Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu

Óvíst um fram­haldið

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu
Christa Pike Pike fær að lifa lengur Mynd: Fangelsismálastofnun Tennessee

Aftöku Christu Pike, sem hefði orðið fyrsta aftaka konu í Tennessee í um 200 ár, hefur verið frestað eftir úrskurð alrík­is­á­frýj­un­ar­dóm­stóls aðeins um klukku­stund áður en hún átti að fara fram.

Áfrýj­un­ar­dóm­stóll sjötta umdæmis Banda­ríkj­anna sam­þykkti á síð­ustu stundu beiðni um að fresta aftök­unni. Pike er eina konan sem situr á dauða­deild í Tennessee. Dóm­ar­arnir vilja meðal ann­ars kanna hvort ásak­anir hennar um kyn­ferð­is­legt ofbeldi og nauðg­anir í æsku hafi verið teknar nægi­lega vel til greina þegar hún var dæmd til dauða.

„Dóm­stóll­inn hefur frestað aftök­unni í ljósi alvar­legra áhyggju­efna vegna fyr­ir­hug­aðrar aftöku Christu,“ sagði lög­maður hennar.

Ákvörð­unin gildir þar til dóm­stóll­inn gefur aðra fyr­ir­skipun.

Ekki lá strax fyrir hvort rík­is­sak­sókn­ari Tennessee hygð­ist áfrýja ákvörð­un­inni eða hversu lengi aftök­unni yrði frestað. Fjöl­miðlar leit­uðu eftir við­brögðum frá emb­ætti rík­is­sak­sókn­ar­ans.

Vitni sem áttu að fylgj­ast með aftök­unni voru þegar komin saman í River­bend Maximum Security Institution-fang­els­inu í Nas­hville þegar úrskurð­ur­inn barst um klukkan níu að morgni að stað­ar­tíma. Aftakan átti að fara fram klukkan tíu í morgun, 30. sept­em­ber.

Dæmd fyrir morð 18 ára gömul

Pike er nú 50 ára en var dæmd til dauða fyrir morð sem hún framdi árið 1995, þegar hún var 18 ára.

Pike og kær­asti hennar voru fundin sek um að hafa stungið og barið hina 19 ára Colleen Slemmer, sem var sam­nem­andi þeirra í starfs­þjálf­unar­úr­ræði í Knox­ville.

Málið vakti mikla athygli á sínum tíma, meðal ann­ars vegna þess að fimm arma stjarna hafði verið rist á lík Slemmer og aðrir þættir glæps­ins ýttu undir ótta við djöfla­dýrkun á tímum „djöfla­æð­is­ins“ á níunda og tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Þegar nær dró aftöku­deg­inum hófust aftur umræður um dauða­refs­ingar fyrir unga afbrota­menn. Með yfir­vof­andi aftöku Pike hafði málið einnig end­ur­vakið umræðu um dauða­refs­ingar fyrir fólk sem fremur alvar­leg afbrot á unga aldri.

Pike hefur ekki neitað að hafa tekið þátt í morð­inu. Stuðn­ings­menn hennar hafa hins vegar bent á aldur hennar þegar glæp­ur­inn var fram­inn, geð­ræn veik­indi hennar og sögu um alvar­legt kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Þar á meðal hafi henni verið nauðgað frá því hún var smá­barn.

Stephen Ferrell, alrík­is­verj­andi hennar, sagði að dauða­dómur Pike væri óvenju­legur þar sem dauða­dómar yfir öðrum 18 ára ein­stak­lingum í Tennessee hefðu síðar verið felldir úr gildi.

Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna hafn­aði á þriðju­dag beiðni lög­manna Pike um að stöðva aftök­una. Bill Lee, rík­is­stjóri Tennessee, hafði einnig hafnað beiðni hennar um náðun á mánu­dag.

„Ég var 18 ára gömul, and­lega veik mann­eskja. Það tók mig mörg ár að átta mig á alvar­leika þess sem ég hafði gert,“ sagði Pike í yfir­lýs­ingu sem fylgdi náð­un­ar­beiðni hennar. „Enn lengri tíma tók að sætta mig við hversu mörg líf ég hafði haft áhrif á. Ég tók líf barns, systur og vin­konu ein­hvers. Mér verður illt við að hugsa til þess núna að ég hafi getað framið slíkan glæp.“

Móðir fórnarlambsins vildi að aftakan færi fram

Móðir Slemmer vildi að aftakan færi fram og sagði að hún hefði beðið í ára­tugi eftir því að dómnum yfir Pike yrði full­nægt.

„Í hvert skipti sem ég hugsa um þetta sé ég Colleen finna fyrir þessum sárs­auka og reyna að standa upp og hlaupa,“ sagði May Martinez í síma­við­tali við fjöl­miðla.

Martinez sagði að hópur hefði safnað fé svo hún og eig­in­maður hennar gætu ferð­ast frá Flórída til að verða vitni að aftök­unni.

Morðið árið 1995 hafði mikil áhrif á Knox­ville. Sak­sókn­arar sögðu að Pike hefði ótt­ast að Slemmer væri að reyna að taka kærasta hennar frá henni og því lokkað hana út á skóg­lendi 12. jan­úar 1995.

Pike skar Slemmer með hníf og barði hana með stórum steypukubbi. Kærasti Pike, Tad Shipp, hefur við­ur­kennt að hafa skorið svo kallað pentagram, stjörnu­laga tákn sem stundum hefur verið tengt við satan­isma, á lík Slemmer.

Shipp var 17 ára þegar glæp­ur­inn var fram­inn og hlaut lífs­tíð­ar­fang­elsi með mögu­leika á reynslu­lausn. Pike var hins vegar dæmd til dauða.

Mjög sjaldgæft að konur séu teknar af lífi í Bandaríkjunum

Samkvæmt Robin M. Maher, fram­kvæmda­stjóra Death Penalty Information Center, hefur Tennessee ekki tekið konu af lífi í að minnsta kosti 200 ár. Eldri heim­ildir eru þó glopp­óttar og því erfitt að full­yrða nákvæm­lega hvenær síð­asta konan var tekin af lífi í rík­inu.

Aftökur kvenna eru sjald­gæfar í Banda­ríkj­unum. Frá árinu 1976 hafa 18 konur verið teknar af lífi þar í landi, eða um eitt pró­sent allra aftaka, sam­kvæmt Death Penalty Information Center.

Árið 2023 var Amber McLaughlin tekin af lífi í Missouri fyrir morð sem hún framdi árið 2003. Talið er að hún hafi verið fyrsta trans­kona sem tekin var af lífi í Banda­ríkj­unum.

Árið 2021 tók alrík­is­stjórn Banda­ríkj­anna Lisa Montgomery af lífi. Það var í fyrsta sinn í nær sjö ára­tugi sem alrík­is­stjórnin tók konu af lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife