1
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

2
Sport

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

3
Heimur

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford

4
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

5
Innlent

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

6
Innlent

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið

7
Innlent

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

8
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

9
Pólitík

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu

10
Heimur

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú

Til baka

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn

„Vonum það besta fyrir Dimmu kló.“

Jóhann Helgi og Dimma
Jóhann Helgi og DimmaDimma með stjúppabba sínum
Mynd: Víkingur

Hrafninn Dimma, sem hefur notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum undanfarin ár, hefur verið horfin í nærri viku eftir að annar hrafn réðst að henni og hrakti hana af svæði sínu í Heiðmörk. Þetta kemur fram í nýrri Facebook-færslu Jóhann Helgi Hlöðversson.

Að sögn Jóhanns varð árásin fyrir um viku síðan þegar yfirgangssamur hrafn réðst ítrekað að Dimmu og rak hana burt.

„Ókunnugi hrafninn fór svo að gera sig heimakominn og tók upp á því að sitja uppi á þaki íbúðarhússins eins og þetta væri óðal hans,“ skrifar Jóhann.

Dimma er sex ára gömul og hefur alist upp í Heiðmörk. Fyrstu árin dvaldi hún í búri við heimili fjölskyldunnar, en fékk daglega að fljúga frjáls. Á nóttunni sneri hún aftur í búrið.

Jóhann Helgi og Dimma
Mynd: Víkingur

Jóhann og eiginkona hans, Margrét, fluttu til Hveragerðis síðasta haust og ákváðu þá að gefa Dimmu fullt frelsi í skóginum þar sem hún hafði alist upp.

Hann segir að bæði hann og stjúpfaðir hans, Reynir, hafi heimsótt Dimmu reglulega með matargjafir.

„Dimma var alsæl með þetta fyrirkomulag og glöð að sjá pabba sinn þegar hann birtist í sínum reglulegu heimsóknum,“ skrifar hann.

Hefur áður týnst

Þetta er í þriðja sinn á sex árum sem Dimma hverfur af sínu svæði. Fyrr í þessum mánuði fannst hún í garði hjá fólki í Grafarvogur þar sem henni var gefið bæði vatn og matur.

Jóhann bendir á að hrafnar séu mjög svæðisbundnir fuglar og verji óðul sín af mikilli hörku, sérstaklega á varptíma.

Hann segir jafnframt að hrafnar séu afar greindir og geti ferðast langar leiðir ef þeir missa fótfestu á sínu gamla svæði.

Jóhann Helgi skrifar: „Hrafnar eru mjög svæðisbundnir fuglar og verja óðul sín af mikilli hörku, sérstaklega á varptíma. Það er því alls ekki útilokað að Dimma hafi verið hrakin langt frá sínu svæði af sterkari eða árásargjarnari fugli. Hrafnar eru jafnframt greindir og minnugir fuglar sem geta ferðast langar vegalengdir og stundum haldið sig tímabundið á nýjum svæðum ef þeir missa fótfestu á sínu gamla. Það gæti því skýrt af hverju hún hefur ekki enn snúið aftur.“

Nú skoðar Jóhann möguleikann á að láta GPS-merkja Dimmu til að auðveldara verði að fylgjast með henni í framtíðinni.

Dimma hefur eignast stóran hóp aðdáenda á Íslandi og hafa myndbönd af henni oft fengið yfir 100 þúsund áhorf á samfélagsmiðlum, að sögn Jóhanns Helga.

Jóhann biðlar til fólks að hafa augun opin eftir Dimmu.

„Ef einhverjir sjá Dimmulegan hrafn í návígi þá má hinn sami gjarnan lauma að honum bita og jafnvel vatni og láta mig vita,“ skrifar hann.

Að lokum segir hann að þrátt fyrir allt sé Dimma hluti af náttúrunni.

„Auðvitað er Dimma bara fugl og partur af náttúrunni og allt hefur sinn gang. Munum að Guð launi fyrir hrafninn og vonum það besta fyrir Dimmu kló.“

Með færslunni birti Jóhann Helgi myndskeið af þeim hrafni sem talinn er hafa hrakið Dimmu á brott.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Páll og Selma Eir eiga von á dreng
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

„Lítill gaur í bumbu“
Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga
Myndband
Sport

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið
Innlent

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif
Viðtal
Stjórnandinn

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu
Pólitík

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag
Innlent

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú
Heimur

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford
Heimur

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu
Innlent

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni
Myndir
Heimur

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni

Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ferðamálastofa fundaði um öryggi Stuðlagils
Stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru
Myndband
Landið

Stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu
Landið

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu

Loka auglýsingu