Bílaáhrifavaldurinn James Wehr lést í alvarlegu umferðarslysi í Irvine í Kaliforníu aðfaranótt sunnudags. Wehr var 27 ára gamall.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu og bandarískra fjölmiðla ók Wehr McLaren-bíl á miklum hraða þegar hann missti stjórn á henni. Bifreiðin hafnaði fyrst á gangstéttarbrún og síðan á tré áður en eldur kom upp í henni.
Lögreglan í Irvine og slökkvilið Orange-sýslu voru kölluð á vettvang vegna tilkynningar um bifreið í ljósum logum. Þegar slökkviliðsmönnum hafði tekist að ráða niðurlögum eldsins fundust Wehr og farþegi bifreiðarinnar látnir inni í henni. Ekki hefur verið greint frá nafni farþegans.
Wehr var þekktur innan bílasamfélagsins og rak South OC Cars and Coffee ásamt föður sínum, Simon Wehr. Fyrirtækið greindi frá andláti hans á Instagram og birti jafnframt mynd af feðgunum saman.
Eiginkona Wehr, Emma, minntist hans einnig með tilfinningaþrunginni færslu á samfélagsmiðlum. Þar lýsti hún honum sem einum besta einstaklingi sem hún hefði kynnst.
Lögregla rannsakar tildrög slyssins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir