Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Tveir íslenskir golfvellir eru á meðal þeirra bestu í heimi

Dóm­ar­arnir spara ekki stóru orðin

Tveir íslenskir golfvellir eru á meðal þeirra bestu í heimi
Braut­ar­holt og Eyjarnar á lista yfir bestu velli í heimi Mynd: Brautarholt golf

Samkvæmt nýjum heims­lista Today’s Golfer, mest lesna golf­tíma­rits Bret­lands. Golf­klúbbur Braut­ar­holts og Golf­klúbbur Vest­manna­eyja skipa sér nú sess á hinu virta Top 100 X-Factor World árið 2026, þar sem þeim er jafnað til heims­þekktra stór­valla á borð við Pebble Beach og St Andrews.

Brautarholt og Vestmannaeyjar á topp 100 heimslista

Íslenskir golf­vellir halda áfram að vekja heims­at­hygli og tryggja sér sess í fremstu röð á alþjóða­vett­vangi. Í nýjasta heims­lista breska golf­tíma­rits­ins Today’s Golfer, Top 100 X-Factor World 2026, hafna tveir íslenskir vellir ofar­lega á lista yfir þá velli sem bjóða upp á ein­stæð­ustu og dramat­ísk­ustu upp­lifun­ina í öllum golf­heim­inum.

Golf­klúbbur Braut­ar­holts fer alla leið í 16. sæti list­ans og Golf­klúbbur Vest­manna­eyja fylgir fast á hæla hans í 23. sæti.

Einstök náttúra og „X-Factor“

Listi Today’s Golfer byggir á mati sér­stakra álits­gjafa sem ferð­ast um allan heim í leit að völlum sem hafa hinn svo­kall­aða „X-Factor“ – velli sem skilja eftir sig ógleym­an­lega upp­lifun hjá kylfingum. Að vera val­inn á þennan lista setur íslensku vell­ina tvo á stall með goð­sagna­kenndum völlum á borð við St Andrews í Skotlandi, Bandon Dunes og Pebble Beach í Banda­ríkj­unum.

Dómendur tíma­rits­ins spör­uðu ekki stóru orðin um íslensku vell­ina. Um Golf­klúbb Vest­manna­eyja sagði meðal ann­ars að ekk­ert annað lands­lag á list­anum stæð­ist því sam­an­burð, þar sem völl­ur­inn liggur í gíg við sjáv­ar­bakk­ann og myndar risa­stórt hring­leika­hús frá nátt­úr­unnar hendi.

Brautarholt gæti farið enn hærra

Golf­klúbbi Braut­ar­holts, sem á síð­asta ári komst einnig á almennan lista yfir bestu golf­velli Evrópu, er spáð enn frek­ari vel­gengni á kom­andi árum. Völl­ur­inn stækk­aði úr 12 holum í fullar 18 holur sum­arið 2025.

Í umsögn Today’s Golfer kemur fram að meiri­hluti dóm­enda hafi byggt mat sitt á eldri 12 holu hönn­un­inni. Tíma­ritið bendir á að með til­komu nýju hol­anna, þar sem spilað er við hrika­legt hraun og sjáv­ar­bakk­ann, sé mjög lík­legt að völl­ur­inn eigi eftir að klifra enn hærra þegar fleiri dóm­endur fá tæki­færi til að spila völl­inn í heild sinni.

Ísland sem eftirsóttur áfangastaður

Þessi nýja við­ur­kenn­ing und­ir­strikar þá öru þróun sem hefur orðið und­an­farin ár, þar sem Ísland hefur rutt sér til rúms sem einn eft­ir­sótt­asti áfanga­staður heims fyrir erlenda kylfinga. Fyrir íslenska golf­sam­fé­lagið er þetta gríð­ar­leg stað­fest­ing á þeirri miklu vinnu og gæðum sem ein­kenna upp­bygg­ingu golf­valla hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Straumurinn bar bílinn í gegnum ræsi og þurfti að draga hann úr ánni áður en hægt var að ná öðrum ferðamanninum út.
Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Heimur

Ísra­elskur sjón­varps­maður lát­inn víkja eftir rasísk ummæli

Sport

Sport

Mark­vörð­ur­inn í áfalli eftir dauðs­fallið

„Þetta eru erfiðustu dagar lífs míns“
Sport

Ætlar að birta eina brjósta­mynd á dag þar til þjálf­ari Man Utd verður rek­inn

Sport

Kristian Nökkvi kemur inn í lands­liðs­hóp­inn

Sport

Fram­herji CD Tenerife lést eftir árekstur við mark­mann

Sport

Lakers-goð­sögn mætir á OnlyFans

Myndband
Sport

Lög­reglan kölluð til vegna þriggja ára fót­bolta­snill­ings