Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Bandarísk stjórnvöld þrýsta á íslenskt fyrirtæki vegna gagnaleka

„Við tökum allar öryggisógnir gegn starfs­mönnum okkar og emb­ætt­is­mönnum alvar­lega“

Donald Trump með Kristrúnu Frostadóttur og Þorgerði Katrínu
Donald Trump með Kristrúnu Frosta­dóttur og Þorgerði Katrínu Mynd: Samfylkingin

Banda­ríska heima­varn­ar­ráðu­neytið hefur farið fram á að íslenska hýs­ing­ar­fyr­ir­tækið FlokiNET fjar­lægi eða tak­marki aðgang að gögnum um tugi þús­unda starfs­manna ráðu­neyt­is­ins. FlokiNET hefur hafnað kröf­unni.

Reuters greinir frá þessu en beiðnin var send fyr­ir­tæk­inu í gær. Þar kemur fram að gagna­grunn­ur­inn geti stefnt meira en 40 þús­und nafn­greindum ein­stak­lingum í hættu á áreitni, eft­ir­för og jafn­vel lík­am­legu ofbeldi.

Beiðnin var send af net­ör­ygg­is­fyr­ir­tæk­inu ZeroFox, sem hefur heim­ild frá banda­rísku útlend­inga og toll­gæslu­stofn­un­inni ICE til að óska eftir því að til­tekið efni verði fjar­lægt af net­inu.

Kolja Weber, fram­kvæmda­stjóri FlokiNET, sagði í sam­tali við Reuters að fyr­ir­tækið hygð­ist ekki fjar­lægja gögnin. Hann sagði upp­lýs­ing­arnar meðal ann­ars inni­halda vinnu­stað­föng og vinnu­síma­númer opin­berra starfs­manna en ekki per­sónu­leg heim­il­is­föng eða einka­síma­númer þeirra.

Tals­maður banda­ríska heima­varn­ar­ráðu­neyt­is­ins sagði ráðu­neytið vita af mögu­legum gagna­leka og unnið væri að því að bregð­ast hratt við mál­inu.

„Við tökum allar öryggisógnir gegn starfs­mönnum okkar og emb­ætt­is­mönnum alvar­lega og munum vinna að því að tryggja að þeir njóti við­eig­andi verndar,“ sagði tals­mað­ur­inn.

Gagn­sæ­is­sam­tökin Distri­buted Denial of Secrets, DDoSecrets, birtu á mið­viku­dag upp­lýs­ingar um meira en 40 þús­und starfs­menn heima­varn­ar­ráðu­neyt­is­ins. Samhliða var birtur sér­stakur leit­an­legur gagna­grunnur. Gagna­grunn­ur­inn varð tíma­bundið óað­gengi­legur á fimmtu­dag en birt­ist skömmu síðar aftur undir öðru léni.

Hópur sem kallar sig Depart­ment of Peace hefur lýst yfir ábyrgð á því að hafa aflað gagn­anna. Hópurinn sagði til­gang birt­ing­ar­innar meðal ann­ars vera að auð­velda aðgerðir sem gætu tak­markað það sem hann telur skað­leg áhrif starf­semi heima­varn­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Málið kemur á sama tíma og banda­rísk stjórn­völd hafa sætt gagn­rýni frá tals­mönnum per­sónu­verndar vegna notk­unar heima­varn­ar­ráðu­neyt­is­ins á per­sónu­upp­lýs­ingum úr gagna­grunnum ann­arra rík­is­stofn­ana við fram­kvæmd útlend­inga­eft­ir­lits.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum