhersla á hvíld­ar­inn­lagnir í stað hjúkr­un­ar­sjúk­linga til dags­ins í dag.

Á Krist­nesspít­ala hefur verið starf­rækt sjö daga deild og fimm daga ein­ing á þriðju og fjórðu hæð auk dag­spít­ala­þjón­ustu innan öldr­unar- og end­ur­hæf­inga­lækn­inga. Þjón­ustan er þver­fag­leg og lögð er áhersla á að meta heilsu­far og færni sjúk­linga, sjálf­bjarg­ar­getu og þörf fyrir hjálp­ar­tæki. Farið er í heim­ils­at­hug­anir og hugað að þörf fyrir þjón­ustu eftir útskrift. Áhersla er á heil­brigð­is­hvatn­ingu, mark­miðs­setn­ingu, með­ferð, fræðslu og leið­sögn til sjúk­linga og aðstand­enda. Haldnir eru fjöl­skyldufundir og mark­visst unnið með þjón­ustu­að­ilum utan SAk. Kjarni starfs­ins er þver­fag­leg teym­is­vinna sem byggir á sam­vinnu sjúk­lings, fjöl­skyldu og með­ferð­ar­að­ila. Á Krist­nesspít­ala fer fram ein­stak­ling­smiðuð þjálfun í tækja­sal, starf­ræktir eru göngu- og vatns­leik­fimi­hópar, hjóla­hópar auk létt­leik­fimi og háls- og herða­leik­fimi. Boðið er upp á hóp­með­ferð fyrir fólk með lang­vinna verki, ofþyngd, lungna­sjúk­dóma og í kjöl­far krabba­meins­með­ferða þar sem áhersla er á heild­stæða nálgun og fræðslu. Þver­fag­legt öku­mat­steymi er starf­rækt á Krist­nesspít­ala auk göngu­deildar end­ur­hæf­inga­lækn­inga.

Hælið - setur um sögu berklanna

María Páls­dóttir, sem kom á fót og rekur Hælið – setur um sögu berklanna á Krist­nesi, setti af stað und­ir­skrift­ar­söfnun í maí þar sem stjórn­völd eru hvött til að bjarga end­ur­hæf­ing­unni á Krist­nesi, eins og það er orðað. Hægt verður að skrifa undir list­ann á vefnum út þennan mánuð.

Und­ir­skrifta­list­inn nefn­ist Björgum end­ur­hæf­ing­unni á Krist­nesi og er text­inn svohljóð­andi:

„Við skorum á stjórn­völd að bregð­ast við án tafar og tryggja fjár­magn til nauð­syn­legs við­halds og upp­bygg­ingar á Krist­nesi svo ekki þurfi að draga úr eða leggja niður starf­sem­ina þar sem hún er sam­fé­lag­inu nauð­syn­leg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil