1
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

2
Heimur

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla

3
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

4
Innlent

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði

5
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

6
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

7
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

8
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

9
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

10
Innlent

Konan er fundin

Til baka

Ármann Leifsson kjörinn forseti Röskvu

„Ég vil skemmtilega Röskvu sem heldur góðu jafnvægi milli stemmingar og málefna“

IMG_1671
RöskvaNýkjörin stjórn Röskvu.
Mynd: Aðsend

Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, hélt sinn árlega aðalfund í gærkvöldi, miðvikudagskvöldið 22. apríl, í safnaðarheimili Neskirkju. Þar var kjörin ný stjórn hreyfingarinnar til eins árs og var Ármann Leifsson, 22 ára kennaranemi, kjörinn nýr forseti Röskvu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Röskvu.

Fram kemur í tilkynningunni að Ármann hafi verið virkur í félagslífi og stúdentapólitík um nokkurt skeið og hafi meðal annars verið kosningastjóri Röskvu í nýafstöðnum kosningum til Stúdentaráðs HÍ. Segist hann ætla að efla samheldni innan hreyfingarinnar og tryggja að Röskva haldi áfram að vera skýr rödd stúdenta innan og utan háskólans.

„Ég vil skemmtilega Röskvu sem heldur góðu jafnvægi milli stemmingar og málefna. Við ætlum að halda áfram að vera valdeflandi vettvangur fyrir öll þau sem vilja leggja sitt af mörkum í baráttunni fyrir jöfnuði og bættri stöðu stúdenta,“ segir Ármann.

Þá var María Björk Stefánsdóttir, 21 árs efnaverkfræðinemi, kjörin oddviti Röskvu í Stúdentaráði. Samkvæmt fréttatilkynningunni leggur María áherslu á að Röskva haldi áfram að vera hreyfing allra stúdenta og halda áfram að sinna raunverulegri hagsmunabaráttu

„Jafnrétti til náms er og verður rauði þráðurinn í allri stefnu Röskvu – það er kjarninn í því sem við stöndum fyrir og það sem sameinar okkur,“ segir María.

Ný stjórn Röskvu tekur nú við keflinu af fráfarandi stjórn og segir í fréttatilkynningunni að hún stefni á kraftmikið starfsár með áherslu á málefnastarf, samstöðu og áframhaldandi baráttu fyrir réttindum stúdenta. Maggi Snorra, fyrrum stúdentaráðsliði Röskvu, var heiðraður á fundinum með blómvönd fyrir hans framtak í hagsmunabaráttu stúdenta og fyrir störf hans í grasrót félagsins.

Nýkjörin stjórn Röskvu:

● Ármann Leifsson, forseti

● Soffía Svanhvít Árnadóttir, varaforseti

● Hekla Jónsdóttir, ritari

● Helgi James Price, gjaldkeri

● Valeria Bulatova, ritstýra

● Auður Aþena Einarsdóttir, markaðsstýra

● Ríkharður Daði Ólafsson, skemmtanastjóri

● Þorbjörg Edda Valdimarsdóttir, kynningarstýra

● Katla Ólafsdóttir, kosningastýra

● Abdullah Arif, alþjóðafulltrúi

● Styrmir Hallsson, meistarafulltrúi

● Jón Karl Ngoshanthiah Karlsson, meðstjórnandi

Á myndinni má sjá eftirfarandi stjórnarmeðlimi:

Efri: Styrmir Hallsson, Ríkharður Daði Ólafsson, Helgi James Price og Jón Karl Ngoshanthiah Karlsson. Neðri: Auður Aþena Einarsdóttir, Hekla Jónsdóttir, Valeria Bulatova, María Björk Stefánsdóttir, Ármann Leifsson, Soffía Svanhvít Árnadóttir, Þorbjörg Edda Valdimarsdóttir og Katla Ólafsdóttir. 

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Konan er fundin
Innlent

Konan er fundin

Fólk beðið um að fylgjast vel með
Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé
Heimur

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu
Heimur

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík
Fólk

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ
Heimur

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð
Heimur

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Söguleg tímamót í Marokkó
Heimur

Söguleg tímamót í Marokkó

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Innlent

Konan er fundin
Innlent

Konan er fundin

Fólk beðið um að fylgjast vel með
Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar
Innlent

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Loka auglýsingu