Vaxtarræktarkappinn og líkamsræktarþjálfarinn Einar Méndez er látinn, 48 ára að aldri. Hann lést 4. september eftir að hafa hnigið niður að lokinni æfingu í líkamsræktarstöð sinni í Mexíkóborg.
Eiginkona hans, Yan Méndez, greindi frá andlátinu á samfélagsmiðlum og sagði að Einar hefði látist af völdum skyndilegs hjartaáfalls.
„Hvíldu í friði, ástin í lífi mínu. Fljúgðu eins hátt og þú getur og ég lofa að við munum hittast aftur,“ skrifaði Yan í færslu á Instagram.
Hjónin höfðu nýlega fagnað 30 ára sambandsafmæli sínu og stóð til að þau færu fljótlega í sína fyrstu ferð saman til New York. Þau eignuðust þrjár dætur, Fanny, Fridu og Maríu Reginu.
Einar var þekktur innan líkamsræktarheimsins og hafði jafnframt byggt upp töluverðan fylgjendahóp á samfélagsmiðlum.
Auk eigin ferils í vaxtarrækt starfaði hann sem þjálfari og hafði meðal annars þjálfað þekkta einstaklinga í Mexíkó. Þar á meðal var sjónvarpskonan Martha Debayle, sem hafði unnið með honum í níu ár.
Martha minntist Einars eftir andlátið og sagði fólk enn vera í áfalli vegna skyndilegs fráfalls hans. Hann hefði látist í líkamsræktarstöðinni.
Hún sagði jafnframt að ekki myndi líða sá dagur sem hún æfði án þess að hugsa til Einars.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir