1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

5
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

6
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

7
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

8
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

9
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

10
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

Til baka

Anna Kristjáns kveður Tenerife

„Reikna fastlega með að ég eigi eftir að koma hingað aftur og aftur áður en yfir lýkur“

Anna Kristjánsdóttir
Anna KristjánsdóttirAnna flytur nú í Bryggjuhverfið í Reykjavík

Anna Kristjánsdóttir, vélstjóri og húmoristi, hefur kvatt Tenerife eftir tæplega sjö ára dvöl á eyjunni.

Í nýrri Facebook-færslu segir Anna frá kveðjustund sem vinahópur hennar hélt áður en hún heldur aftur til Íslands í dag.

„Við hittumst nokkur og kvöddumst í tilefni af því að ég er að yfirgefa Tenerife, flest sem búum hérna sem og nokkrir fastagestir á eyjunni og áttum góða stund saman. Við rifjuðum upp gamlar minningar, gjarnan frá Cóvið tímanum en einnig frá öðrum tímum og skemmtum okkur vel á Babylon,“ skrifar hún.

Anna segir árin á Tenerife hafa verið „yndislegan tíma“ þar sem hún hafi eignast fjölda vina og upplifað bæði gleði og sorg með fólkinu í kringum sig.

„Sum okkar fórum saman í ferðir um eyjuna, héldum afmæli saman, en við tókum einnig þátt í sorgarstundum eins og þegar Gummi á Barnum varð bráðkvaddur, síðar Guðni Már vinur okkar allra og ekki má gleyma Hallgrími sem lést af völdum krabbameins einungis rúmlega fimmtugur að aldri fyrir skömmu síðan,“ segir Anna meðal annars.

Þá nefnir hún sérstaklega þrjú gæludýr sem hún segir að muni standa upp úr í minningunni.

„Að mannfólkinu frátöldu eru þó þrjár persónur sem ég mun sakna öðrum fremur, en þar er um að ræða læðuna Knúsu sem hefur svo sannarlega ýmsa fjöruna sopið, en einnig glaðasta hunds í heimi hans Buddy og ekki má gleyma honum stórvini mínum Texas el Perró,“ skrifar hún.

Anna viðurkennir að hún muni sakna Tenerife mikið en segist þó sannfærð um að hún eigi eftir að snúa aftur til eyjunnar síðar.

„Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife og reikna fastlega með að ég eigi eftir að koma hingað aftur og aftur áður en yfir lýkur enda er Tenerife eins og Paradís á jörðu,“ segir hún.

Anna segist koma til Íslands nærri miðnætti í kvöld og hyggst hún verja næstu dögum í ýmis erindi og að venjast lífinu á ný í Reykjavík eftir nærri sjö ára dvöl í paradís.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

„Frábært félag, það þarf bara að hrista aðeins upp í hlutunum.“
Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Nú er haustið heldur betur komið
Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins
Myndir
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

Stefán má loksins gefa blóð aftur
Fólk

Stefán má loksins gefa blóð aftur

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum
Myndir
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

Loka auglýsingu