Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Skipulögð glæpastarfsemi er ógn við öryggi okkar allra“

Hertar aðgerðir boð­aðar gegn skipu­lagðri brota­starf­semi

„Skipulögð glæpastarfsemi er ógn við öryggi okkar allra“
Lög­reglu­borði á vett­vangi Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Stjórnarráðið/Hari

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda frum­varp sem felur í sér umfangs­miklar breyt­ingar á lög­gjöf með það að mark­miði að efla bar­átt­una gegn skipu­lagðri brota­starf­semi hér á landi.

Í frum­varp­inu eru lagðar til tólf breyt­ingar á refsi­lög­gjöf, rétt­ar­fars­reglum og lög­reglu­lögum. Meðal ann­ars er gert ráð fyrir þyngri refs­ingum, auknum rann­sókn­ar­heim­ildum lög­reglu og rýmri heim­ildum stjórn­valda til að gera ólög­mætan ávinn­ing af brota­starf­semi upp­tækan.

Hámarks­refs­ing fyrir þátt­töku í skipu­lagðri brota­starf­semi yrði sam­kvæmt frum­varp­inu hækkuð úr fjög­urra ára fang­elsi í átta ár. Þá er lagt til að hug­takið skipu­lögð brota­starf­semi verði skil­greint með skýr­ari hætti og gild­is­svið þess víkkað.

Jafn­framt er gert ráð fyrir þyngri refs­ingum þegar börn eða ung­menni eru hag­nýtt við fram­kvæmd alvar­legra brota. Heimild til gæslu­varð­halds í flóknum og umfangs­miklum saka­málum yrði einnig lengd úr tólf vikum í allt að sex mán­uði.

Þá yrði lög­reglu veitt heim­ild til að grípa til til­tek­inna rann­sókn­ar­að­gerða áður en dóms­úr­skurður liggur fyrir. Einnig er lagt til að hægt verði að gera verð­mæti upp­tæk án sak­fell­ingar fyrir til­tekið brot ef ætla má að þau séu ávinn­ingur af refsi­verðri hátt­semi.

Samkvæmt skýrslu grein­ing­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra frá því í nóv­em­ber eru um tutt­ugu skipu­lagðir brota­hópar starf­andi hér á landi. Umfang starf­sem­innar hefur auk­ist und­an­farin ár og átök milli hópa, ofbeld­is­brot og vopna­laga­brot orðið meira áber­andi.

Frum­varpið verður lagt fram á kom­andi þing­vetri og er hluti af aðgerðum stjórn­valda gegn skipu­lagðri brota­starf­semi.

„Skipu­lögð glæp­a­starf­semi er ógn við öryggi okkar allra og með þessu frum­varpi stígum við mark­viss skref til að taka á þessum hópum af meiri þunga. Við herðum refs­ingar, styrkjum heim­ildir lög­reglu og gerum yfir­völdum kleift að ráð­ast að hagn­að­inum sem drífur starf­sem­ina áfram. Þannig veikjum við fjár­hags­legan grund­völl glæpa­hópanna og getu þeirra til að vaxa og festa sig í sessi í íslensku sam­fé­lagi,“ segir Þorbjörg S. Gunn­laugs­dóttir dóms­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ