Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

„Björn var einn sannasti heims­borgari og menningar­maður sem ég hef kynnst.“

Egill Helgason
Egill Helgason Egill syrgir vin sinn

Fjölmiðla­maðurinn Egill Helgason minnist vinar síns, arkitektsins Björns Ólafs, sem lést í hita­bylgjunni miklu í París á dögunum. Í Facebook-færslu sem Egill birti í morgun, segir hann að Björn hafi verið einn mesti heims­borgari og menningar­maður sem hann hafi kynnst.

„Vinur minn Björn Ólafs arkitekt andaðist í hitunum miklu í París. Hann verður kvaddur við athöfn í París í dag,“ skrifar Egill.

Hann segir Björn hafa búið í París frá því seint á sjötta áratugnum og þekkt borgina betur en líklega nokkur annar Íslend­ingur.

„Björn var einn sannasti heims­borgari og menningar­maður sem ég hef kynnst. Hann vann að verkefnum í bygginga­list út um víða veröld og ferðaðist til ótal landa. Hann bjó í París, þekkti hvern krók og kima, og var ákaflega vel heima í menningar­lífi borgarinnar.“

Egill segist lengi hafa ætlað að gera sjónvarps­þætti um París með Birni sem leið­sögumanni, en að það hafi aldrei orðið að veruleika.

„Ég hefði viljað gera langa þáttaröð um París með Birni, ganga um götur og hverfi – nú sé ég eftir því að það hafi ekki gerst.“

Þeir kynntust um síðustu aldamót og hittust reglulega, bæði á Íslandi og í París.

Egill rifjar einnig upp glæsi­legan feril Björns sem arkitekts og nefnir meðal annars Sjálands­hverfið í Garðabæ, Bryggju­hverfið í Grafar­vogi og raðhúsin við Látra­strönd á Seltjarnarnesi, auk fjölmargra verkefna erlendis, meðal annars í París, Kaliforníu og Egypta­landi.

Færslunni lýkur hann með hlýjum kveðju­orðum til vinar síns.

„Við fjöl­skyldan kveðjum kæran vin með söknuði. Það verður öðruvísi að koma til Parísar þegar Björn er ekki þar til að spjalla við okkur og veita leiðsögn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH 299 sökk.

Séra Hjalti Þorkelsson er fallinn frá

„Guðjón var með ótrúlega áru og persónu­töfra“

Guðjón Þórðarson er fallinn frá