Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Svona fer sagan með menn sem svíkja sín prinsipp, kæri Stefán“

Óhætt að úrslitin sitji mis­vel í fólki

„Svona fer sagan með menn sem svíkja sín prinsipp, kæri Stefán“
Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur Er einnig vara­borg­ar­full­trúi. Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Óhætt er að segja að líf­legar umræður hafi skap­ast á Facebook-síðu Stefáns Páls­sonar, vara­borg­ar­full­trúa Vinstr­is­ins, eftir að hann gerði upp þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una sem fram fór á laug­ar­dag.

Stefán, sem studdi nei-hlið­ina, segir að þrátt fyrir nið­ur­stöðu kosn­ing­anna hafi gleðin látið á sér standa.

„Svo ég segi það strax, þá hélt ég að ég yrði glað­ari þegar sig­ur­inn yrði í höfn. En ég varð ekk­ert sér­stak­lega kátur. Í raun upp­lifði ég ekki annað en hálf­gerða tóm­leika­til­finn­ingu,“ skrifar Stefán.

Hann seg­ist hafa verið feg­inn nið­ur­stöð­unni en jafn­framt leiður yfir því að efnt hafi verið til kosn­ing­anna, sem hann lýsir sem „ónauð­syn­legum óvinafagn­aði“. Kosn­inga­bar­áttan hafi neytt and­stæð­inga þess að halda saman þrátt fyrir mik­inn póli­tískan ágrein­ing þeirra á milli.

Stefán gagn­rýnir jafn­framt rík­is­stjórn­ina og ráð­herra hennar harð­lega fyrir fram­göngu þeirra í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Hann segir ráð­herra hafa tekið virkan þátt í bar­átt­unni fyrir já-hlið­ina og sakar þá um að hafa „gaslýst“ fólk með því að gefa í skyn að ólýð­ræð­is­legt væri að kjósa á annan veg.

Margir láta Stefán heyra það

Fjöl­margir tóku til máls í athuga­semdum við færsl­una og voru skoð­anir skiptar.

Stærð­fræð­ing­ur­inn Einar Stein­gríms­son sagði nið­ur­stöð­una meðal ann­ars sýna hversu mikil sam­staða væri að hans mati milli for­ystu Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, rektor Háskól­ans á Bifröst, túlk­aði tóm­leika­til­finn­ingu Stefáns með öðrum hætti.

„Þú ert sem sagt með óbragð í munni og þess vegna orð­inn pirr­aður út í kosn­ing­una sjálfa. Það þýðir að innst inni er þér ljóst að NEI-ið var röng ákvörðun út frá fram­tíðar hags­munum þjóð­ar­innar,“ skrif­aði Ólína.

Karen Kjart­ans­dóttir gerði einnig athuga­semd við þátt­töku Stefáns í kosn­inga­bar­átt­unni og vís­aði með kald­hæðnum hætti til sam­komu þar sem lagið Öxar við ána var sungið.

Snærós Sindra­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Evr­ópu­hreyf­ing­ar­innar, var einnig hvöss í garð Stefáns.

„Svona fer sagan með menn sem svíkja sín prinsipp, kæri Stefán. Þessi tóm­leika­til­finn­ing er sekt­ar­kennd,“ skrif­aði Snærós.

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður, velti sömu­leiðis fyrir sér hvort fleiri kjós­endur sem greiddu atkvæði gegn áfram­hald­andi aðild­ar­við­ræðum upp­lifðu svip­aða til­finn­ingu.

„Mig grunar að mörgum sem sögðu nei sé tóm­legt inn­an­brjósts eftir nið­ur­stöð­una. Það verður áhuga­vert að sjá könn­un­ina um það hversu mörg sjái eftir atkvæði sínu,“ skrif­aði Arndís Anna.

Stefán sagði sjálfur að hann hefði að mestu sloppið við per­sónu­legt skít­kast í kosn­inga­bar­átt­unni. Hann sagði hins vegar konur og ung­menni sem hann þekkti hafa orðið fyrir sví­virð­ingum og linnu­lausu skít­kasti, sem hann sagði „óskap­lega vesælt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ