Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Skamm­degið getur gert mörgum erf­ið­ara fyrir

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: SB Arts Media/Shutterstock

Skamm­degið getur gert mörgum erf­ið­ara fyrir að koma sér á fætur á morgn­ana og finna ork­una til að takast á við dag­inn. Styttri dagar og minna dags­ljós yfir haust- og vetr­ar­mán­uð­ina geta haft veru­leg áhrif á bæði líðan og orku­stig fólks.

Shazna Khanom, yfir­maður klínískrar geð­heil­brigð­is­þjón­ustu hjá Bupa, segir myrkrið ekki aðeins hafa áhrif á skap heldur geti það einnig dregið úr orku og valdið því að fólk upp­lifi sig hæg­ara en venju­lega. Slík til­finn­ing sé stundum túlkuð sem leti, sem geti síðan haft nei­kvæð áhrif á líðan.

Khanom bendir á tíu leiðir sem geti hjálpað fólki að takast betur á við dimma vetr­ar­morgna.

1. Vaknaðu á sama tíma á hverjum degi

Mik­il­vægt er að halda sem mestri reglu á svefn­inum og reyna að vakna á svip­uðum tíma alla daga. Að sögn Khanom getur reglu­leg rútína hjálpað lík­am­anum að aðlag­ast og auð­veldað fólki að kom­ast á fætur.

2. Kveiktu strax á ljósunum

Þegar dimmt er úti getur verið freist­andi að hafa lýs­ing­una daufa á morgn­ana. Khanom mælir hins vegar með því að kveikja strax vel á ljós­unum. Birtan geti hjálpað lík­am­anum að vakna og gefið honum skýr skila­boð um að dag­ur­inn sé haf­inn.

3. Komdu líkamanum á hreyfingu

Hvers kyns hreyf­ing að morgni getur hjálpað til við að koma lík­am­anum í gang. Það getur verið ein­föld hreyf­ing heima, heim­sókn í lík­ams­rækt­ar­stöð eða hlaup utandyra. Þeir sem hlaupa í myrkri ættu að klæða sig vel og nota höf­uð­ljós.

4. Breyttu hugarfarinu gagnvart vetrinum

Í stað þess að líta ein­göngu á myrkrið og kuld­ann sem nei­kvæða þætti mælir Khanom með því að fólk reyni að sjá jákvæðu hlið­arnar. Kerta­ljós og nota­legt and­rúms­loft geti til dæmis gert dimma morgna ánægju­legri.

5. Gefðu þér meiri tíma

Það getur reynst vel að vakna nógu snemma til að þurfa ekki að flýta sér. Tebolli, útvarp eða hljóð­bók getur gert morg­un­inn rólegri og hjálpað fólki að und­ir­búa sig fyrir dag­inn.

6. Prófaðu hressandi ilm í sturtunni

Sumar ilmol­íur og ilm­vörur geta haft hressandi áhrif. Khanom bendir á að litlar breyt­ingar á morg­un­rútín­unni geti skipt máli þegar erf­ið­ara er að vakna yfir vetr­ar­mán­uð­ina.

7. Hugsaðu um eitthvað sem þú hlakkar til

Gagnlegt getur verið að beina hug­anum að ein­hverju jákvæðu sem bíður manns yfir dag­inn. Það gæti verið að hitta skemmti­legan sam­starfs­fé­laga, fara út að borða eða gera eitt­hvað ánægju­legt eftir vinnu.

8. Borðaðu morgunmat sem þú hefur gaman af

Góður og hollur morg­un­verður getur hjálpað til við að koma deg­inum vel af stað. Khanom nefnir meðal ann­ars hafra­graut eða heitan morg­un­verð sem fólk getur hlakkað til að borða.

9. Mundu eftir vatninu

Fólk getur átt það til að drekka minna vatn yfir kald­ari mán­uð­ina. Khanom hvetur því fólk til að muna eftir vökv­anum og fá sér vatn fljót­lega eftir að það vaknar.

10. Nýttu dagsbirtuna

Mik­il­vægt er að kom­ast út í nátt­úru­lega birtu þegar tæki­færi gefst. Khanom mælir með að fólk reyni að vera utandyra í að minnsta kosti 20 mín­útur á dag. Jafnvel þegar skýjað er geti dags­birtan haft jákvæð áhrif á líðan.

Ef erf­ið­leikar yfir vetr­ar­mán­uð­ina verða við­var­andi og van­líðan fer að hafa áhrif á vinnu, fjöl­skyldu­líf eða sam­bönd hvetur Khanom fólk til að leita sér fag­legrar aðstoðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur