1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

4
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

5
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

6
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

7
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

8
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

9
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

10
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Til baka

Dánarorsök Buffy-stjörnu staðfest

Hafði kvartað yfir verkjum en neitaði að fara til læknis

Nicholas Brendon
Nicholas BrendonBrendon var aðeins 54 ára er hann lést
Mynd: ARAYA DOHENY / GETTY IMAGES VIA AFP

Nicholas Brendon, sem var þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Buffy the Vampire Slayer, lést af völdum hjarta- og æðasjúkdóms, að því er TMZ greinir frá. Dauði hans hefur verið úrskurðaður af náttúrulegum orsökum.

Leikarinn fannst látinn í sófa á heimili í Putnam-sýslu í Indiana 20. mars, samkvæmt skýrslu frá réttarlækni. Dánarorsök var æðakölkun og háþrýstingstengdur hjarta- og æðasjúkdómur, sem stafar af fitusöfnun í slagæðum. Hann var með um 90% þrengingu í hægri kransæð.

Fjölskylda hans sagði að þrátt fyrir fyrri erfiðleika hefði hann verið í lyfjameðferð og undir eftirliti vegna sjúkdómsins og verið bjartsýnn á framtíðina þegar hann lést.

Einnig kom fram að hann hafði áður glímt við hjartavandamál; hann fékk hjartaáfall árið 2023 og greindist síðar með meðfæddan hjartagalla.

Hann var 54 ára þegar hann lést. Bráð lungnabólga og fyrra hjartaáfall voru einnig talin hafa átt þátt í dauða hans. Vinkona hans hafði dvalið hjá honum til að aðstoða hann vegna versnandi heilsu.

Vinkonan sagði að hún hefði síðast séð hann um klukkan 5 að morgni daginn sem hann lést og heyrt hann hósta. Um klukkan átta fann hún hann meðvitundarlausan og hringdi strax í lögreglu. Hún sagði einnig að hann hefði kvartað yfir verkjum í brjósti en neitað að fara á sjúkrahús og tekið lausasölulyf í staðinn.

Brendon var lengi reykingamaður og hafði einnig nýlega gengist undir bakaðgerð, sem gerði hann hikandi við að leita sér frekari læknisaðstoðar.

Samkvæmt skýrslunni sýna eftirlitsmyndavélar að hann hafi verið mikið að hósta og haft hásan rödd áður en hann lést.

Brendon lék eitt aðalhlutverka í Buffy the Vampire Slayer ásamt Söruh Michelle Gellar, þar sem hann fór með hlutverk Xander Harris í öllum sjö þáttaröðunum.

Eftir andlát hans sagði fjölskylda hans að hann hefði nýlega fundið ástríðu fyrir myndlist og málun.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu