1
Minning

Flosi Kristinsson er fallinn frá

2
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

3
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir að losa þig við úr geymslunni

4
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

5
Innlent

Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu

6
Fólk

Selja höll í Garðabæ með þreföldum bílskúr

7
Innlent

Íslandsferð Hönnuh tók óvænta stefnu þegar hún var handtekin

8
Heimur

Borgaði 30 dali fyrir málverk sem reyndist gullnáma

9
Innlent

Reyndi að lauma sér til Íslands með fölsuðu skilríki

10
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Til baka

BIC sér grænt í kannabisbylgjunni

Willie Nelson og Snoop Dogg slást með í för

BIC kveikjari
BIC kveikjariÞekkja margir þennan
Mynd: Sun Ladder/Wikipedia

Franski framleiðandinn BIC hyggst sækja af auknum krafti inn á markað fyrir kannabisneytendur í Bandaríkjunum í þeirri von að auka sölu á kveikjurum fyrirtækisins. BIC er þekktast fyrir einnota penna, rakvélar og kveikjara.

Fyrirtækið hefur meðal annars endurvakið auglýsingaslagorðið „Flick my Bic“, sem naut mikilla vinsælda á áttunda áratug síðustu aldar. Markmiðið er að höfða sérstaklega til ört stækkandi hóps bandarískra kannabisneytenda.

Rob Versloot, forstjóri BIC, segir þróunina í Bandaríkjunum hafa verið hraða. Þótt kannabis sé enn ólöglegt samkvæmt alríkislögum hafa flest ríki Bandaríkjanna heimilað notkun þess í lækningaskyni og rúmlega 20 ríki hafa lögleitt neyslu í afþreyingarskyni.

Versloot, sem er frá Amsterdam, telur veruleg sóknarfæri felast í þessari þróun. Hann tók við stjórn BIC fyrir rúmu ári og hefur það hlutverk að snúa við rekstri fyrirtækisins eftir nokkur ár þar sem sala hefur verið undir væntingum.

Minnkandi tóbaksneysla hefur meðal annars haft áhrif á eftirspurn eftir kveikjurum. BIC hefur því reynt að höfða til nýrra viðskiptavina og fengið þekkta kannabisneytendur á borð við tónlistarmennina Willie Nelson og Snoop Dogg, auk sjónvarpsstjörnunnar Mörthu Stewart, til að koma fram í auglýsingum fyrir kveikjara.

BIC hefur hingað til lagt mikla áherslu á sölu í stórum matvöru- og verslunarkeðjum í Bandaríkjunum. Stjórnendur sjá nú tækifæri í 15 til 20 þúsund sérverslunum sem selja vörur tengdar reykingum og kannabisneyslu.

Kveikjarar skiluðu um þriðjungi af heildarsölu BIC á fyrri helmingi ársins. Heildarsala fyrirtækisins dróst þó saman um 3,5 prósent og nam rúmum einum milljarði evra.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu