1
Minning

Flosi Kristinsson er fallinn frá

2
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir að losa þig við úr geymslunni

3
Innlent

Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu

4
Fólk

Selja höll í Garðabæ með þreföldum bílskúr

5
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

6
Innlent

Íslandsferð Hönnuh tók óvænta stefnu þegar hún var handtekin

7
Heimur

Borgaði 30 dali fyrir málverk sem reyndist gullnáma

8
Innlent

Reyndi að lauma sér til Íslands með fölsuðu skilríki

9
Pólitík

Mögulegur sökudólgur vill ekki að það sé leitað að sökudólgi

10
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Til baka

Eiturefnarannsókn gæti varpað ljósi á dauða Hayden Panettiere

Var þekktust fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþættinum Heroes

Hayden Panettiere
Hayden Panettiere árið 2011
Mynd: Tabercil/Wikipedia

Bandarísk yfirvöld rannsaka nú hvort leikkonan Hayden Panettiere hafi látist eftir að hafa tekið oxýkódóntöflu sem talið er að hafi verið blönduð fentanýli. TMZ greinir frá þessu og vísar til heimildarmanna innan lögreglu sem þekkja til rannsóknarinnar.

Samkvæmt heimildum miðilsins er vinnukenning rannsakenda sú að Panettiere hafi tekið töflu að morgni þess dags sem hún lést. Talið er að um hafi verið að ræða oxýkódón sem keypt var á svörtum markaði og mögulega innihélt fentanýl, afar öflugt ópíóíð.

Endanleg dánarorsök liggur þó ekki fyrir og leggja heimildarmenn TMZ áherslu á að niðurstöður eiturefnarannsókna séu enn ókomnar. Þær muni skipta sköpum við að staðfesta eða hrekja kenningu rannsakenda.

Panettiere er sögð hafa um nokkurt skeið átt í viðskiptum við fíkniefnasala í Los Angeles sem útvegaði henni ýmis lyfseðilsskyld lyf á svörtum markaði, þar á meðal oxýkódón. Hún er sögð hafa tekið nokkur lyf sem hún hafði keypt af viðkomandi í flugi frá Los Angeles til Suður-Karólínu daginn áður en hún lést.

Bandaríska fíkniefnalögreglan rannsakar nú tengsl Panettiere við meintan fíkniefnasala og reynir að rekja uppruna þeirrar töflu sem grunur leikur á að hafi orðið henni að bana. DEA tekur þátt í rannsókninni bæði í Los Angeles og Suður-Karólínu, auk lögregluyfirvalda í Suður-Karólínu.

Þegar viðbragðsaðilar komu á íbúðina þar sem Panettiere dvaldi ásamt kærasta sínum, Brian Hickerson, afhenti hann þeim poka með lyfjum hennar. Rannsóknin beinist meðal annars að því hvort einhver lyfjanna hafi innihaldið fentanýl.

Hickerson hafði áður reynt að gefa Panettiere Narcan, lyf sem getur snúið við áhrifum ofskömmtunar ópíóíða, eftir að hún fannst meðvitundarlaus. Tilraunin bar ekki árangur.

Málið hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum, en yfirvöld hafa enn ekki staðfest að fentanýlblönduð oxýkódóntafla hafi verið dánarorsök Panettiere. Rannsókn málsins heldur áfram á meðan beðið er eftir niðurstöðum eiturefnarannsókna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Gekk fyrir bíla og endaði bak við lás og slá
Innlent

Gekk fyrir bíla og endaði bak við lás og slá

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu