Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Gullfallegt hús með afþreyingaraðstöðu til sölu

Húsið var reist árið 2009

Brekkuás 25
Brekkuás 25

Glæsilegt og rúmgott einbýlishús við Brekkuás 25 í Hafnar­firði hefur verið sett á sölu. Húsið stendur á einum af eftir­sóttari útsýnis­stöðum Áslands og er raunstærð þess 341 fermetri. Ásett verð er 269 milljónir króna.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er eignin 310,3 fermetrar. Þar af er efri hæð 115 fermetrar, neðri hæð 139,5 fermetrar og bílskúr 55,8 fermetrar. Húsið var byggt árið 2009 og er sagt vera í mjög góðu ásig­komulagi.

Mikið hefur verið lagt í frágang eignarinnar. Gólfhiti er í öllu húsinu auk þess sem hiti er í bílaplani. Granít er á innréttingum og glugga­kistum víðast hvar í húsinu en í eldhúsi eru glugga­kistur úr gleri. Þá er innfelld lýsing í loftum, aukin lofthæð og hurðir hærri en almennt gerist.

Sérstaka athygli vekur bílskúrinn, sem hefur verið breytt í fullbúna líkams­ræktar-, afþreyingar- og tómstunda­aðstöðu. Aðstaðan og búnaður hennar fylgja með við kaup á eigninni.

Þar má meðal annars finna hlaupa­bretti, róðravél og annan líkams­ræktar­búnað. Þá eru í rýminu þrír sérhæfðir kæli­skápar, sérstak­lega ætlaðir fyrir rauðvín, hvítvín og bjór, auk stórs amerísks ísskáps.

Innan­gengt er í bílskúrinn úr forstofu hússins. Epoxy er á gólfi hans og þar er hiti, rafmagn og vatn auk rafdrifins hurða­opnara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni