Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

„Að hægt sé að velja lag í snjall­síma stað­festir ekki að nota megi það í kost­aðri aug­lýs­ingu“

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Sverrir Bergmann Mynd: Óskar Þormarsson

Sverrir Bergmann Magn­ús­son, vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, vakti athygli á notkun tón­listar í póli­tískum áróðri á sam­fé­lags­miðlum í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Hann kall­aði eftir því að stjórn­mála­flokkar gættu betur að rétt­indum höf­unda og flytj­enda þegar tón­list er notuð í kynn­ing­ar­efni.

Sverrir vís­aði meðal ann­ars til aðdrag­anda nýaf­stað­innar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og sagði þar hafa mátt heyra tón­list not­aða til að styðja póli­tísk skila­boð. Hann velti því upp hvort til­skil­inna leyfa hefði verið aflað og hvort rætt hefði verið við höf­unda og eig­endur við­kom­andi upp­takna.

Hann benti á að sam­kvæmt leið­bein­ingum STEFs væri gerður grein­ar­munur á rétt­inum að tón­verk­inu sjálfu og rétt­inum að til­tek­inni upp­töku. Leyfi fyrir öðru fæli því ekki sjálf­krafa í sér leyfi fyrir hinu.

„Að hægt sé að velja lag í snjall­síma stað­festir ekki að nota megi það í kost­aðri aug­lýs­ingu,“ sagði Sverrir.

Getur gefið til kynna pólitískan stuðning

Sverrir sagði einnig mik­il­vægt að hafa í huga hvaða skila­boð notkun þekktra laga eða radda flytj­enda gæti sent almenn­ingi. Þegar tón­list væri tengd ákveðnum póli­tískum mál­stað gæti skap­ast sú mynd að lista­mað­ur­inn styddi mál­stað­inn.

„Við eigum að virða það að fólk ráði sjálft hvort og hvernig það teng­ist póli­tískri bar­áttu,“ sagði hann.

Þing­mað­ur­inn sagði tón­list hafa mikið áhrifa­vald enda gæti hún vakið til­finn­ingar, skapað stemn­ingu og aukið kraft póli­tískra skila­boða. Á bak við tón­list­ina lægi hins vegar vinna og sköpun fólks sem ætti rétt á því að rétt­indi þess væru virt og greitt væri fyrir notkun verka þess.

Hann sagði marga sem störf­uðu í skap­andi greinum eiga erfitt með að lifa af vinnu sinni þrátt fyrir mik­il­vægt fram­lag þeirra til íslenskrar tungu og menn­ingar.

Vill sameiginlegar leiðbeiningar

Sverrir hvatti stjórn­mála­flokka og þing­menn til að tryggja að nauð­syn­leg leyfi væru fyrir hendi áður en kynn­ing­ar­efni með tón­list væri birt. Hann lagði jafn­framt til að stjórn­mála­flokk­arnir mót­uðu sam­eig­in­legar leið­bein­ingar með STEF og full­trúum flytj­enda og útgef­enda um leyf­is­öflun og greiðslur.

„Við sem setjum öðrum reglur eigum að ganga á undan með góðu for­dæmi. Virðing fyrir íslenskri menn­ingu verður að sjást í því hvernig við komum fram við fólkið sem skapar hana,“ sagði Sverrir að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum