ViðtalHelga hjá Andlegri heilsu ræðir um geðheilsu og leiðir til að hlúa að henni19. september 2021 Helga Arnardóttir, eigandi Andlegrar heilsu kom í viðtal við blaðamann Mannlífs og útskýrði fyrir okkur hennar nálgun á því sem við kemur andlegum málefnum. Helga segir að forsaga þess að hún fór út í þetta hafi verið mikill áhugi hennar á sálfræði frá því að hún var unglingur. ,,Ég barðist sjálf við mikla vanlíðan á unglingsárum auk þess að eiga...
ViðtalEinar margbraut á sér bakið en kennir nú óhefðbundna líkamsrækt – Fjölbreytnin yfirstígur verkina19. september 2021 ,,Frelsi í eigin líkama’’ lýsir tilfinningunni og líðaninni best eftir æfingar hjá Primal Iceland. Forsprakkar Primal Iceland segja í samtali við Mannlíf að stöðin þeirra hafi vakið mikla athygli síðustu misseri fyrir nýstárlega nálgun þegar kemur að hreyfingu. Primal varð til árið 2017 þegar Einar Carl Axelsson og Helgi Freyr Rúnarsson leiddu saman hesta sína í Movement Improvement námskeiðunum. Í...
ViðtalHelga jógakennari segir marga óttast að ræða kynlíf eða sjálfsfróun: „Kynorka er lífsorkan okkar“18. september 2021 „Ég trúi því svo innilega að við megum og raunverulega þurfum að fá að vera allt sem við erum, að kynnast öllum hliðum okkar, líka þeim sem þykja ekki eins viðurkenndar. Þetta hljómar einfalt en því miður er veganesti okkar flestra að við fengum og fáum mjög mikið af skilaboðum um hvaða hliðar okkar eru viðurkenndar og hverjar ekki“ segir...
ViðtalInga Sæland hefur upplifað sára fátækt á eigin skinni: „Jólunum fylgdi alltaf hræðilegur kvíði“.17. september 2021 ,,Þeir áttu það skilið,‘‘ segir Inga Sæland, aðspurð um þingmennina tvo sem hún rak eftir uppistandið sem varð á Klausturbar þar sem hún var ein þeirra sem fékk formælingar drukkinna þingmanna. Klaustursmálið fræga fór alls ekki vel í Ingu en voru þeir sem áttu í hlut reknir úr flokknum. Hún rak hálfan þingflokkinn. Enn þann dag í dag talar hún...
ViðtalKanadamaðurinn Guy: Varð yfir sig ástfanginn af íslenskri konu og ákvað að elta hana til Íslands16. september 2021 Guy Conan Steward, kemur frá Kanada og er menntaður leikari, grafískur hönnuður, kennari og hefur kennt við Brúarskóla í Reykjavík í meira en áratug ásamt því að stunda list í hjáverkum. Nú kennir hann leiklist við Landakotsskóla og er í framboði fyrir Vinstri Græna. Guy segir í samtali við Mannlíf að það hafi reynst honum erfitt að upplifa hrunið en...
ViðtalGunnar Smári lifir á séreignarsparnaðinum: „Ég er atvinnulaus, ég er tekjulaus og ég er eignalaus“15. september 2021 Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins og oddviti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, var gestur Reynis Traustasonar í hlaðvarpinu Mannlífið. „Ég á ekki bót fyrir boruna á mér, eins og sagt er,“ segir Gunnar Smári, aðspurður um það hvort hann sé ekki auðugur maður. Hann á ekki heldur hús. Húsið sitt varð hann að selja upp í skuldir eftir að Fréttatíminn,...
ViðtalIngólfi krossbrá er Stöð 2 sýndi klámið hans: „Mér finnst þetta pirrandi“14. september 2021 Í gærkvöldi var sýnt á Stöð 2 brot úr kynlífsmyndbandi Ingólfs Vals Þrastarsonar sem hefur undanfarna mánuði komið fram í slíkum myndböndum sem sýnd og seld eru á síðunni OnlyFans og þarf fólk að kaupa myndböndin til að sjá þau. Áhorfendur Stöðvar 2 sáu því inn í þennan heim Ingólfs sem annars er læstur. Hann vissi ekki að sýna ætti...
ViðtalÁsa varðveitir barnið í sjálfri sér: „Það á ekki að taka sig of alvarlega heldur njóta og gleðjast“13. september 2021 Námskeiðin Viðey Friðey, sem haldin voru í júní og ágúst í Viðey, voru samstarfsverkefni Listasafns Reykjavíkur og Borgarsögusafns og haldin með stuðningi Barnamenningarsjóðs. Kennarar á námskeiðunum voru Ása Helga Ragnarsdóttir leiklistarkennari, Guðrún Gísladóttir, myndmennta- og smíðakennari, og Sara Riel myndlistarmaður. Stefnt er að því að halda sams konar námskeið næsta sumar. „Þetta eru vikulöng námskeið fyrir börn á aldrinum sex...
ViðtalTómas missti afa og ömmu sama daginn: „Ég vonaði að pabbi myndi vilja hitta mig“11. september 2021 Tómas Tómasson veitingamaður, sem er hvað þekktastur fyrir rekstur Tomma hamborgara og nú Hamborgarabúllu Tómasar, vill á þing en hann er oddviti Flokks fólksins í Reykjavík norður. Tómas talar hér meðal annars um áherslumál sín, föðurinn bandaríska sem vildi ekkert af honum vita, Bakkus, ferilinn og uppáhaldshamborgarann, þunglyndið tengt ástarsorginni, lyftingarnar og húðflúrin og flatköku með roast beef og rækjusalati....
ViðtalSigurbjörn Árni fór í lyfjahlé fyrir Ólympíuleikana: „Ég er fúll yfir því að vera með sortuæxli“6. september 2021 Sigurbjörn Árni Arngrímsson, skólastjóri Framhaldsskólans á Laugum, greindist í febrúar með fjórða stigs sortuæxli. Hann hafði árið 2013 tekið eftir fæðingarbletti á öðrum handleggnum sem honum fannst vera grunsamlegur en lét ekki athuga hann fyrr en tveimur árum síðar. Bletturinn var þá fjarlægður og settur í ræktun og kom í ljós að þetta væri sortuæxli. Sigurbjörn fór í kjölfarið í...
ViðtalKatrín Jakobsdóttir forsætisráðherra: „Ég get verið svolítil frenja”5. september 2021 „Örlögin hafa dálítið leikið sér að mér af því ég var dálítið æst yfir því sem ung kona hve vonlausir allir stjórnmálamenn væru. Þegar stjórnmálamenn komu í menntaskólann minn var ég fussandi og sveiandi yfir þessu fólki. Það er mátulegt á mig að vera núna einn af þeim,” segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í viðtali við Mannlíf. Katrín er spurð um...
Viðtal„Ekki fundið mikið fyrir því hingað til að fólk sé feimið eða hrætt við að mæta“5. september 2021 Saga Lluvia Sigurðardóttir, eigandi Losta, og starfsfólk brennur fyrir það að venjugera umræðuna um allt sem tengist kynlífi. Verslunin býður upp á vörur fyrir allskonar fólk. En Losti er meðal annars fyrsta verlsunin á Íslandi sem býður upp á vörur fyrir transfólk. „Losti er einnig í samstarfi við allskonar fagfólk og fólk sem er að vinna við það sem tengist...
Viðtal„Ég er í betra formi núna en þegar ég var tvítug”5. september 2021 Gyða Dís jógakennari breytti algerlega um stefnu fyrir um 20 árum en áður hélt hún sér gangandi með gosi og súkkulaði. Síðasta áratuginn hefur hún svo gengið skrefinu lengra með því að vera 90 prósent á hráfæði. „Þrátt fyrir almennt heilbrigt líferni er það engin tilviljun að ég umbreytti lífsháttum mínum fyrir tuttugu árum. Ég á þrjá syni ásamt eiginmanni...
ViðtalKatrín Jakobsdóttir í Mannlífi: Vonar að Hvalárvirkjun verði ekki að veruleika3. september 2021 „Hvalárvirkjun er gott dæmi um að rammaáætlun sem þingið samþykkir en snýst alltaf um samanburð á virkjanakostum. Síðan þegar virkjunin er útfærð er hún orðin miklu stærri en hún var þegar þingið skipaði henni í nýtingaflokk,“ segir Katrín Jakobsdóttir í viðtali við nýtt hlaðvarp, Mannlífið með Reyni Traustasyni. Katrín er jafnframt á forsíðu tímarits Mannlífs sem kemur út í fyrsta...
ViðtalGuðný fæddi þrjá andvana syni: „Ég er endalaust sorgmædd, það er búið að særa mig svo mikið“3. september 2021 „Ég var send alein til ókunnugra aðeins 18 mánaða gömul. Mamma var veik, ófrísk að sínu fjórða barni og sendi mig til systur sinnar sem ég þekkti ekkert. Þarna var ég látin vera aftur og aftur og missti smám saman öll tengsl við foreldra mina og systkini,” segir Guðný María Arnþórsdóttir, tónlistarkona. Guðný María hefur gengið í gegnum mörg áföll...
ViðtalTók Má tíma að átta sig á samkynhneigðinni: „Versta sem maður gerir er að fela það“1. september 2021 Már Gunnarsson sundmaður hefur gert það gott á Ólympíuleikum fatlaðra í Tókýó og hefur þegar komst tvívegis í úrslit og var sekúndu frá gullverðlaunum í 100 metra baksundi. Már á eftir að keppa í einni grein og það gerir hann á föstudaginn. Dvöl hans í Japan lýkur eftir nokkra daga og segir hann að það sem standi upp úr sé...