Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

„Af hverju var þetta leyft?“

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Regína Hrönn við álfa­stein­inn Nú blasir aðeins við grátt bíla­stæði Mynd: Regína Hrönn - Facebook-skjáskot

Álfa­steinn, sem staðið hefur á milli Síðumúla og Ármúla í Reykja­vík og teng­ist gam­alli þjóð­sögu um álfa­byggð og óút­skýrða atburði, hefur verið fjar­lægður. Regína Hrönn Ragn­ars­dóttir segir stein­inn hafa verið horf­inn þegar hún ætl­aði að heim­sækja hann og spyr hvers vegna það hafi verið leyft.

Regína Hrönn Ragn­ars­dóttir segir frá hvarfi Huldu­manns­steins­ins í Facebook-færslu. Hún hefur und­an­farin sex ár reynt að vekja athygli á stein­inum og stuðla að verndun hans, meðal ann­ars með því að skrifa um sögu hans og raða steinum í kringum hann til að merkja hann sem álfa­stein.

Þegar hún ætl­aði að heim­sækja stein­inn í gær blasti hins vegar við henni tómt bíla­stæði. Bæði steinn­inn og gróð­ur­inn í kringum hann voru horfin.

„Af hverju var þetta leyft?“ spyr Regína í færsl­unni.

Saga steinsins nær aftur til fjórða áratugar síðustu aldar

Regína rifjar upp frá­sögn sagn­fræð­ings­ins Árna Óla af Álfa­stein­inum í bók­inni Álög og bann­helgi, sem kom út árið 1957 og var prentuð árið 1968.

Samkvæmt frá­sögn Árna hóf Þorbjörn Jónsson að ryðja grjót af landi í Grensási árið 1934 eða 1935, þar sem hann hugð­ist stunda hænsna­rækt. Einn steinn á lóð­inni skar sig úr fyrir stærð sína og lögun. Hann var klof­inn þversum og undan honum rann lítil upp­sprettu­lind.

Þegar verka­menn höfðu borað holu í stein­inn og und­ir­búið að sprengja hann dreymdi Þorbjörn mann sem sagði honum að steinn­inn væri heim­ili sitt og var­aði hann við því að hrófla við honum.

Þorbjörn ákvað í kjöl­farið að láta stein­inn standa.

Árið 1940 seldi hann hænsna­búið. Nýir eig­endur hugð­ust síðar fjar­lægja stein­inn, en norski for­stöðu­maður bús­ins, Einar Tönsberg, hafði verið var­aður við því að eiga við hann.

Eggjaframleiðslan stöðvaðist þegar til stóð að sprengja steininn

Í bók Árna Óla segir að þegar und­ir­bún­ingur hófst að því að sprengja stein­inn vorið 1942 hafi eggja­fram­leiðsla hænsnanna á búinu dreg­ist skyndi­lega saman og stöðvast síðan alveg um tíma.

Samkvæmt frá­sögn­inni var fóðrið rann­sakað og dýra­læknir skoð­aði hæn­urnar, en ekk­ert fannst sem skýrði breyt­ing­una. Þegar ákveðið var að hætta við að sprengja stein­inn tók varpið aftur við sér.

Sagan varð til þess að steinn­inn var tengdur álaga­trú og álfa­byggð.

Steininn sprengdur í þrjá hluta

Í Facebook-færslu sinni segir Regína einnig frá því að síðar hafi Haukur og Ólafur, sem ráku Raf­tækja­vinnu­stofu Hauks og Ólafs við Ármúla 14, byggt á svæð­inu ásamt þriðja manni sem átti þann hluta lóð­ar­innar þar sem steinn­inn stóð.

Að sögn Regínu ákvað sá maður að sprengja stein­inn. Það tókst að skipta honum í þrjá hluta og var sá minnsti fjar­lægður. Eftir stóðu tveir hlutar steins­ins. Þegar reynt var að lyfta þeim með krana hafi kran­inn ítrekað næstum oltið og mað­ur­inn að lokum hætt við bygg­ing­ar­á­form sín á reitnum.

Regína segir að Haukur og Ólafur hafi síðar gætt þess að ekki yrði hróflað frekar við stein­inum þegar þeir komust að sögu hans. Þeir færðu stein­hlut­ana tvo eins þétt saman og hægt var.

Nú séu þeir hins vegar horfnir og í stað­inn sé komið grátt bíla­stæði.

Regína lýkur færslu sinni á að harma að steinn­inn, sem hún segir hafa haft merka sögu, hafi verið fjar­lægður og að gróð­ur­inn í kringum hann hafi einnig verið fjar­lægður.

„Svo kom bara ein­hver fyrir nokkrum dögum og tók álfa­steinn­inn og eftir stendur grátt og ljótt bílaplan þar sem áður var álfa­steinn með sögu!!“

Hægt er að lesa meira um steinn­inn á ferða­bloggi Regínu en þar má einnig sjá fleiri ljós­myndir af álfa­stein­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ