1
Innlent

„Aumingi sendir frá sér yfirlýsingu til fjölmiðla“

2
Innlent

Stefán Einar blæs lífi í samsæriskenningu

3
Fólk

Bubbi lýsir yfir andláti miðborgarinnar

4
Fólk

„Vottar Jehóva reyndu að drepa mig”

5
Peningar

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum

6
Innlent

„Þetta er svaka adrenalínsjokk“

7
Innlent

Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu

8
Pólitík

Þórdís Kolbrún gerð að sendiherra

9
Heimur

Þrír látnir eftir bruna á Tenerife

10
Innlent

Albanskur aðkomumaður ákærður á Akureyri

Til baka

DNA spilaði lykilhlutverk í nauðgunarmáli

Landsréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Austurlands yfir Ion Imanol Franco Costa.

Landsréttur
LandsrétturLandsréttur staðfesti dóminn yfir Spánverjanum
Mynd: Víkingur

Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Austurlands yfir Ion Imanol Franco Costa, rúmlega þrítugum spænskum ríkisborgara, sem hlaut tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir nauðgun á hótelherbergi á Austurlandi í desember 2023. Costa var sakfelldur á grundvelli DNA-rannsókna. Austurfrétt sagði frá dóminum.

Málið átti sér stað eftir jólahlaðborð á austfirsku hóteli þar sem brotaþoli var gestur ásamt vinkonu sinni, sem dvaldi þar á vegum vinnustaðar síns. Mikil ölvun var á staðnum og fékk konan aðstoð við að komast upp á herbergi, þar sem hún lagðist til svefns.

Samkvæmt dómnum var nokkur umgangur um herbergið eftir borðhaldið, fólk kom og fór til að spjalla, hlusta á tónlist og drekka. Vitni staðfestu þó að konan hefði sofið fast og ekki tekið þátt í samskiptum á herberginu.

Konan vaknaði eftir miðnætti þegar ókunnugur dökkhærður karlmaður var að brjóta á henni kynferðislega. Hún sagðist hafa frosið af ótta. Maðurinn yfirgaf herbergið, en kom aftur stuttu síðar. Þá hélt konan fast um sængina og lokaði sig inn á baðherbergi þegar hann fór aftur, þar sem hún kallaði eftir hjálp.

DNA-sýni leiddu til handtöku

Lögregla hóf þegar rannsókn og tók DNA-sýni úr níu einstaklingum á staðnum. Rannsókn á laki úr rúminu sýndi yfir tíu sæðisbletti, þar á meðal stórar flekkjamyndanir. Í maí 2024 bárust niðurstöður DNA-greiningar frá Svíþjóð sem tengdu Costa ótvírætt við sæðisblettina. Hann var handtekinn en varið úrskurðaður í farbann eftir yfirheyrslu.

Costa hélt því fram að vinkona brotaþola hefði fróað honum stuttlega og að nokkrir dropar af sæði hefðu borist í lakið án þess að hann hefði haft sáðlát. Vitnisburður hennar og annarra vitna gekk þvert á þær skýringar. Costa hélt jafnframt fram að sæðið hefði getað farið á hönd hans og þaðan á lakið eða í rannsóknarferlinu, en sérfræðingar töldu þær skýringar ólíklegar.

Dómurinn óskilorðsbundinn

Í dómi Héraðsdóms kom fram að brotið væri alvarlegt, brotavilji einbeittur og að Costa ætti sér engar málsbætur. Landsréttur tók undir þessi sjónarmið og taldi frásögn konunnar trúverðuga og skýringar Costa ólíklegar.

Landsréttur staðfesti því tveggja ára óskilorðsbundinn fangelsisdóm. Hins vegar var miskabætur lækkaðar úr 2,2 milljónum króna í tvær milljónir. Costa þarf auk þess að greiða 2,2 milljónir króna í áfrýjunarkostnað, auk þeirra 5,3 milljóna sem hann var áður dæmdur til að greiða í sakarkostnað.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu
Heimur

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu

„Í hreinskilni sagt er þetta komið gott.“
Telja skotárásina á pýramídanum hafa verið skipulagða
Heimur

Telja skotárásina á pýramídanum hafa verið skipulagða

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal
Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku
Heimur

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola
Innlent

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola

Svíar sektaðir eftir landsleik við Pólland
Sport

Svíar sektaðir eftir landsleik við Pólland

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu
Innlent

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu

Húsleit gerð vegna „hinsegin áróðurs“
Heimur

Húsleit gerð vegna „hinsegin áróðurs“

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum
Peningar

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu
Landið

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni
Innlent

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni

Laufey sló í gegn á frumsýningu
Myndir
Fólk

Laufey sló í gegn á frumsýningu

Slysasprenging í skriðdreka drap hermenn
Heimur

Slysasprenging í skriðdreka drap hermenn

Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal
Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal

„Við ætlum okkur að byggja eitthvað miklu meira en bara eitthvað hús.“
Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu
Innlent

Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola
Innlent

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu
Innlent

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni
Innlent

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni

Íslenskri konu ekki gerð refsing fyrir að beita lögreglumann ofbeldi
Innlent

Íslenskri konu ekki gerð refsing fyrir að beita lögreglumann ofbeldi

Loka auglýsingu