Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra: „Ég get verið svolítil frenja”

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra: „Ég get verið svolítil frenja”
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra

„Örlögin hafa dálítið leikið sér að mér af því ég var dálítið æst yfir því sem ung kona hve von­lausir allir stjórn­mála­menn væru. Þegar stjórn­mála­menn komu í mennta­skól­ann minn var ég fussandi og svei­andi yfir þessu fólki. Það er mátu­legt á mig að vera núna einn af þeim,” segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í við­tali við Mannlíf. 

Katrín er spurð um upp­haf þess að hún lagði inn á braut stjórn­mál­anna sem hún hafði áður hálf­gerða skömm á. Það var virkj­ana­mál sem kveikti áhug­ann sem á end­anum kom henni í sjálfan for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn.  

„Það er örugg­lega bar­áttan gegn Kára­hnjúkum og það mál allt,” segir Katrín um ástæðu þess að hún lagði fyrir sig stjórn­málin. 

Katrín er ung að árum, 45 ára, en á þegar að baki langan og far­sælan feril sem alþing­is­maður og síðan ráð­herra. Aðspurð um bar­átt­una gegn Kára­hnjúka­virkjun hlær hún og rifjar upp þegar hún var aktí­visti og stóð með mót­mæla­spjald á Aust­ur­velli. Hún seg­ist strax hafa viljað leggja nátt­úr­unni lið sitt. Það hafi verið mik­il­væg­ast. 

Katrín er spurð að því hvort því fylgi ekki mikil skerð­ing á per­sónu­frelsi að starfa sem for­sæt­is­ráð­herra þegar allra augu hvíla á henni, hvar sem hún fer. 

„Öll störf hafa kosti og galla. Það er ég alin upp við. Þegar maður var að kvarta í gamla daga yfir því að það væri leið­in­legt eða ekki nógu gott í ein­hverju starfi þá sögðu for­eldrar mínir gjarnan að þetta sner­ist meira um  mitt við­horf en sjálft starfið. Svo hefur maður val um það hversu mikið maður lætur póli­tík­ina skerða sitt frelsi. Ég hef haldið mig við það að sinna þessu venju­lega í líf­inu eins og allir gera”. 

Katrín er ekki með háan lífs­stíl. Margir sjá fyrir sér að fólk í æðstu stöðum búi stórt og lifi hátt. Katrín býr í fjöl­býl­is­húsi í Vest­ur­bænum og berst ekki mikið á. Hún segir það vera með­vitað að vera með báða fætur á jörð­inni. 

„Já, ég bý í minni blokk. Ég hef rosa­legan áhuga á fólki. Ég sé stundum að fólk fer ekk­ert sér­stak­lega vel út úr því að vera mann­eskja í pól­tík. Það er ákveðið mark­mið hjá mér að þegar ég hætti í stjórn­málum þá sé ég ennþá sama mann­eskjan og ég hef alltaf verið. Það er eig­in­lega sjálf­stætt mark­mið”. 

Með harðan skráp

Katrín seg­ist ekki hafa orðið fyrir alvar­legu áreiti. Hún er vön að lifa sínu hefð­bundna lífi í Vest­ur­bænum án þess að þurfa líf­verði. 

„Það sleppur engin í minni stöðu alveg við áreiti. Oftast er þetta allt í góðu og aðeins fólk sem þarf að tala, þó það sé æst. Ég hef alveg lent í leið­in­legum hlutum en  kannski er ég búin að byggja upp harðan skráp. Hér heima hef ég ekki þurft að vera með líf­verði sem eru algjör for­rétt­indi. Alltaf þegar ég fer til útlanda í emb­ætt­is­er­indum eru settir á mig 2-5 líf­verðir. Það er örugg­lega erfitt að vera alltaf í þeirri stöðu að vera með fólk að fylgj­ast með sér. Það furðu­leg­asta sem ég hef lent í var þegar ég fór að hlaupa í Central Park New York. Það varð uppi fótur og fit þegar ég ákvað þetta. Svo hófst hlaupið. Þá var einn líf­vörður á undan mér og tveir á eftir mér. Svo ók bíll sem ók löt­ur­hægt með mér. Ég hugs­aði með mér hvert yrði nú kolefn­is­fót­spor þessa hlaupa­dags og allt þetta umstang vegna ein­hverrar konu sem eng­inn í Ameríku þekkti”. 

Ráðherraveikin

Stundum er talað um ráð­herra­veiki. Það hug­tak nær utan um þá dep­urð sem fylgir því að missa völd. Katrín kvíðir því alls ekki að missa ráð­herra­stól­inn og verða óbreyttur þing­maður. 

„Ég hef hætt að vera ráð­herra. Ég spurði Valgerði Sverr­is­dóttur, sem þá hafði verið ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, hvort allir hættu að vilja tala við mann þegar maður hættir. Hún sagði að það væri dálítið þannig en þá skipti mestu að vera mjög upp­tekin og þá gengi þetta yfir. Ég gerði nákvæm­lega þetta og eftir nokkrar vikur var ég komin í nýtt hlut­verk”. 

Katrín hefur haldið saman rík­is­stjórn þriggja ólíkra flokka. Til þess þarf vænt­an­lega klók­indi og lip­urð. Katrín er spurð um það hvernig stjórn­andi hún sé. Hvað er undir góð­legu yfir­bragð­inu?

„Ég get verið svo­lítil frenja. Það verður ekki af mér tekið. En ég hika ekki við að taka ákvarð­anir ef á þarf að halda. En ég er ekk­ert að stressa mig yfir ein­hverjum status. Einhvern tím­ann var mér sagt af fræð­ingi í stjórnun að ég væri jafn­ingja­stjórn­andi”. 

Hlustar á aðra

Fyrir 10 árum eða svo var óhugs­andi að stjórn­mála­öfl lengst til hægri og vinstri ynnu saman í rík­is­stjórn. Þótt ein­hverjir innan Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna hefðu átt sér þann draum þótti það vera frá­leitt. En svo gerð­ist það fyrir til­stilli Katrínar og hennar nán­ustu sam­starfs­konu, Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra. Katrín fellst á að það snú­ist um lip­urð að kom­ast í gegnum kjör­tíma­bil með þessi öfl inn­an­borðs. 

„Ég er til­búin að hlusta á aðra. Ég lít ekki í speg­il­inn á hverjum morgni þegar ég vakna og hugsa að ég hafi öll svörin. Ég er alveg til í að hlusta á aðra. Þó ég hafi mínar hug­sjónir sem ég byggi á mínum gildum þá veit ég að það eru ekki allir þar. Það skiptir mig máli að geta talað við það fólk. Það skiptir líka sam­fé­lagið máli að þetta fólk geti talað saman”. 

Katrín er brosmild kona. Meira að segja svo að hún hefur verið skömmuð fyrir að vera of glað­leg. Hún er spurð um lund­ar­farið. Verður hún aldrei reið. 

„Það fer ekki fram­hjá neinum þegar ég reið­ist. Ég er ekki pókerfeis. Mig dreymir samt um að vera þessi þögla sterka týpa sem eng­inn veit hvað er að hugsa. Það verður kannski seinna,” segir hún. 

Traust samstarf

Lykilinn að sam­starfi Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna er að finna í vin­áttu Katrínar ann­ars vegar og Illuga Gunn­ars­sonar og Bjarna Bene­dikts­sonar. Elstu menn muna að Illugi og Katrín voru saman með sjón­varps­þátt á þeim sál­uga Skjá­einum. Katrín fellst á þessa skýr­ingu og segir að traust ríki milli sín og Bjarna. 

„Það skiptir gríð­ar­legu máli í þessu sam­starfi að fólk treysti hvert öðru”. 

Hún við­ur­kennir að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið sé ekki ein­falt. 

„Það er flókið að vinna með ólíkum flokkum. Ég var áður í rík­is­stjórn með Sam­fylk­ing­unni en nú erum við með Sjálf­stæð­is­flokknum og Fram­sókn­ar­flokknum. Allar rík­is­stjórnir eru svo­lítið eins og mann­fræði­verk­efni. Þú þarft að skilja flokk sem er með ólíka menn­ingu. Maður þarf að átta sig á því hvernig maður tekur á málum”. 

Ekkert kosningabandalag

Ein­hverjir hafa haldið því á lofti að það sé kosn­inga­banda­lag á milli rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja. Katrín segir það af og frá. 

„Það er auð­vitað ekki kosn­inga­banda­lag. Það var á sínum tíma stór ákvörðun fyrir okkur að ganga til þessa sam­starfs. Ástæðan fyrir því var sú að við Svandís vorum í þeirri vinnu og bak­landið okkar, gras­rótin, var til í þetta vegna stjórn­ar­sátt­mál­ans. Fólk sá að þarna voru mörg góð mál sem við höfðum barist lengi fyrir og var til í að láta á þetta reyna. Áfram­hald sam­starfs­ins mun alltaf hanga á því hvað um semst og auð­vitað hvernig við komum út úr kosn­ingum. Við komum vel út síð­ast og núna verðum við að meta stöð­una eftir því hvað kemur upp úr köss­unum ”. 

Ein­hverjir töldu að það yrði póli­tískt sjálfs­víg fyrir VG, rót­tækan vinstri flokk, að ganga til sam­starfs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Vísað var til for­tíðar þar sem hver sam­starfs­flokk­ur­inn af öðrum visnaði upp í slíku sam­starfu. Annað virð­ist vera að koma á dag­inn. VG stendur ágæt­lega í könn­unum. 

„Ég tók við sem for­maður, snemma árs 2013 og leiddi hann í kosn­ingum þá um vorið eftir stjórn­ar­sam­starf með Sam­fylk­ingu. Þá töp­uðum við helm­ingi af okkar fylgi þannig að ég veit vel að maður fer ekki í stjórn­ar­sam­starf til að verða vin­sælastur í bekknum. Ég vona að við skilum þessu fylgi í höfn og er bjart­sýn á það og tel að fólk kunni alveg að meta það sem við höfum verið að gera”. 

For­sæt­is­ráð­herra­stóll­inn er eft­ir­sóttur. Lilja Alfreðs­dóttir mennta­mála­ráð­herra sagði í fjöl­miðlum að hún teldi að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn væri í lyk­il­stöðu til að leiða næstu rík­is­stjórn. Sigurður Ingi Jóhanns­son væri þannig í dauða­færi með að verða for­sæt­is­ráð­herra. Katrín hefur skiln­ing á þessu sjón­ar­mið og segir eðli­legt að flokkar horfi til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. 

„Við höfum talað skýrt og erum til­búin að leiða næstu rík­is­stjórn. Ég geri engar athuga­semdir við að við séum ekki ein um hit­una”. 

Núningur

Núningur hefur verið um heil­brigð­is­málin á milli stjórn­ar­flokk­anna. Þingmenn lengst til hægri hafa átt í úti­stöðum við Vinstri græna sem hafa viljað efla opin­bera hlut­ann af heil­brigð­is­kerf­inu. Hægri­menn hafa viljað efla einka­fram­takið. Átökin hafa staðið um rekstr­ar­form í heil­brigð­is­kerf­inu. 

„Þetta hefur ekki verið eðli­legt ástand þar sem við fengum heims­far­aldur á miðju kjör­tíma­bili. Þetta hefur verið algjört álags­próf á heil­brigð­is­kerfið. Svandís hefur staðið sig gríð­ar­lega vel í að benda á að við þurfum núna að horfa til þessa opin­bera hluta heil­brigð­is­kerf­is­ins. Það er ekk­ert laun­ung­ar­mál að það var löngu tíma­bært að styðja betur við heilsu­gæsl­una og spít­al­ann og heilsu­gæslu víða um land. Hún hefur gert það og aukið fram­lög og farið í að byggja nýjan spít­ala. Þá hefur hún farið í að lækka kostnað vegna sjúk­linga sem er risa­stórt vinstri jöfn­un­ar­mál. Svandís hefur skilað mjög góðu verki á kjör­tíma­bil­inu, þrátt fyrir allt sem hefur gengið á”. 

Ekki ESB

Aðild­ar­um­sókn að ESB er í sama frosti og hún var þegar Sam­fylk­ing og VG ákváðu að sækja um og setja málið í þjóð­ar­at­kvæði. Katrín var á meðal þeirra þing­manna VG sem studdu að sækja um aðild þótt þeir væru í raun­inni á móti því. Af hverju í ósköp­unum féllst hún á umsókn­ina? 

„Sjálf er ég þeirrar skoð­unar að við eigum ekki að sækja um aðild að ESB núna. En ég tók hins vegar þátt í því á sínum tíma að sækja um. Þá var sú umræða hátt uppi í sam­fé­lag­inu að þetta væri það mik­il­væg­asta að gera eftir hrun. Ég var þeirrar skoð­unar að þjóðin fengi ein­hvern samn­ing að kjósa um í þessu máli. Ég féllst á það þótt ég væri með var­ann á varð­andi aðild. Fyrir Sam­fylk­ing­una var þetta stóra málið í kosn­ing­unum. Í dag er ég á þeirri skoðun að okkur hafi farn­ast mjög vel utan Evr­ópu­sam­bands­ins”. 

Viðreisn hefur sett það má á odd­inn að þjóðin fái að greiða atkvæði um end­an­leg slit á umsókn­ar­ferl­inu eða fram­hald þess. 

„Áður en til þess kemur þurfum við að fá fram hvar meiri­hluti þings­ins stendur í þessu máli. Ég legg mjög mikið upp úr öfl­ugu sam­starfi við Evr­ópu­þjóðir og hef ræktað það sem for­sæt­is­ráð­herra. Ég er ekki á þeirri skoðun að það gagn­ist íslensku sam­fé­lagi að ganga í ESB,, hvað þá að ganga inn í eitt­hvert mynt­banda­lag”. 

Katrín segir að Sam­fylk­ing og VG hefðu betur spurt þjóð­ina strax árið 2009 hvort hefja ætti aðild­ar­við­ræður. Ef þing­meiri­hluti mynd­ist fyrir aðild­ar­um­sókn verði skyn­sam­legt að spyrja þjóð­ina áður en lengra yrði haldið. 

„Það verður ekki farið aftur af stað í þetta nema með umboði þings og þjóðar”. 

Katrín segir að fátækt sé áhyggju­efni í íslensku sam­fé­lagi. Þó hafi rík­is­stjórnin unnið vel að málum þeirra sem minnst mega sín. Hún nefnir hlut­deild­ar­lánin og bætt barna­bóta­kerfi. 

Fjár­magnstekju­skatt­ur­inn er næstur á dag­skrá sem jöfn­un­ar­tæki. Katrín er spurð hvort Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verði ekki tregur í taumi þar. Hún seg­ist ekki hafa spurt Sjálf­stæð­is­flokk­inn. 

Ráðherraveikin

Kenn­ingar eru uppi um að Sam­fylk­ingin sé komin vinstra megin við VG. Rót­tæknin hafi minnkað og flokk­ur­inn hafi færst nær miðj­unni og sé orð­inn umburð­ar­lynd­ari

„Við höfum ekki færst inn á miðj­una en það getur vel verið að við séum orðin umburð­ar­lynd­ari,” segir hún. 

Því er haldið fram að VG hafi mild­ast í afstöðu sinni gegn virkj­unum og fisk­eldi. Lilja Rafney Magn­ús­dóttir þing­maður VG í Norð­vest­ur­kjör­dæmi var til dæmis stuðn­ings­maður þeirrar umdeildu Hval­ár­virkj­unar í Árnes­hreppi og hefur sömu­leiðis staðið með fisk­eldi í sjó. 

Nei, við Hvalárvirkjun

„Hval­ár­virkjun er gott dæmi um að ramma­á­ætlun sem þingið sam­þykkir en snýst alltaf um sam­an­burð á virkj­ana­kostum. Síðan þegar virkj­unin er útfærð er hún orðin miklu stærri en hún var þegar þingið skip­aði henni í nýt­inga­flokk. Fólk var ekki alveg sam­mála um þessa virkjun í hreyf­ing­unni en ég vona að hún verði ekki að veru­leika. Ég hef rosa­lega sterk tengsl við þetta svæði af því mað­ur­inn minn er frá Svans­hóli í Bjarn­ar­firði á Ströndum. Þessi virkjun hefði ekki orðið til góðs fyrir þetta ein­staka svæði”. 

Innan VG eru skiptar skoð­anir á fisk­eldi í sjó. Þar er horft til meng­unar og erfða­blönd­unar. Katrín segir að hreyf­ingin sem slík sé á ekki móti fisk­eldi. 

„Við náðum því fram í stjórn­ar­sátt­mála að sett voru lög sem tryggja hvata til að færa fisk­eldi upp á land. Þá er tryggt að fisk­eldið sé byggt á eins góðum gögnum og hægt er og við viljum gæta ítr­ustu var­úðar. Ég veit að þetta er umdeilt í okkar hreyf­ingu en um leið er um að ræða mik­il­væga atvinnu­sköpun. Það er ein­kenni minnar hreyf­ingar að fólk er ófeimið við að takast á um hlut­ina”. 

VG glímdi lengi vel við innri átök. Frægt var með villi­kett­ina á sínum tíma þar sem hver höndin var upp á móti annarri. Við upp­haf kjör­tíma­bils­ins hætti tveir þing­menn í VG. Andrés Ingi Jónsson og Rósa Brynj­ólfs­dóttir gátu ekki hugsað sér að styðja rík­is­stjórn­ina. Katrín við­ur­kennir að það hafi verið ákveðið áfall. 

„Rósa var í hreyf­ing­unni lengi, allt frá árinu 2003. Við komum inn á svip­uðum tíma. En í dag er rosa­lega góður andi í hreyf­ing­unni en það er ekki bara mér að þakka. Við héldum lands­fund um síð­ustu helgi og þar fann maður þennan góða anda. Það er í raun mjög magnað hve góð stemm­ingin er. Ég hef trú á því að það sé hollt að virða allar skoð­anir. Hjá okkur hikar fólk ekki við að tala upp­hátt og greiða atkvæði gegn málum, jafn­vel þótt það sé bara einn á móti. Það skapar svo góða stemmn­ingu í fram­hald­inu þegar farið er að vinna úr málum og fólk fer ekki út í fýlu”. 

Katrín seg­ist ekki taka því illa þótt ein­hver sé ósam­mála. 

„Það hef ég lært af mér reynd­ara fólki að for­mað­ur­inn á ekki að taka því illa þótt ein­hver sé ósam­mála honum”. 

Mögnuð langamma

Skúli Thorodd­sen, þing­maður sýslu­maður og rit­stjóri var langafi Katrínar. Það gustaði vel um Skúla á ferli hans og deil­urnar um skokallað Skurðs­mál skóku sam­fé­lagið og kost­uðu hann emb­ættið á sínum tíma. 

Katrín seg­ist þekkja sögu langafa síns og ekki síður langömmu sinnar, Theodóru Thorodd­sen, sem hún hafi gert að fyr­ir­mynd sinni. 

„Hún var mögnuð kona sem eign­að­ist fjölda barna. Langafi minn dó snemma og hún varð ekkja. Þegar hún varð fimm­tug fór hún að yrkja og reykja og sást ekki borða annað en súkkulaði. Hún lifði svo fram á tíræð­is­aldur. Ég kynnt­ist henni auð­vitað ekki en mamma lýsti henni. Hún safn­aði stöðugt grjóti og bar inn á heim­ili sitt. Þessa áráttu hef ég líka. Ég er stöðugt með grjót í vas­anum sem ég set hér og þar um heim­ilið. Gunnar, mað­ur­inn minn, er stöðugt að taka þetta grjót og koma því niður í geymslu. Svo færi ég þetta upp aftur. Þetta hef ég frá langömmu”. 

Katrín á sér fleiri fyr­ir­myndir í líf­inu en langömmu sína. Hún er spurð um póli­tískar fyr­ir­myndir. 

„Það eru örugg­lega elli­merki að nú er ég dottin í það að lesa alls­konar ævi­sögur. Ég var að lesa ævi­sögu breska for­sæt­is­ráð­herr­ans Clement Attlee  sem var skammaður fyrir að vera umburð­ar­lyndur og mjúkur. Eigi að síður náði hann ótrú­legum árangri sem for­sæt­is­ráð­herra og byggði meðal annar upp NHS heil­brigð­is­kerfið. Hann fékk svo ekki að hætta þegar hann vildi og end­aði með magapínu sín sein­ustu ár í emb­ætti. Hér­lendis á ég margar fyr­ir­myndir. Þegar ég var að byrja í póli­tík horfði ég til Ingi­bjargar Sólrúnar Gísla­dóttur og Kol­brúnar Hall­dórs­dóttur, þess­arra flottu sterku kvenna. Svo horfði ég auð­vitað til leið­toga vinstri manna svo sem Stein­gríms J. Sig­fús­sonar og Svavars Gests­sonar. Svo studdi ég Ólaf Ragnar Grímsson á sínum tíma í for­seta­emb­ættið”. 

Aftursæti Steingríms

Katrín er arf­taki Stein­gríms J. sem for­maður. Stein­grímur stofn­aði VG á sínum tíma og var lengst af óum­deildur leið­togi. En þótt hann hætti sem for­maður þá sat hann áfram á þingi. Hvernig var að hafa fyrr­ver­andi for­mann í aft­ur­sæt­inu?

„Það höfðu margir rosa­legar áhyggjur af þessu og ég líka. Það er gaman að segja frá því. Ég hugs­aði með mér hvernig ég ætti að gera þetta. Nú væri hann búinn að vera aðal­karl­inn og ætl­aði svo bara að vera í vel­ferð­ar­nefnd Alþingis. En hann gerði þetta ótrú­lega vel og sam­starf okkar var gott sem fyrr”. 

Stein­grímur og Katrín eru gjör­ó­líkir stjórn­mála­menn. Hann var oft kjaft­for í þing­inu svo eftir var tekið. Katrín er aftir á móti prúð­mennskan upp­máluð. Hún er spurð um ólíkan stíl þeirra. 

„Jú, hann átti það til að vera stór­yrtur. Ég er bara alin þannig upp að ég á erfitt með stór­yrði. En við erum góðir vinir og ég fór meira að segja og heim­sótti hann í sumar. Það var hápunkt­ur­inn á sum­ar­leyfi drengj­anna minna að fá að vera með honum í sveit­inni. Hann er skemmti­legur og það er gaman að fara með honum um landið”. 

Grúppía Tony Blair

Katrín er spurð um tengsl hennar við pönk­hljóm­sveit­ina Tony Blair. Einhver hélt því fram að hún hefði verið hljóm­borðs­leik­ari, 

„Nei, þú hefur fengið rangar upp­lýs­ingar. Ég var grúppía hljóm­sveit­ar­innar Tony Blair. Ég var ekki í hlómsveit­inni en fylgdi henni. Næsta sem ég hef kom­ist því að vera í hljóm­sveit var þegar ég lék í mynd­bandi hjá Bang Gang”.  

Hvað hefur að mati for­sæt­is­ráð­herr­ans  tek­ist best hjá rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur? Katrín hugsar sig um og seg­ist vera heilt yfir ánægð. 

„Það að hafa lengt fæð­ing­ar­or­lofið, stytt vinnu­vik­una og þrepa­skipt tekju­skatt­inum eru allt risa­mál fyrir íslenskan almenn­ing”. 

Katrín reyndi að hreyfa við stjórn­ar­skrár­mál­inu. Hún lagði fram þing­manna­frum­varp en hafði ekki árangur sem erf­iði. 

„Ég kláraði ekki málið. Þetta var ekki rík­is­stjórn­ar­mál en ég reyndi að hreyfa við því máli. Stjórn­málin þurfa aðeins að velta þessu fyrir sér, ekki bara ég. Snemma í ferl­inu fékk ég þau skila­boð að sumir flokkar vildu ekk­ert gera nema það yrði nán­ast orð­réttar til­lögur stjórn­laga­ráðs. Það verður að segj­ast eins og er að það er tölu­verður minni­hluti sem vill fara í það verk­efni að ná þessum breyt­ingum fram í áföngum. Það eru mér von­brigði. Ég var að von­ast eftir breiðri sam­stöðu. Þar sem mál af þessum toga er sein­asta málið í gegnum þingið gefur það hvaða flokki sem er neit­un­ar­vald í gegnum mál­þóf. Ég sá ekki fyrir mér að það næð­ist sam­staða um ein­stakar greinar, alla­vega ekki þannig að það færi í gegnum þingið. Ég mun reyna að ná í gegn þeirri breyt­ingu að það megi breyta stjórn­ar­skrá á þriðja ári kjör­tíma­bils en það taki ekki gildi fyrr en eftir kosn­ingar. Það myndi aðeins lækka spennustigið hjá okkur stjórn­mála­mönnum í þessu máli. En ég missi ekk­ert móð­inn”. 

Katrín er úti­vist­ar­kona. Hún nýtur þess að hlaupa eða fara í fjall­göngur til að slaka á frá arga­þrasi stjórn­mál­anna. 

„Þegar maður eld­ist fer maður að finna meira fyrir því að maður er lík­ami líka. Svo les ég líka til að slaka á og er með fjöl­skyld­unni”. 

Það er alkunna að mikið álag fylgir því að vera stjórn­mála­maður í æðstu stöðum og fólk brennur gjarnan hratt upp. Hvernig er heilsa Katrínar. 

„Ég held að heilsan sé ansi góð. En ég hef alltaf verið með ofnæmi og asma. Ég hef aldrei verið þessi ímynd hreyst­innar. Fyrir mér er það stór­kost­legt afrek að hlaupa 10 kíló­metra þá líður mér eins og mara­þon­hlaupara. 

Meðvitaðir krakkar

Við rifjum upp göngu­ferð á Úlf­ars­fell á vegum Ferða­fé­lags Íslands. Illugi, sonur Katrínar, var með í för. Hann stoppar og spyr móður sína hvað hann eigi að gera við tyggjóið sitt. Hún réttir fram lófann og stingur því í vas­ann. Þetta er minn­is­stætt vegna þess að margir krakkar hefðu spýtt út úr sér tyggjó­inu en ekki hugsað um umhverfið. 

„Ég vona að ég ali þá vel upp. Drengirnir mínir þrír eru öfl­ugir og við ræðum stundum um póli­tík. Þeir hafa rosa­lega sterka sýn á umhverf­is­málin sem ég held reyndar að eigi við um marga krakka í dag”. 

Hvernig er verka­skipt­ing á heim­ili for­sæt­is­ráð­herr­ans. 

„Ég er svona átaks­verk­efn­is­konan sem þríf allt fyrir jólin. Þá verð ég alveg tjúlluð. En Gunnar er sá sem sér um þetta dag­lega”. 

Katrín er á hátindi fer­ils síns, aðeins 45 ára. 14 ár á þingi. Hvað ætlar hún að vera lengi í póli­tík og hvað tekur svo við. 

„Ég held áfram á meðan ég brenn fyrir því og ein­hver vill kjósa mig. Þegar ég hverf úr stjórn­mál­unum hverf ég aftur á vit bók­mennt­anna. Þá skrifa ég kannski bækur eða hjálpa öðrum við að skrifa eins og ég gerði áður en ég fór í stjórn­málin”. 

Viðtalið í heild sinni er á hlað­varp­inu Mann­líf­inu með Reyni Trausta­syni

Þú getur lesið við­talið við Katrínu for­sæt­is­ráð­herra í heild sinni hér í brak­andi fersku helg­ar­blaði Mannlífs eða flett blað­inu hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina