Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Dynomatic og Bjössi Basti sameina krafta sína í nýju lagi

Sam­starfið byggir á ára­tuga vin­áttu og fjöl­breyttri reynslu þeirra úr íslensku og alþjóð­legu tón­list­ar­lífi.

Dynomatic og Bjössi Basti sameina krafta sína í nýju lagi
Æsku­vin­irnir Glænýtt lag hefur litið dags­ins ljós. Mynd: Aðsend

Tón­list­ar­verk­efnið Dynomatic hefur sent frá sér nýju smá­skíf­una Mission Control, ásamt tón­list­ar­mynd­bandi. Lagið markar fyrsta sam­starf Dynomatic og Sil­verpink, en þar sam­eina krafta sína æsku­vin­irnir Magnús Jónsson og Björn Helgi Bald­vins­son, betur þekktur sem Bjössi Basti.

Þótt þeir hafi þekkst frá ung­lings­árum er þetta í fyrsta sinn sem þeir vinna saman að tón­list. Samkvæmt til­kynn­ingu byggir sam­starfið á ára­tuga vin­áttu og fjöl­breyttri reynslu þeirra úr íslensku og alþjóð­legu tón­list­ar­lífi.

Dynomatic vakti fyrst athygli árið 2021 með lag­inu Miracle, sem Daníel Ágúst söng, og fylgdi því eftir ári síðar með smá­skíf­unni Superficial. Með Mission Control heldur verk­efnið áfram að þróa sinn hljóð­heim þar sem nútíma­legt synth-pop mætir áhrifum frá klass­ísku new wave og rokki.

Magnús Jónsson hefur komið víða við á ferli sínum og starfað meðal ann­ars með hljóm­sveit­unum Silf­ur­tónum, Dá, Mickey Dean and the Wonderfulz, Blake, BB & Blake og GusGus.

Bjössi Basti er hins vegar þekkt­astur sem söngv­ari pönk­hljóm­sveit­ar­innar Bleiku Bastanna og stofn­andi útvarps­stöðv­ar­innar X-977. Hann flutti til Los Angeles árið 1994 þar sem hann starf­aði bæði við tón­list og kvik­mynda­gerð og var meðal ann­ars í hljóm­sveit­unum Lux, Skin, Cybjorn og Bjorn Means Bear.

Samkvæmt til­kynn­ingu sam­einar Mission Control melódíska nálgun, kraft­mikla takta og áhrif úr raf­poppi, rokki og kvik­mynda­tón­list, um leið og lagið sækir inn­blástur til synth-tón­listar níunda ára­tug­ar­ins.

Smá­skífan er nú aðgengi­leg á öllum helstu streym­isveitum og tón­list­ar­mynd­bandið hefur jafn­framt verið gefið út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar