1
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

2
Heimur

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla

3
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

4
Innlent

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði

5
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

6
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

7
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

8
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

9
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

10
Innlent

Konan er fundin

Til baka

Borgin styrkir ungt fólk vegna loftslagsváar

Félagsmiðstöð og verkfræðingar fengu styrki

loftlagssjóður
Heiða Björg Hilmisdóttir og Dóra Björt Guðjónsdóttir ásamt viðurkenningarhöfumFjölbraut í Ármúla fær fatastyrk
Mynd: Félag Sameinuðu þjóðanna

Alls sex hópar og samtök ungs fólks hlutu styrki til átta metnaðarfullra verkefna þegar úthlutað var úr loftslagssjóði ungs fólks í Höfða í gær en greint er frá þessu á vef Reykjavíkurborgar.

Borgin segir að verkefnin séu öll hönnuð og framkvæmd af ungu fólki með það að markmiði að takast á við loftslagsvána á fjölbreyttan og skapandi hátt. Sjóðurinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Bloomberg Philanthropies og er heildarupphæð styrkjanna 5.520.000 krónur.

Markmið Loftslagssjóðsins er að virkja ungmenni til að leita lausna á loftslagsvandanum og styðja við frumkvæði þeirra sem miða að sjálfbærari framtíð. Skilyrði fyrir úthlutun eru að verkefnin séu hönnuð og framkvæmd af ungu fólki á aldrinum 15–24 ára og tengist loftslagsáætlun Reykjavíkur.

Verkefnin sem fengu styrk eru eftirfarandi:

Fjölbrautaskólinn við Ármúla – Saumað gegn sóun
Vitundarvakning um fatasóun með pop-up fataviðgerðarsmiðjum, fataskiptimarkaði, jafningjafræðslu og hönnunarkeppni þar sem nemendur umbreyta notuðum fatnaði.

Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík – Kolefnisbinding með þararæktun
Rannsóknarverkefni sem snýst um að finna bestu aðferðina og staðsetningu fyrir þararæktun á Íslandi með það að markmiði að binda kolefni og vernda sjávarvistkerfi.

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi ásamt nemendum úr Ármúla og Menntaskólanum við Sund – Draumur um Jökul
Fræðsla um áhrif loftslagsbreytinga á jökla. Nemendur heimsækja jökul og framleiða stutt fræðslumyndband til miðlunar.

Félagsmiðstöðin Gleðibankinn – Stuttmyndahátíð um loftslagsmál
Unglingar úr þremur félagsmiðstöðvum búa til stuttmyndir um loftslagsmál sem sýndar verða á hátíð í kvikmyndahúsi.

Ungmennaráð Bandalags íslenskra skáta – Tré og tjútt í Esjuhlíðum
Viðburður þar sem tré eru gróðursett í Esjuhlíðum ásamt útilegu, fræðslu og gerð kynningarefnis um náttúru og gróðursetningu.

Ungir umhverfissinnar – þrjú verkefni:

  • ÁLVER KÁLVER – Hakkaþon um orkulausnir og nýtingu raforku á sjálfbæran hátt.
  • Be a good tourist – Fræðsluefni fyrir ferðamenn um sjálfbærari ferðalög og ábyrgð í náttúru Íslands.
  • Fræðsla og tínsla unga fólksins á villtum jurtum – Fræðsla um jurtir í nærumhverfi Reykjavíkur til að efla tengsl við náttúruna og hvetja til sjálfbærrar neyslu.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Konan er fundin
Innlent

Konan er fundin

Fólk beðið um að fylgjast vel með
Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé
Heimur

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu
Heimur

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík
Fólk

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ
Heimur

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð
Heimur

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Söguleg tímamót í Marokkó
Heimur

Söguleg tímamót í Marokkó

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Innlent

Konan er fundin
Innlent

Konan er fundin

Fólk beðið um að fylgjast vel með
Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar
Innlent

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Loka auglýsingu