1
Innlent

Árni segir „útúrspíttaða Íslendinga“ hafa ráðist að sér við Mokka

2
Minning

Hallgrímur Jónasson er fallinn frá

3
Landið

Yrðlingur dregur að fjölda ferðamanna

4
Fólk

Gamaldags en notalegt hús í Mosfellsbæ til sölu

5
Innlent

Kona Hugleiks Dagssonar var rænd

6
Heimur

Gengu í takt á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna með hvítar grímur

7
Innlent

Fékk vinagreiða hjá almannatengli

8
Innlent

Íslendingar í stóru alþjóðlegu verkefni

9
Innlent

Eftirlýstur maður handtekinn

10
Menning

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“

Til baka

Eiríkur skilur ekki umræðuna um framhaldsskólana

„Þetta er augljóslega eingöngu heimildarákvæði“

Eiríkur Rögnvaldsson
Eiríkur RögnvaldssonEiríkur botnar ekkert í gagnrýninni
Mynd: Facebook

Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, segist ekki skilja þá andstöðu sem nýtt ákvæði í lögum um framhaldsskóla hefur mætt. Í færslu á Facebook hafnar hann því að ákvæðið feli í sér minni kröfur til nemenda eða svokallaða „lækkun á rá“.

„Ég botna ekki í þeirri andstöðu sem nýtt ákvæði í lögum um framhaldsskóla hefur mætt. Því hefur jafnvel verið haldið fram að með því sé verið að minnka kröfur, „lækka rána“ eins og það er kallað. Mér er ómögulegt að sjá nokkuð sem bendi til þess,“ skrifar Eiríkur.

Hann bendir á að ákvæðið sé einfaldlega heimildarákvæði og vitnar orðrétt í texta laganna:

„Við ákvörðun um innritun nemanda er heimilt að líta til sjónarmiða sem tengjast nemandanum, þ.m.t. námsárangurs í grunnskóla og annarra upplýsinga sem nemandinn lætur skólanum í té, og sjónarmiða sem tengjast skólasamfélagi viðkomandi skóla, þ.m.t. sem miða að því að auka fjölbreytni í nemendahópnum.“

Að mati Eiríks felur þetta ekki í sér neina skyldu heldur einungis heimild, líkt og hafi gilt í reynd um árabil. „Þetta er augljóslega eingöngu heimildarákvæði. enda ber hver skóli ábyrgð á innritun sinna nemenda eins og verið hefur,“ skrifar hann.

Hann segir jafnframt að með ákvæðinu sé einfaldlega verið að lögfesta það sem hafi tíðkast, án þess að hafa áður verið skýrt heimilað eða bannað í lögum. Þar nefnir hann sem dæmi Verslunarskóla Íslands. „Með þessu er einungis verið að lögfesta heimild fyrir því sem hefur tíðkast – og hvorki verið heimilað né bannað í lögum – t.d. í Verslunarskólanum þar sem hefur verið ákveðinn kynjakvóti.“

Eiríkur rifjar einnig upp eldri reglur um innritun í framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu og segir umræðuna bera keim af skammtímaminni. „Kannski er fólk líka búið að gleyma því að hér áður fyrr var innritun í framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu háð búsetu – og það var ekki heimildarákvæði heldur alveg fast.“

Þá bendir hann á að nemendur hafi aðeins komist í tiltekna skóla ef þeir voru búsettir í ákveðnum hverfum, með fáum undantekningum. „Undantekning var þó gerð ef eldri systkini höfðu verið í skólanum,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hallgrímur Jónasson er fallinn frá
Minning

Hallgrímur Jónasson er fallinn frá

Kona Hugleiks Dagssonar var rænd
Myndir
Innlent

Kona Hugleiks Dagssonar var rænd

Fékk vinagreiða hjá almannatengli
Innlent

Fékk vinagreiða hjá almannatengli

Maður úrskurðaður látinn á Fimmvörðuhálsi
Innlent

Maður úrskurðaður látinn á Fimmvörðuhálsi

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“
Menning

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“

Gamaldags en notalegt hús í Mosfellsbæ til sölu
Myndir
Fólk

Gamaldags en notalegt hús í Mosfellsbæ til sölu

Vélmenni missti stjórn á sér í miðri sýningu
Myndband
Heimur

Vélmenni missti stjórn á sér í miðri sýningu

Gengu í takt á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna með hvítar grímur
Myndband
Heimur

Gengu í takt á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna með hvítar grímur

Eftirlýstur maður handtekinn
Innlent

Eftirlýstur maður handtekinn

Árni segir „útúrspíttaða Íslendinga“ hafa ráðist að sér við Mokka
Innlent

Árni segir „útúrspíttaða Íslendinga“ hafa ráðist að sér við Mokka

Kvenhatur, samsæriskenningar og hægriöfgastefna teljast ekki lengur til jaðarorðræðu
Innlent

Kvenhatur, samsæriskenningar og hægriöfgastefna teljast ekki lengur til jaðarorðræðu

Yrðlingur dregur að fjölda ferðamanna
Landið

Yrðlingur dregur að fjölda ferðamanna

Íslendingar í stóru alþjóðlegu verkefni
Innlent

Íslendingar í stóru alþjóðlegu verkefni

Innlent

Kona Hugleiks Dagssonar var rænd
Myndir
Innlent

Kona Hugleiks Dagssonar var rænd

„Hún hefur verið að ráfa á milli bíla í Hlíðunum síðustu mánuði“
Kvenhatur, samsæriskenningar og hægriöfgastefna teljast ekki lengur til jaðarorðræðu
Innlent

Kvenhatur, samsæriskenningar og hægriöfgastefna teljast ekki lengur til jaðarorðræðu

Fékk vinagreiða hjá almannatengli
Innlent

Fékk vinagreiða hjá almannatengli

Maður úrskurðaður látinn á Fimmvörðuhálsi
Innlent

Maður úrskurðaður látinn á Fimmvörðuhálsi

Eftirlýstur maður handtekinn
Innlent

Eftirlýstur maður handtekinn

Árni segir „útúrspíttaða Íslendinga“ hafa ráðist að sér við Mokka
Innlent

Árni segir „útúrspíttaða Íslendinga“ hafa ráðist að sér við Mokka

Loka auglýsingu