Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dóttir Diane Keaton minnist móður sinnar ári eftir andlátið

„Á ein­hvern hátt líður mér eins og þetta hafi gerst í gær og fyrir heilli eilífð í senn“

Dóttir Diane Keaton minnist móður sinnar ári eftir andlátið
Duke, Diane og Dexter Ár er liðin frá and­láti Diane Keaton Mynd: EMMA MCINTYRE / GETTY IMAGES VIA AFP

Dexter Keaton White minn­ist móður sinnar, leikkon­unnar Diane Keaton, með til­finn­inga­þrung­inni kveðju á fyrsta ári frá and­láti hennar. Keaton, sem hlaut Ósk­arsverð­laun á ferli sínum, lést 79 ára að aldri.

„Eitt ár án þín, mamma,“ skrif­aði Dexter í Instagram-færslu 10. októ­ber. Með færsl­unni birti hún svart­hvíta mynd af þeim mæðgum frá fyrri tíð.

„Á ein­hvern hátt líður mér eins og þetta hafi gerst í gær og fyrir heilli eilífð í senn,“ skrif­aði Dexter.

Hin þrí­tuga Dexter á enn erfitt með að sætta sig við að móðir hennar sé ekki lengur til staðar.

„Ég er enn að reyna að venj­ast heimi þar sem ég get ekki hringt í þig, fengið faðm­lag frá þér eða farið í ævin­týra­ferðir með þér,“ skrif­aði hún.

Hún bætti við að það væru hvers­dags­legu augna­blikin sem minntu hana hvað mest á hversu mikið hún óskaði þess að móðir hennar væri enn á lífi.

Í lok kveðj­unnar skrif­aði hún: „Ég elska þig og sakna þín. Alltaf.“

Birti mynd frá brúðkaupinu

Samhliða minn­ing­ar­kveðj­unni rifj­aði Dexter upp fal­lega stund með móður sinni og birti mynd af þeim frá brúð­kaupi sínu og Jordan White árið 2021.

Á mynd­inni klæð­ist Dexter hvítum brúð­ar­kjól en Diane er með sinn ein­kenn­andi hatt og sól­gler­augu og klæð­ist buxna­dragt. Þær brosa hvor til ann­arrar og horfast í augu.

Kveðjan birt­ist nákvæm­lega ári eftir að Diane Keaton lést, 79 ára að aldri, eftir að hafa glímt við lungna­bólgu.

Frá and­láti móður sinnar hefur Dexter ítrekað minnst hennar á sam­fé­lags­miðlum. Meðal ann­ars birti hún færslu á fyrsta mæðra­deg­inum eftir and­látið.

„Fyrsti mæðra­dag­ur­inn án þín,“ skrif­aði hún í Instagram-færslu 10. maí. „Ég sakna þín meira en orð fá lýst. Ég sakna radd­ar­innar þinnar, faðm­lag­anna, nær­ver­unnar og alls þess sem gerði heim­ilið að heim­ili.“

Diane var sátt við að vera einstæð móðir

Diane Keaton varð móðir seint á ævinni og tal­aði reglu­lega um ákvörðun sína um að ala börnin upp sem ein­stæð móðir. Diane ætt­leiddi Dexter árið 1996 og son sinn, Duke, árið 2001.

Í við­tali við Ladies’ Home Journal árið 2008 lýsti hún því hvernig hún hefði tekið ákvörð­un­ina.

„Móð­ur­hlut­verkið var ekki ein­hver óvið­ráð­an­leg þrá sem ég gat ekki stað­ist,“ sagði hún. „Þetta var frekar hug­mynd sem ég hafði velt fyrir mér í mjög langan tíma. Svo lét ég slag standa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta