Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Stjarnan á Sólheimum

Reynir Pétur Stein­unn­ar­son vakti athygli land­ans árið 1985 þegar hann gekk hring­inn í kringum landið meðal ann­ars til að vekja athygli á mál­efnum fatl­aðra og safna fyrir bygg­ingu nýs íþrótta­húss að Sól­heimum. Reynir Pétur fædd­ist heil­brigður en fékk heila­himnu­bólgu nokk­urra mán­aða gam­all og tæp­lega fjög­urra ára flutti hann á Sólheima þar sem hann hefur búið síðan. Hann talar í við­tali við Mannlíf meðal ann­ars um æsk­una, lífið á Sól­heimum, göng­una, fálka­orð­una og dauð­ann.

Stjarnan á Sólheimum
Reynir Pétur Stein­unn­ar­son Þjóð­ar­ger­semin Reynir Pétur í skemmti­legu við­tali Mynd: Golli

Nær öll bíla­stæði við kaffi­húsið á Sól­heimum eru full þennan góð­viðr­is­dag. Gestir sitja úti og njóta góðra veit­inga og veð­urs­ins og sumir eru á gangi á þessum gróð­ur­sæla stað á Suð­ur­landi en Sól­heimar eru sjálf­bært sam­fé­lag þar sem rúm­lega 100 ein­stak­lingar búa og starfa saman. Eins og segir á heima­síð­unni er þar rekin öflug félags­þjón­usta þar sem ein­stak­lingum með fjöl­breyttan bak­grunn er veitt tæki­færi til atvinnu og starfs­þjálf­unar, búsetu, félags- og menn­ing­ar­starfs. Það var Sesselja Hreindís Sig­munds­dóttir sem stofn­aði Sólheima árið 1930 en hún hafði í nokkur ár stundað nám í Danmörku, Sviss og Þýska­landi meðal ann­ars í upp­eld­is­fræði, barna­hjúkrun og rekstri barna­heim­ila og var fyrsti Íslend­ing­ur­inn sem lærði umönnun þroska­haml­aðra.

Á heima­síðu Sólheima segir meðal ann­ars:

„Sól­heimar voru stofn­aðir sem barna­heim­ili, einkum fyrir börn sem bjuggu við erf­iðar heim­il­is­að­stæður svo sem for­eldramissi eða veik­indi for­eldra. Einnig voru tekin börn til sum­ar­dvalar.“ Haustið 1931 kom fyrsta barnið með þroska­hömlun að Sól­heimum en þá voru engin úrræði til á Íslandi fyrir þroska­skerta og á síð­unni stendur að þess voru dæmi að slíkt fólk væri geymt í úti­húsum.

Úr sögu­legum heim­ildum fyrir Sólheima kemur fram að árið 1934 voru skráð „11 heil­brigð börn og 8 fávitar, auk sum­ar­dvalar barna“ og árið 1936 „10 börn heil­vita, 14 fávitar, auk barna í sum­ar­dvöl“. Starfs­manna­skortur var mik­ill á árunum 1942 - 1944. Eftir stríð voru nær ein­göngu þroska­heftir á Sól­heimum, auk fóst­ur­barna Sesselju og sum­ar­barna. Árið 1952 voru skráðir 16 fatl­aðir, 1956 25 fatl­aðir og 1964 45 fatl­aðir.“

Reynir Pétur Stein­unn­ar­son, þekkt­asti íbúi Sólheima, flutti þangað árið 1952 þá tæp­lega fjög­urra ára gam­all.

Peruterta og appelsínusafi

Blaða­maður var búinn að vera í sam­bandi við starfs­mann Sólheima vegna fyr­ir­hug­aðs við­tals við Reyni Pétur og svo auð­vitað við hann sjálfan. Hann hafði í síma sagst vera búinn að vinna klukkan fjögur en starfs­mað­ur­inn fékk hann til að mæta hjálf þrjú á kaffi­húsið sem lokar klukkan fimm. Tæpur klukku­tími hefði ekki verið nægur tími fyrir spjallið.

Blaða­maður kaupir veit­ingar fyrir sig en fyrir utan að vera kaffi­hús, og mat­salur fyrir íbúa í hádeg­inu, er í sama hús­næði rekin verslun þar sem meðal ann­ars er hægt að kaupa fal­leg og vönduð lista­verk eftir íbúa. Sum eru fjölda­fram­leidd og má þar nefna vand­aða fugla úr postu­líni og alls kyns fígúrur sem skreyttar eru á fal­legan og vand­aðan hátt. Og inni við aðal­dyrnar er stór stytta af Reyni Pétri sem nokkrar mín­útur yfir hálf­þrjú gengur svo sjálfur í stutt­buxum og stutt­erma­bol ákveðnum skrefum inn í húsið og við heilsumst með knúsi þótt við höfum aldrei hist áður. Blaða­maður spyr hvort það megi ekki bjóða honum eitt­hvað að borða og drekka. Hann velur perutertu­sneið og app­el­sínusafa.

Miðaldra maður gengur inn og Reynir Pétur snýr sér að honum.

„Hún ætlar aldeilis að veiða upp úr mér. Ég veit þessa aðferð. Kaffi og koma ofan í mig og koma upp upp­lýs­ingum.“

„Þær flæða þá upp,“ segir mað­ur­inn.

„Já, þú veist það,“ segir Reynir Pétur.

Blaða­maður minn­ist eins og oft er gert á gott veðrið þennan dag.

„Veðrið er mjög gott. Ég fór í hjóla­túr í gær út að Minni Borg. Þú veist hvar Minni Borg er. Ég fór efri leið­ina og kom neðri leið­ina til baka. Fór svona stuttan hjóla­túr.“

Hvað var hann lengi á leið­inni?

„Innan við klukku­tíma. Þetta var smá hringur.“

Þetta hefur verið gaman.

„Þetta var ágætt.“

Við setj­umst við eitt borðið og köku­diskar og app­el­sínusafa­fernur fyrir framan okkur. Annar maður gengur hjá og heilsar Reyni Pétri.

„Bless­aður. Ég fékk gest.“

„Nú?“ segir mað­ur­inn.

„Enda var það líka best. Að fá þennan gest.“

Boð og bönn

Það var haustið 1948 sem Reynir Pétur kom í heim­inn í Reykja­vík.

„Bíddu róleg. Nú skulum við athuga svo þú vissir um sög­una mína áður. Ég fékk heila­himnu­bólgu þegar ég var lít­ill. Ég var þriggja fjög­urra mán­aða. Ég var baby. Veikin virðir ekki landa­mæri. Svo kom heim­ild­ar­mynd um mig 2010 og það var við­tal við Gunnu, systur mína. Þá komst ég að því að ég fædd­ist heil­brigður. Heil­brigt barn. Fínt barn. Svo bara varð hann veikur. Mjög veikur. Upp úr því verður þrosk­inn svo­lítið öðru­vísi. Þetta var stór heilli,“ segir hann og á við fyrr­nefnt við­tal við systur sína, „en þá vissi ég að ég var algjör­lega í lagi þegar ég fædd­ist. Og ef ég hefði verið í lagi, ekki veikst, alist upp í bænum kannski, hitt konu og eign­ast börn. En æi, það kom bara veiki. Enda tók veikin mörg börn undir sig. Af hverju? Þetta var far­aldur. Þetta er eins og flensa. Kíghósti. Nefndu það. Þetta flyst á milli landa. Ég veit ekki hver fjand­inn það er. Bara óheppni má segja. Ég spurði svo systur mína hversu veikur ég var. Ég hélt ég hefði verið smá veikur. Nei. Hún sagði: „Þú varst mjög veikur. Þú varst næstum því far­inn.“ Svo ég hugs­aði ég slapp samt vel. Kem hingað og alist upp hér. Ég kem ekki fyrr en hvað þriggja ára. Ég var að verða fjög­urra ára. Þá var Sesselja for­stöðu­kona en hún gat verið svaka­lega ströng. Ég spurði einu sinni systur mína hvort hún vissi hvort for­eldrar mínir reyndu að spyrja Sesselju að fá dreng­inn yfir helgi. Já. Það var reynt. Og hún neit­aði.“

Reynir Pétur á stóra fjöl­skyldu sem er dug­leg að heim­sækja hann, bjóða honum heim og fara í bílt­úra með hann en hálf­systk­inin eru sjö. Reynir Pétur er spurður um æskuminn­ingar.

„Ég hafði gaman af mörgu. Það voru kringlótt tæki úti í geimnum eins og kúlu­bolt­inn minn. Þetta var svona bolti með hring utan um og það voru margir gluggar á þessu. Þetta var á fjórum fótum,“ segir hann og á við geim­far. „Þetta var alveg meiri­háttar,“ segir hann með áherslu. „Og ég hafði gaman af mörgu. Ég hafði gaman af fánum. Ég hafði gaman af músík. Ég hafði gaman af mörgum hlutum. Ég var með alls konar hug­mynda­flæði. Ég ólst upp á Sól­heimum en auð­vitað voru stundum þrösk­uldar sem maður steig á. Sem maður steig á gler­broti. Það voru boð og bönn og þú áttir að fara eftir reglum og ef þú gerir ekki svona þá færðu skammir. Og allt eftir göt­unum. Þú þurftir að fara eftir reglum. En ég fann ekki mikið fyrir því af því að ég var svo bissí af áhuga­málum. Hefði ég ekki verið með áhuga­mál þá hefði ég verið að spá í spilin. Ég var bara bissí sem betur fer. En ann­ars hafa Sól­heimar gefið mér mikla ferska minn­ingu. Ég fór oft í göngut­úra í gamla daga. Þá var skylda að fara út. Það var farið með börnin út að labba. Og ég lenti í því að vera sem eitt af börn­unum. Þetta var skylda.“

Voru mörg börn á Sól­heimum á þessum tíma?

„Já já. Ég man ekki hvað þau voru mörg en það var svo­lítið góður slatti af börnum. Hefur hangið yfir svona þrjá­tíu manns með öllu.“

Ekki nógu stórt

Reynir Pétur segir að margir strákar hafi verið saman í her­bergi.

„Þegar ég var fyrst á mið­hæð­inni voru svo­lítið blönduð kyn vegna þess að við vorum svo ung. Svo þegar ég fór að eld­ast og börnin voru orðin þetta gömul þá var farið á stráka­deild. Ég fór á neðstu hæð­ina til strák­anna. Ég hef verið innan við tíu ára. Fyrst bjuggu margir strákar saman á deild og þá var bara eitt útvarp á deild­inni. Og það mátti ekki eiga sér­tæki. Ég átti heima á Selhamri í kjall­ar­anum. Margir strákar. Árið 1962 fluttum við í Sveina­lund. Bjuggum margir strákar saman. Svo fórum við í Gimli. Þá sváfu bara tveir og tveir saman í her­bergi. Og mörg ár svo­leiðis. Og ég man alveg eftir því þú máttir ekki eiga sér­tæki. En svo man ég eftir því þegar ég fór í bæinn og ég ætl­aði að kaupa nýja plötu með hljóm­list. Ég var búinn að kaupa Sel­foss­kór­inn um sum­arið. Ég átti ekki grammó­fón ennþá. Ég keypti eina plötu í við­bót í des­em­ber 1972 en þá var ég með ein­hverja ósk­hyggju. Ég óskaði mér grammó­fón. Útvarps­tæki. Seg­ul­bands­tæki. Og ég kveið fyrir hvernig á ég að bera mig að án þess að þykja vera að sníkja. Ég kveið fyrir. En ég þurfti ekk­ert að bera orðin því að þegar ég kom heim þá var systir mín að heilsa mér, öll systk­inin nátt­úr­lega, en ein systir mín var að flytja að heiman og sagði: „Langar þig í rad­íó­fón­inn minn?“ Hún var að flytja að heiman og vildi losna við rad­íó­fón­inn. Hún gaf mér hann.“

Það var fal­lega gert.

„Já, að sjálf­sögðu. Svo lærði ég á hann, nátt­úr­lega. Svo þurfti ég að spila plöt­una mína sem ég var að kaupa. Gaman. Stjúpi minn gaf mér margar harm­on­ikku­plötur ofan á þetta.
Svo var ég voða­lega ást­fang­inn af gömlum útvarps­tækjum áður en ég eign­að­ist sjálfur tæki. Þess vegna sagði ég að ég óskaði mér grammó­fón og útvar­sptæki en ég fékk svo rad­íó­fón sem var bara mjög fínt. Svo man ég eftir að ég hringdi í Þjóð­arsál­ina og var að aug­lýsta eftir ein­hverju útvarps­tæki. Manstu eftir gömlum útvarps­tækjum? Þessum stóru feitu. Ég hringdi og aug­lýsti þetta. Næstu daga hringdi maður til mín og sagði: „Sæll og bless­aður, ég heyrði í þér í Þjóð­arsál­inni um dag­inn, þú varst að spyrja eftir gömlu útvarps­tæki. Heyrðu, við hjónin ætlum að heim­sækja þig á morgun.“ Ég hlakk­aði til morg­uns. „Hvar eigum við að hitt­ast?“ „Niðri í Sunnu.“ Svo náði mað­ur­inn í útvarpið í skottið og ég hugs­aði „er það ekki stærra en þetta?. En ég sagði það ekki,“ segir Reynir Pétur prakk­ara­lega. „Svo tók ég við tæk­inu og átti það í stuttan tíma. Ég gat ekki átt það lengi. Af hverju? Það var ekki nógu stórt,“ segir hann og hlær. „Ég gaf það. Ég gat ekki átt það. Við fengum raf­magn 1956. Við vorum með heima­til­búið raf­magn. Þetta var mót­orskúr hérna á milli beggja húsa, þetta var tengt við vind­myll­una okkar og það þurfti að útvega raf­magn. Það var ekki stórt raf­magn. Svo fengum við alvöru raf­magn. Það voru lagðir raf­magns­staurar. Ég hafði líka áhuga fyrir því þegar raf­magns­staur­arnir komu,“ segir Reynir Pétur og lækkar rödd­ina. „Ég hafði dálæti á síma­staurum sem voru líka voða sætir staurar. Þetta þótti mér æðis­lega sætt. Það var líka hluti af gam­an­inu hjá mér. Svo var ég með alls konar skrýtnar dellur. Ég var með áhuga á gömlum skurð­gröfum. Hvað á maður að segja,“ segir Reynir Pétur og kímir. „Fólk verður bara hissa. Ég var með alls konar áhuga­mál. Ég var með flug­véla­dellu. Ég var með fána­dellu, kúlu­bolta­dellu og svo furðu­dýra­dellu. Ég var svo bissí. Ég var svo­lítið hrif­inn af gömlu bíl­núm­er­unum. Manstu eftir þessum svörtu? Þau voru rosa­leg. Til­gang­ur­inn minn var ekk­ert að reyna að muna öll númer. Stundum fest­ust númer af því að bíll­inn var þá oft á staðnum. En það sem skiptir máli er að þetta voru fal­leg svört spjöld með tölu­stöfum. Áttan var alveg kringlótt og eins að neðan og uppi og einn var bara strik. Ekki með neitt hak. En svo var ég líka hrif­inn af gömlum almanökum. Manstu eftir þeim? Þau voru þannig að þú rífur af hverjum degi. Þá var ég alltaf að safna daga­tölum. Ég var klikk­aður. Hefði ég ekki fengið þessar dellur hefði ég farið að spá í og orðið öfund­sjúkur. Ég á það til. Ég hef haft svo margt sem deyfir þetta.“

Selurinn Snorri í uppáhaldi

Börnin á Sól­heimum lærðu meðal ann­ars að lesa, skrifa og reikna. „Ég var lengi að læra,“ segir Reynir Pétur um lest­ur­inn og bætir við að hann hafi fengið kennslu inni í Hvílunni.

„Svo var ég á skóla­bekk uppi á Selhamri en það gekk alveg. Ég held það hafi verið mest þegar Ingi­mundur Stef­áns­son kemur og hann kemur 1965. Þá fór allt að kom­ast á ferð. Ég kunni svona hrá­lega. Varla. Ég skrif­aði þá oft vit­laust. Svo fékk ég mikla slípun hjá þessum manni. Í reikn­ingi líka. Svo vorum við í handa­vinnu í skól­anum á vet­urna, þú veist prjóna og svo vefa. Svo líka að hekla. Ég hlakk­aði alltaf til á laug­ar­dögum en þá þurftum við ekki að læra. Þá var bara spilað lúdó. Að leika okkur. Ekki að reyna að lesa neitt. Ég var þá ekki orð­inn full­læs. Ég skrif­aði oft vit­laust. Svo lærði ég það ekki fyrr en 1965. Þá fór ég að styrkj­ast í lestri og staf­setn­ingu. Og reikn­ingi.“

Reynir Pétur er spurður hvað honum hafi fund­ist vera skemmti­leg­ast að læra.

„Þetta var allt gott. Reikn­ing­ur­inn var skemmti­legur.“

Hvað hefur hann aðal­lega lesið í gegnum tíð­ina?

„Það eru fræði­rit. Bæði um geim­vís­indi og um fána og lesið heim­ildir um tækni og vís­indi. En ekki glæpa­sögur.“

Hvaða bók er í upp­á­haldi?

„Ég held reyndar upp á bók­ina Selurinn Snorri.“

Af hverju?

„Já, af hverju? Það var þannig í kringum 1960 þá vorum við að bíða eftir mat í almenn­ingnum og þá voru ein­hver mynda­blöð og bækur. Og ég komst í þessa bók og skoð­aði myndir. Það voru æðis­lega fal­legar myndir. Og það situr í mér þessi fal­lega minn­ing. Þetta er svona sögu­bók. En ég kunni þá ekki að lesa en mynd­irnar sögðu mikið. Kannast þú við bók­ina Selurinn Snorri?“

Það var ýmis­legt gert og seg­ist Reynir Pétur oft hafa leikið í leik­ritum.

„Þá lék ég einn af dverg­unum í leik­riti sem heitir Lífs­vatnið. Kannast þú við það? Svo var annað leik­rit sem ég veit ekki hvað heitir og þá var ég frosk­ur­inn. Þetta var teng­ing við það að prinsessan hún missir, hvað heitir það sem hún setur á putt­ann?“

Hring?

„Já, ein­hvers konar hringur. Og hún missir í brunn­inn. Og ég átti að sækja þennan hring upp úr brunn­inum. Og ég lék frosk­inn. Kannast þú við þessa lýs­ingu? Svo um 1959 þá fékk einn strák­ur­inn fal­legan sleða. Veturinn 1959 snemma. Og þá voru margar brekkur hérna. Og ég fékk aðgang að sleð­anum og gat rennt mér hérna niður. Svo man ég líka í kringum 1956 eða 1957 eða ein­hvern tím­ann nálægt því. Við vorum með rólu­völl og vorum alltaf að róla okkur sem var líka gaman. Þá voru tvær rólur. Eitt heild­ar­tæki og svo tvær rólur á þessu. Og ég var alltaf að róla mér. Svo fengum við líka að vega salt.“

Reynir Pétur seg­ist hafa verið með minni­mátt­ar­kennd áður fyrr.

„Jú jú. Senni­lega teng­ist það að maður var strítt. Og þá tekur börnin til sín. Svona skrýtið. Og alls konar hug­mynda­flug.“

Hann segir að fleirum hafi verið strítt.

„Það fengu margir að finna fyrir því.“

Jólasveinar einn og átta

Reynir Pétur segir að framan af hafi hann verið á Sól­heimum um jólin og var margt gert til að gera þau heim­il­is­leg og hátíð­leg þótt fjöl­skyldur sumra barn­anna væru víðs fjarri. Börnin máttu ekki verja jól­unum með fjöl­skyldum sínum fyrstu árin sem Reynir Pétur bjó á Sól­heimum.

„Þau voru æðis­leg. Hún hafði mjög fal­leg jól,“ segir hann og á við Sesselju. „Jólin í dag finnst mér ekki jafn­ast á við þá feg­urð sem jólin voru þá. Þarna var Sesselja algjör­lega í sínu veldi og þar var hún sem best. Hún var ekki fána­kona. Skrýtið samt. En hún átti margar bjartar hliðar líka. Við fengum ekki jóla­gjaf­irnar um kveldið, aðfanga­dags­kvöld. Við fengum þær á jóla­dag. Þess vegna var nóttin oft erfið.“

Var lítið sofið á jóla­nótt?

„Já, þú getur ímyndað þér. Að fá pakk­ana á morgun! Þetta var skelfi­legt. Svo fórum við upp í sal og svo fékkstu ekki pakka fyrr en allir voru komnir í sal­inn. Og þegar þú færð pakka núna þá máttu ekki fara heim strax. Þú verður að bíða þar til allir eru búnir að fá pakk­ana sína. Svo fór ég heim með pakk­ana og byrj­aði titr­andi að opna pakk­ana og var að þukla á þeim nátt­úr­lega og var að von­ast að sem flestir væru harðir. En mjúkir pakkar geta líka verið góðir. En þú sérð hvernig börn hugs­uðu. Þau vilja bara leik­föng. Það er best.“

Hann hlær.

„Ég man þegar við fórum að fá jóla­pakka frá jóla­svein­inum. Við vorum að mæta uppi í sal hjá jóla­svein­inum. Og ég sá bunka af pökkum. Allir voru að koma og ég hugs­aði „ég vona að þessi stóri sé minn“. Svo tók hann upp pakka og sagði „Reynir“. Mér brá við. Ekki stærri en þetta? Og svo var ég að klípa í pakk­ana eins og börn gera. Þau vilja helst bara harða pakka, börnin.“ Reynir Pétur hlær.

Negldur í moldina

Dreng­ur­inn óx úr grasi á Sól­heimum og ung­ling­ur­inn varð ungur maður.

„Við vorum að læra að vinna. Ég held það hafi verið í kringum 1960 eða svona slef­andi þá lendir maður í því að þurfa að hjálpa til. Gera eitt­hvað að gagni. Ég hef gert margt. Ég hef verið í bygg­inga­vinnu. Heyskap. Þetta var blönduð vinna. En 1966 þá liggur við að mér hafi verið skyldað að vinna. Þú átt að vinna með honum í garð­yrkj­unni. Ég var negldur í mold­ina. Liggur við að ég segi það. Ég kalla að ég er með græna fingur eða ég geti líka sagt brúna fingur af mold­inni. Svo ég segi græna og brúna fingur. 1966. Núna er 2026. Halló amen. Sextíu ár.“

Þrátt fyrir að Reynir Pétur sé orð­inn sjö­tíu og átta ára þá tekur hann enn að sér ýmis verk.

„Ég er ekki að vinna mikla skíta­vinnu út af því að ég er með mæði og þá hef ég verið að gera létta vinnu. Ég hef verið lát­inn taka smá það sem til fellur. Svo hef ég verið að gera mynd­list líka.“

Blaða­maður nefnir hvað lista­verk íbúa eru fal­leg.

„Sástu lista­verkið sem ég gerði? Það heitir Lands­lags­heimur. Það eru tutt­ugu og átta myndir á vegg. Það fer ekki fram hjá þér. Ef þú skoðar þá heitir það Lands­lags­heimur. Ég, Reynir Pétur.“

Var hann þá í garð­yrkju í ára­tugi?

„Já, alveg svo­leiðis. Ég var þrællímdur.“

Þannig að það var hans aðal­starf.

„Það má bara segja það. Það er verið að rækta alls konar. Hvað ég hef þurft að gera var alla­veg­ana. Stundum var það að þurfa að keyra skít. Þá var ein­hver sem kom með skít og setti hrúgu hérna og ég þurfti að keyra í hjól­börum skít. Eina hjól­böru í hvert bil. Og svo þurfti að vinna jarð­veg­inn og svo útbúa beð og fram eftir göt­unum. Og það sem ég gat gert. Svo lærði maður þetta. Svo fór maður að læra að vinna við þetta.“

Þannig að Reynir Pétur hefur verið í þessu frá því hann var ungur maður.

„Já, ímynd­aðu þér.“

Hvað fannst honum vera skemmti­leg­ast að gera í garð­yrkj­unni?

„Mér fannst voða gaman að vökva plönt­urnar og líka að afblaða. Svo nátt­úr­lega að reita arfa. Það sem til fellur. Það er svo margt sem er skemmti­legt. En þegar ég keyri skít­inn inni í gróð­ur­húsi þá vil ég alltaf hafa jafnt á milli hrúga. Þá fæ ég að vita hvað hann vill margar hjól­börur í beð. Hann segir „ég vil átta hjól­börur“ og reikna ég vega­lengd­ina og deili í átta og get þá búið til hrúgu­hjalla. Núna erum við með skiptinema sem keyra skít. Svo hef ég líka verið með ein­hvern augn­kvilla. Mér finnst líka gott að tala um það. Árið 1967 fékk ég fyrst tví­sýni. Sjá tvö­falt. Og mér stóð til boða 1971 að fara í aðgerð en ein­hvern veg­inn asnað­ist ég að þora ekki að fara sem var bara della hjá mér. Ég fór ekki fyrr en 1984. Það var út af því að sjá tvö­falt. Þetta var hræðsla hjá mér en svo fór ég. Hoppaði út í djúpu laug­ina. Svo fékk ég eitt­hvað í augun á mér 1995. Ég veit ekki hvað ég á að kalla það. Á ensku heitir það „eye floa­ters“. Hefur þú heyrt það nefnt? Hvernig á ég að lýsa því. Það er eins og ef ég horfi á ljósa fleti og hreyfi augun til, sér­stak­lega ef grunn­ur­inn er ljós eins og til dæmis á hvítu tjaldi eða í tölv­unni eða labba úti í snjó, þá sé ég smá þræði synda inni í aug­unum. Þetta hef ég lesið um að gæti komið og verið and­skot­ann lengi. Þetta hefur valdið mér leiða. En núna eru margar leiðir sem ég sé á net­inu sem hægt er að gera. Sem betur fer,“ segir Reynir Pétur með áherslu.

Það er svo margt hægt að gera.

„Það er nefni­lega það.“

Til okkar kemur eldri maður sem styður sig við göngu­grind.

„Er loks­ins verið að fara að gefa út ævi­sög­una?“ segir hann.

„Já, það er verið að pumpa mig upp,“ segir Reynir Pétur hressi­lega.

„Það er kom­inn tími til,“ segir mað­ur­inn góð­lega.

„Veistu hvað hún gerði?“ segir Reynir Pétur. „Hún er sniðug. Hún splæsti á mig kaffi og kom þessu ofan í mig. Þá koma frétt­irnar upp úr mér í stað­inn.“

„Þessi maður veit ótrú­lega mikið,“ segir mað­ur­inn með áherslu og lítur á blaða­mann sem nefnir að hann hafi vitað af Reyni Pétri síðan hann gekk hring­inn í kringum landið árið 1985.

„Já, þú manst það,“ segir Reynir Pétur. „Hvar áttir þú heima þegar ég gekk hring­inn? Getur þú ímyndað þér. Þetta er með ólík­indum. Þetta var eins og for­set­inn. Það þarf engan for­seta. Ekki myndi hann labba hring­inn. En ég fór hann. Sól­heimar hefur gefið mér mikla gleði þó maður lendi á gler­broti eins og það er kallað. Ég eign­að­ist góða og fal­lega vini sem ég vildi ekki án vera. Og þá eign­að­ist ég líka þegar ég var ungur.“

Og góð­legi mað­ur­inn sem gengur hægt í burtu er einn af vinum Reynis Péturs. Hann er varla horf­inn þegar erlend kona kemur að borð­inu og heilsar Reyni Pétri. Það er aug­ljóst að þau þekkj­ast eitt­hvað.

„Hi. How are you?“ segir hann. „What's your name?“

„Sofia,“ segir konan.

„Já, Sofia. So many people.“

„I don't want to interr­upt you,“ segir Sofia elsku­lega en það er ekk­ert að því að vinir og kunn­ingjar heilsi upp á Reyni Pétur.

„Where come to you from?“

„Germany.“

„Germany. Sofia from Germany. Where in Germany?“

„ Tübingen. It's near Stutt­gart.“

„Já. In which state?“

„Baden-Württemberg.“

„Já. The flag is black and yellow in Baden-Württemberg.“

„Yes. Black, red and yellow.“

„Yes, that's the German flag. And Bavaria has white and blue. I know it. I love the flags.“

Það er auð­heyrt að Reynir Pétur hefur rétt fyrir sér varð­andi fána­lit­ina á fána Baden-Württemberg sem er svartur og gulur. Þau spjalla eitt­hvað áfram og svo kveður Sofia.

„Herzlichen willkommen,“ segir Reynir Pétur.

„Sorrí,“ segir hann svo við blaða­mann. „Það eru margir sem þekkja mann.“

Blaða­maður nefnir að hann sé góður í ensku.

„Já, maður reynir að vera það. Ég lærði 1963 í skól­anum. Ég var ekki nógu góður í lestri en ég gat skilið í tungu­málum. Gat í lestri nokkurn veg­inn lesið hrátt. Lærði af því að ég var að safna fána­bókum líka. Þurfti að lesa um þá. Það var margt sem kom til greina.“

Hvur fjandinn

Reynir Pétur er lands­þekktur maður. Árið 1985, þá þrjá­tíu og sjö ára gam­all, gekk hann í kringum landið og fylgd­ist má segja öll íslenska þjóðin með. Hann vakti þá athygli á mál­efnum fatl­aðra og safn­aði pen­ing sem not­aður var svo í bygg­ingu nýs íþrótta­húss á Sól­heimum.

„Ég fór þetta á sínum tíma, 1985. Þetta var ynd­is­legt.“

Blaða­maður líkir honum við hetju sem hann vissu­lega er.

„Um aðventu­leytið 1984 var ég spurður hvort ég myndi vilja labba næsta vor í kringum landið. Svo sagði ég að ég vildi hugsa málið um helg­ina hvort ég gæti þetta. Svo fór ég að hugsa um helg­ina. „Hvur fjand­inn. Af hverju ætti ég að gera þetta?“ Ég setti fjögur sæti hvers vegna ég ætl­aði að labba í kringum landið. Í fyrsta sæti að labba þjóð­veg númer eitt. Í öðru sæti að sjá landið mitt. Og í þriðja sæti að opna á við­horf fatl­aðra. Svo kemur pen­inga­hliðin. Þetta eru fjögur sæti. Ég tók ákvörðun. Jú, ég held ég taki þetta.“

Reynir Pétur hafði lengi verið mik­ill göngu­garpur auk þess að hjóla og næstu mán­uði æfði hann sig fyrir göng­una miklu.

„Þú þarft að vita hvort þú réðir við það. Þú þarft að búa til æfingu. Og ég gerði það. Og ég sá það að ég gæti alveg labbað mis­langt dag frá degi og gat alveg stjórnað því. Það var ekk­ert sem sagði þú átt að labba fjöru­tíu til fimm­tíu. Ef ég er kom­inn fimm­tíu kíló­metra vega­lengd og ég ætti bara nokkur hund­ruð metra að vega­mótum, ég mið­aði alltaf við eitt­hvað, þá vil ég gera það. Þetta var ekki svo erfitt. Það þurfti aðeins að und­ir­búa þetta og sjá hvort maður myndi ráða við þetta.“

Flott undir Eyjafjöllum

Svo rann stóri dag­ur­inn upp, 25. maí.

„Það voru ein­hverjir sem löbbuðu aðeins smá­vegis með mér. Smá byrjun ferð­ar­innar.“

Hvernig til­finn­ing var það þegar allir voru búnir að kveðja hann og hann var einn á gangi? Þess má geta að hann var alla ferð­ina með fylgd­ar­mann sem var í bíl.

„Það var líka ágætt. Ég átti svo mörg áhuga­mál. Ég átti til að tala við sjálfan mig þannig að þetta var bara ágætt. Það var smá gustur sem stundum ger­ist. Það var svo­lít­ill vindur þennan dag. En það var allt í lagi.“

Um hvað var hann að tala við sjálfan sig?

„Ég var að tala við sjálfan mig um áhuga­mál mín. Ég gisti á Hvols­velli fyrsta dag­inn og svo labb­aði ég fram hjá Vík. Svo eftir Vík fór ég í gegnum kríu­belti. Það voru kríur skammt frá. Og þær voru dans­andi í kringum mig, að ofan. Ég var með der­húfu og ég gáði aldrei hvort hún væri skítug að ofan. Ég reyndi að labba svo­lítið geyst á meðan kríu­beltið var í gangi. Kríu­belti! Ég kalla það kríu­belti,“ segir Reynir Pétur og hlær.

Hvernig upp­lifði hann íslensku nátt­úr­una?

„Það var stór­kost­legt. Stór­kost­legt,“ end­ur­tekur hann með áherslu. „Ég myndi ekki vilja sleppa því.“

Hvað stendur upp úr varð­andi nátt­úr­una?

„Mér fannst voða­lega gaman að sjá Suð­ur­land og Aust­ur­land og Norð­ur­land. Jú, og Vest­ur­land. Mér fannst allur pakk­inn vera svo dýr­legur. En það var sums staðar sem voru mal­ar­vegir. Ég fékk smá ryk frá bíl­unum. Mold­ar­ryk. En það var svo sem allt í lagi.“

Og hvað lærði hann svo um íslenska nátt­úru á Íslands­göng­unni?

„Ég bara lærði það að landið er svona og þetta er alveg guð­dóm­legt. Mér fannst það gefa mér hug­mynd hvernig er á þessu svæði. En þú verður að athuga líka, þú sérð kannski ekki alla hluti á Aust­fjörðum. Þú labbar hérna og getur kannski ekki vitað hvað er ann­ars staðar. En svo hef ég nátt­úr­lega farið í bíl sem far­þegi.“

Hvaða staður fannst Reyni Pétri vera fal­leg­astur?

„Þú ferð illa með mig. Þetta var meira og minna. Mér fannst undir Eyja­fjöllum vera alveg djöf­ull flott. Það var alveg svaka flott,“ segir hann með áherslu. „Aust­ur­land var líka mjög flott.“

Hvað með dýra­lífið?

„Það voru kindur nátt­úr­lega hjá bæj­unum, hvað heldur þú. Ég sá það. Og beljur.“

Og fuglar út um allt.

„Já, syngj­andi fyrir mig.“

Var ekki fólk á bílum að stoppa og tala við hann?

„Jú, en veistu það. Takk fyrir mig,“ segir hann áður en hann heldur áfram og kyngir síð­asta tertu­bit­anum. Perutertu­bit­anum. Setur köku­diskinn til hliðar.

„Það gat stundum verið erfitt vegna þess að þá þurfti ég að stoppa. Bara rétt snöggvast. Þetta var ynd­is­legt. Þegar fólk var að koma og stopp­uðu. Ann­að­hvort var það að koma á eftir mér, áfram eða á móti mér. Stoppuðu. Rétti mér pen­ing. Hvað fannst mér skemmti­legt? Það eða þá þegar krakk­arnir tóku á móti mér og löbbuðu með. Það var miklu merki­legra þegar krakk­arnir löbbuðu með mér en pen­ing­ur­inn sjálfur vegna þess að þegar ég labb­aði og þeir komu á móti mér þá fann ég meira nánd. Mér datt ekki í hug að spyrja „af hverju ertu að labba með mér?“. Nei nei nei nei nei. Ég fann það bara. Ég fann það bara og leið mjög vel yfir því. En mér fannst líka gott að vera einn. Að sjálf­sögðu,“ segir hann með áherslu. „En ég vildi ekki reka, farðu heim til þín. Maður gerir það ekki. Ég vissi að þau vildu mér bara gott og nándin sem var mik­ils virði.“

Reynir Pétur segir að gangan hafi upp­haf­lega verið kölluð Sól­heima­gangan en svo hafi heitið breyst í Íslands­göngu.

„Svo tal­aði útvarpið við mig og ég sagði í útvarp­inu að ég hefði viljað láta göng­una heita Íslands­ganga. Svo kom út bók sem heitir Reynir Pétur og Íslands­gangan. Ég átti hug­mynd­ina að nafn­inu Íslands­gangan. Sól­heim­gangan væri frekar ef maður væri að labba Sól­heima­hring­inn. En að labba um Ísland, stóra gangan mikla, þá er það Íslands­ganga.“

Reynir Pétur var sæmdur heið­urs­merki hinnar íslensku fálka­orðu á nýárs­dag árið 2024 og fékk hann ridd­ara­kross fyrir afrek og fram­göngu í þágu fatl­aðra. Blaða­maður óskar honum til ham­ingju.

„Þakka þér fyrir það. Við vorum sautján manns að fá fálka­orðu.“

Hvaða máli skiptir það fyrir Reyni Pétur að hafa fengið fálka­orð­una?

„Hann minnt­ist bara á að ég hefði haft áhrif en minnt­ist ekki á göng­una. Og ég nátt­úr­lega sá það hvað það var. Það þarf ekk­ert að predika um það. Og það var jú mikil heilli fyrir mig að hafa fengið að finna það.“

Reynir Pétur seg­ist ekki hafa verið hrif­inn af kon­íakinu sem boðið var upp á heldur hafi frekar viljað að boðið hafi verið upp á kaffi, kleinur og kökur. Fálka­orðan hlýtur að vera góð fyrir sjálfs­traustið eins og gangan var.

„Já. Þú getur ímyndað þér,“ segir Reynir Pétur með áherslu.

Reynir Pétur skoðar stundum fálka­orð­una sína. Setur hann hana stundum upp?

„Bara mjög spari.“

Dreymir Reyni Pétur stundum að hann sé að ganga?

„Ég er nú hræddur um það,“ segir hann með áherslu. „Það kemur fyrir. Það er góð til­finn­ing.“

Viðhorf til fatlaðra breyttist

Hann er þjóð­hetja.

„Já, þú veist það. Þetta vakti athygli. Þetta fór að lag­ast. Allt þetta sem er bara fjandi gott. Pen­ing­ur­inn var ekki allt. Það var með. Fólk var alltaf að spyrja. Hvað eru sjö millj­ónir í dag? Ég segi bara sjö millj­ónir eru sjö millj­ónir stærð­fræði­lega. Ég svara alltaf tungu­máli stærð­fræð­innar. Aftur á móti segi ég hver er stand­ar­dinn í dag, þessar sjö millj­ónir sem þú fékkst til að byggja þetta hús þá? Hvað kostar að byggja þetta hús í dag? Ég veit ekki nákvæm­lega hvað það myndi geta kostað.“

Reynir Pétur seg­ist hafa öðl­ast meira sjálfs­traust í tengslum við göng­una.

„Ég var með mjög mikla minni­mátt­ar­kennd áður og þetta hefur aldeilis sparkað mér upp úr skónum. Gaf mér alveg feitan bita. Þetta var bara kikk. Þetta var rosa­lega mikil gjöf. Auðvitað voru Sól­heimar heppnir að ég gerði þetta sem er nátt­úr­lega fínt. Svo opn­aði á við­horf fatl­aðra því 1980 fór við­horf fatl­aðra að byrja aðeins að lag­ast. Svo kom göngu­árið 1985 og þá blómstr­aði alveg vel. Og þá fór að vera meiri athygli og meira við­horf. Betra. Það hefur mikið lag­ast sem er mjög gott. Þetta var nán­ast ann­ars flokks fólk. Það liggur við að ég segði það svona. Nánast. En sem betur fer fór þetta að líta á þetta fólk sem bara jafn­ingja. Og ekk­ert öðru­vísi.“

Má kannski segja að Reynir Pétur sé frum­kvöð­ull í að vekja athygli á mál­efnum fatl­aðra?

„Já, það má segja það þó það hafi verið byrjað aðeins. Það var smá svona en svo sprakk. Svo hafa fleiri farið,“ segir hann en fleiri hafa gengið hring­inn til að safna fyrir ákveðin mál­efni.

Það mætti hugsa betur sinn gang,“ segir hann um hið opin­bera og aðstoð við fatl­aða. „Og ég man þegar þeim var sagt að leggja meiri áherslu á að gefa okkur meiri styrk. Og ef ég hef hitt þennan mann þá hefði ég getað sagt: „Það kemur að því að þið verðið fatl­aðir. Passaðu þig bara.“ Ég myndi segja: „Passaðu þig bara.“

Hann hlær. „Ég myndi líta á okkur sem jafn­ingja. Það er ekki munur. Við erum ekki öðru­vísi fólk. Þetta er sama fólkið. Það er eins og ég segi, fólk í heim­inum. Ég lít á allt fólk sem fólk þótt þú sért svartur eða hvítur eða hvort það sé sam­kyn­hneigt eða gagn­kyn­hneigt. Það sem heitir fólk. En það eina sem getur verið skakkt innan um fólk er ef það er einn sem gerir ljóta hluti eins og gerð­ist í Noregi úti í Útey. Ef ég dæi þá væri ég laus við alla ljót­leika heims­ins og öll slys og ham­farir og alla sjúk­dóma og kvilla. Þetta bara vil ég losna við. En aftur á móti myndi ég sakna minna vina og áhuga­málin og trilljón hluti myndi ég sakna. Ég myndi sakna göngut­úr­anna og mynd­list­ina og mús­ík­ina. Ég get ekki talið upp. Það mundi ég. En núna er ég í mús­ík­inni þótt ég hafi tekið þetta meira rólegar heldur en áður.“

Hvað heldur hann að ger­ist þegar fólk deyr?

„Það sem ger­ist, við mætum öll því sama. Við erum kannski mis­mun­andi hrædd þó að fólk trúi mis­mun­andi en það er bara einn sann­leikur en við vitum misnærri honum. Við kristnir þykj­umst svona vita best. Það er alltaf verið að tala um svört göng og að það birt­ist ljós­bjarmi. Það er mikið talað um svona. Ég held að það sé mjög nálægt sann­leik­anum ef ekki bara sann­leik­ur­inn sjálfur. En alla­veg­ana mætum við saman. Guð fyr­ir­gefur allar syndir. Ef ég hef verið vondur maður þá iðr­ast ég og hann fyr­ir­gefur mér. En það sem mín refs­ing er, ef ég hef gert ljótt; segjum að ég drap hund­rað manns sem dæmi og ég er settur í fang­elsi. Þá er mín refs­ing þannig að þú ert ekki frjáls í fang­elsi. Þú þarft að dúsa þetta í x ár. Og þegar ég er kom­inn yfir, ég held að allar syndir eru fyr­ir­gefnar. Og ég held það komi að því að þú iðrist gjörða þinna. Ég trúi varla að mann­eskja sé til sem er algjör­lega svört upp frá höfuð niður til táa. Hún hljóti að kom­ast að því að hún verði að iðr­ast. Þetta getur ekki passað.“

Kiss Me Quick

Reynir Pétur hefur búið á Sól­heimum í sjö­tíu og fjögur ár og á Sól­heimum hefur hann eign­ast vini og má kannski segja að um sé að ræða eina stóra fjöl­skyldu. Eru allir vinir?

„Já, það eru sumir sem ég næ meira sam­bandi við en öðrum.“

Þótt Reynir Pétur vinni ekki eins mikið og áður fyrr þá hefur hann nóg að gera.

„Ég er líka að safna gömlum ljós­myndum til að gera heim­ildir líka. Svo það er margt sem ég er að vinna í. Mikið verk­efni.“

Svo er hann fær munn­hörpu­leik­ari en hann hefur komið fram sem slíkur og spilað inn á geisla­disk. Hvernig tón­list hlustar hann aðal­lega á?

„Það er bara fín tón­list. Það er bara kán­trímúsík og þessi frá Þýska­landi og harm­on­ikku­tón­list og lúðra­sveit­ar­músík, svaka­lega flott. Svo er ég hrif­inn af fullt af slög­urum. Gospel getur líka verið flott. Svo er ég hrif­inn af Bruce Springsteen og Elvis Presley. Þú kann­ast við Dolly Parton. Nefndu það. Það er fullt. Ég hef ekki tölu á fjölda.“

Hvaða lag með Elvis Presley er í upp­á­haldi?

„Ef ég ætti eitt óska­leg með Elvis Presley þá myndi ég sví­virð­is­laust taka Kiss Me Quick.“

Hvers vegna það lag?

„Laglínan er bara svo flott. Einhver spurði mig: „Hvort finnst þér skipta máli texti eða lag?“ Lagið er alltaf í fyrsta sæti. En svo kemur text­inn. Og þá er spurn­ing hvort text­inn passi við lagið. En yfir­leitt er það. En það getur komið fyrir að hann er ekki við­eig­andi. En yfir­leitt er það, að það passar við.“

Með gangráð

Hann sem gekk Íslands­hring­inn ferð­ast svo­lítið um á raf­skutlu og hann er kom­inn með gangráð.

„Já, fyrir nokkrum árum var ég kom­inn með mæði og átti erfitt með að labba upp halla. Og af hverju? Auðvitað var maður ekki full­sáttur við það en það sem hjálp­aði mér að skilja. Einhver sagði: „Þú ert orð­inn gam­all.“ Það er alveg skelfi­legt að heyra.“

Hann er orð­inn eldri maður. Hvernig leggst það tíma­bil ævinnar í hann?

„Ég hef oft verið að hugsa. Stundum öfunda ég ung­linga að vera ekki eins hraustur. En ég fór að hugsa, á ekki frekar að snúa því við að ung­lingar öfundi mig? Ég er búinn að bera hrika­lega, hrika­lega, hrika­lega reynslu. Búinn að eiga þennan tíma. Það er frekar að þeir myndu slá mig í rot fyrir öfund heldur en ég þau. Stundum er það þannig, auð­vitað á ég það til að vera með afbrýði­semi og öfund, skilj­an­lega, af því að ég er jafn­rétt­is­sinni. Ég er til dæmis á móti lottói. Ef þau þurfa að til­kynna það þá vil ég helst að það yrði sagt: „Það voru hjón sem voru að vinna í lottó sem eru stór­skuldug. Stendur upp með börn.“ Það væri flott að heyra þetta því þá sé ég rétt­lætið.“

Í þrjá­tíu og tvo daga kynnt­ist Reynir Pétur land­inu sínu betur en almennt gengur og ger­ist. Hann kynnt­ist veðr­inu. Hann kynnt­ist nátt­úr­unni. Hann kynnt­ist dýra­líf­inu. Hann kynnt­ist sjálfum sér. Og íslenska þjóðin fylgd­ist með hetj­unni sem hafði sem lítið barn veikst svo alvar­lega að það breytti öllu hans lífi en hann festi sig í hjarta þjóð­ar­innar. Það er auð­heyrt í þess­ari heim­sókn að Reynir Pétur er með stórt hjarta og það er þetta fal­lega hjarta sem fólki þykir svo vænt um.

Við­tal­inu er lokið. Blaða­maður talar um að senda honum við­talið til yfir­lestrar áður en það birt­ist. Hann seg­ist ekki vera með net­fang svo það verður sent á Messen­ger.

„Hvað heitir þú með leyfi? Hvernig lítur kóver­inn þinn út?“

Hann skrifar niður fullt nafn blaða­manns og fær að sjá for­síðu­mynd­ina á Facebook.

„Ég tek í þig. Aldeilis. Þú sleppur ekki.“

Við göngum innar í húsið þar sem fal­legu lista­verkin eru til sölu.

„Má ég sýna þér mynd­list­ina? Ég ætla að sýna þér mynd­ina áður en ég sleppi þér.“

Og Reynir Pétur sýnir lista­verkið sitt stoltur, tutt­ugu og átta litlar lands­lags­myndir sem mynda eina heild.

Við kveðj­umst síðan með knúsi eins og við höfðum heils­ast rúmum tveimur klukku­tímum áður.

Eldri mað­ur­inn með hreina hjartað gengur í stutt­bux­unum og stutt­erma­bolnum út í góða veðrið.

Blaða­maður ekur frá Sól­heimum áleiðis til höf­uð­borg­ar­innar en kemur í leið­inni við í Hvera­gerði og kíkir á nátt­úr­una rétt hjá Reykja­dal. Það er komin vina­beiðni á Facebook og skila­boð.

„Sæl og blessuð og takk fyrir síð­ast og takk fyrir veit­ingar og hafðu það gott, kær kveðja þinn góði vinur Reynir Pétur.“

Hjarta fylgir með. Tveir hlæj­andi broskar­lar. Regnbogi.

Blaða­maður sam­þykkir vina­beiðn­ina og sendir Reyni Pétri skila­boð og myndir af nokkrum hestum sem éta gras þetta fal­lega sum­ar­kvöld.

Skilaboð ber­ast um kvöldið frá honum.

„Flott og gott, góða nótt og sofðu rótt.“

Með fylgja myndir af regn­boga og hjarta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Selja frið­lýst ein­býli með stór­kost­legu útsýni

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Myndir
Fólk

DeLorean-tíma­vél rúll­aði um götur Reykja­víkur