1
Innlent

Erlendur námsmaður á meðal þeirra sem létust á Krýsuvíkurvegi

2
Peningar

Fyrirtæki Höllu forseta greiðir út tugi milljóna í arð

3
Innlent

Hin látnu á Krýsuvíkurvegi voru fædd á árunum 2005 til 2009

4
Peningar

Risastór verðmunur á dagvöru

5
Minning

Lágafellskirkja boðar til minningarstundar

6
Peningar

Sextán á Vestfjörðum með pyngjuna í góðum holdum

7
Innlent

Telur Magnús Hlyn vera „á svokölluðu gráu svæði“

8
Heimur

Fundu kókaín fyrir 183 milljónir í skottinu á bíl

9
Peningar

Íslenskt tölvuleikjafyrirtæki heldur áfram að leka peningum

10
Minning

Óli Hjálmar Ólason er fallinn frá

Til baka

Gríðarlegur verðmunur á æfingagjöldum

Getur munað tugum þúsunda á sömu íþrótt

Framhús
Fram reyndist vera með dýrustu liðunum
Mynd: Fram

Það getur munað tugum þúsunda króna á ári hvað foreldrar greiða fyrir handbolta og körfubolta barna sinna eftir því hjá hvaða félagi þau æfa. Samanburður ASÍ sýnir að æfingagjöld geta farið yfir 175 þúsund krónur í handbolta og 180 þúsund krónur í körfubolta. Frístundastyrkir sveitarfélaga lækka reikninginn en duga mislangt eftir félagi og búsetu.

ASÍ hefur tekið saman æfingagjöld barna í handbolta og körfubolta hjá félögum víða um land. Til að gera samanburðinn skýrari er sérstaklega horft til þriggja aldurshópa: 6–7 ára, 10–11 ára og 14–15 ára. 

Niðurstöðurnar sýna mikinn verðmun, bæði milli félaga og sveitarfélaga. Kostnaðurinn er almennt meiri hjá eldri börnum en töluverður munur er á gjöldum jafnvel þegar börn á nákvæmlega sama aldri eru borin saman.

Mikill munur milli félaga eftir landshlutum

Í handbolta er Þór á Akureyri með lægsta gjaldið í öllum þremur aldurshópunum sem skoðaðir voru og KA er næstlægst.

Fyrir 6–7 ára börn kostar 69.000 krónur hjá Þór en hæsta gjaldið er 112.500 krónur hjá Fram. Munurinn er 43.500 krónur á ári.

Verðbilið breikkar hjá 10–11 ára börnum. Þór er með 85.000 króna gjald en Fram er hæst með 161.650 krónur. Þar munar 76.650 krónum.

Hjá 14–15 ára er gjaldið lægst 105.000 krónur hjá Þór en hæst 176.060 krónur hjá Fjölni. HK fylgir fast á eftir með 175.000 krónur.

Félögin KA og Þór á Akureyri skera sig því nokkuð úr í lægri enda samanburðarins. Hjá 14–15 ára er gjaldið 105.000 krónur hjá Þór og 112.000 krónur hjá KA en meirihluti annarra félaga í samanburðinum er með gjöld yfir 145 þúsund krónum.

Mikill verðmunur innan Reykjavíkur

Töluverður munur getur verið milli félaga innan sama sveitarfélags. Það sést vel í Reykjavík. Fyrir 10–11 ára kostar handboltinn 105.000 krónur hjá Fylki en 161.650 krónur hjá Fram. Munurinn er 56.650 krónur á ári. Hjá 14–15 ára er Víkingur lægstur af Reykjavíkurfélögunum með 149.000 krónur en Fjölnir hæstur með 176.060 krónur. Þar munar rúmlega 27 þúsund krónum. Fyrir 6–7 ára er bilið frá 83.000 krónum hjá Fylki upp í 112.500 krónur hjá Fram.

Yfir 180 þúsund krónur fyrir 14–15 ára í körfubolta

Mikill verðmunur kemur einnig fram í körfuboltanum.

Líkt og í handboltanum birta sum félög aðeins haustgjöld en til að auðvelda samanburð hefur ASÍ tvöfaldað haustgjöldin og sýnt þau sem áætlaðan heilsárskostnað. Slíkar tölur eru áætlanir en ekki birt árgjöld félaganna.

Hjá 6–7 ára er lægsta áætlaða gjaldið um 53.000 krónur hjá UMF Heklu, miðað við tvöfalt haustgjald. Hæsta birta árgjaldið er 110.969 krónur hjá Stjörnunni. Hjá 10–11 ára er áætlaður heilsárskostnaður hjá Heklu 51.000 krónur. Meðal félaga sem birta árgjald er Selfoss með 106.000 krónur en Haukar með 130.000 krónur. Hjá 14–15 ára er Hamar með lægsta birta árgjaldið, 97.000 krónur, en Stjarnan það hæsta, 182.187 krónur. Munurinn er 85.187 krónur á ári.

og ekki liggur fyrir í þessum samanburði að vorönnin kosti það sama og haustönnin.

Um könnunina

ASÍ tók saman birt æfingagjöld í handbolta og körfubolta hjá félögum víða um land. Flestar verðskrár eru sóttar af markaðstorgi Abler en einnig af heimasíðum félaganna. Í þessari samantekt er sérstaklega horft til 6–7 ára, 10–11 ára og 14–15 ára barna. Aldursflokkun félaga er ekki í öllum tilvikum eins. Þar sem aðeins haustgjald liggur fyrir hefur það verið tvöfaldað til að áætla heilsárskostnað. Sú tala er eingöngu notuð til samanburðar og er ekki staðfest árgjald viðkomandi félags. Fjöldi æfinga og hvað er innifalið í gjöldunum geta einnig verið mismunandi milli félaga.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Bjóða Íslendingum að heimsækja glæsilegt seglskip
Innlent

Bjóða Íslendingum að heimsækja glæsilegt seglskip

Skiptið var smíðað árið 1958
Magahjáveita Baldvins breyttist í lífshættulega martröð
Innlent

Magahjáveita Baldvins breyttist í lífshættulega martröð

Karlmaður ákærður fyrir hylmingu í Leifsstöð
Innlent

Karlmaður ákærður fyrir hylmingu í Leifsstöð

Nýbökuð móðir stungin til bana á Times Square
Heimur

Nýbökuð móðir stungin til bana á Times Square

Sextán létust í hræðilegu rútuslysi
Heimur

Sextán létust í hræðilegu rútuslysi

Telur Magnús Hlyn vera „á svokölluðu gráu svæði“
Myndband
Innlent

Telur Magnús Hlyn vera „á svokölluðu gráu svæði“

Fór í viðtal hjá áróðursmiðli Pútín
Myndband
Innlent

Fór í viðtal hjá áróðursmiðli Pútín

Stórglæsilegar myndir af borgarísjaka við Íslandsstrendur vekja athygli
Myndir
Landið

Stórglæsilegar myndir af borgarísjaka við Íslandsstrendur vekja athygli

Skúli Tómas lýsir yfir sakleysi
Innlent

Skúli Tómas lýsir yfir sakleysi

Landsliðsmaður selur huggulega íbúð í Fossvogi
Myndir
Fólk

Landsliðsmaður selur huggulega íbúð í Fossvogi

Erlendur námsmaður á meðal þeirra sem létust á Krýsuvíkurvegi
Innlent

Erlendur námsmaður á meðal þeirra sem létust á Krýsuvíkurvegi

Fimmtán á Suðurnesjum með fjárhaginn í feiknaformi
Peningar

Fimmtán á Suðurnesjum með fjárhaginn í feiknaformi

Peningar

Gríðarlegur verðmunur á æfingagjöldum
Peningar

Gríðarlegur verðmunur á æfingagjöldum

Getur munað tugum þúsunda á sömu íþrótt
Sextán á Vestfjörðum með pyngjuna í góðum holdum
Peningar

Sextán á Vestfjörðum með pyngjuna í góðum holdum

Fimmtán á Suðurnesjum með fjárhaginn í feiknaformi
Peningar

Fimmtán á Suðurnesjum með fjárhaginn í feiknaformi

Íslenskt tölvuleikjafyrirtæki heldur áfram að leka peningum
Peningar

Íslenskt tölvuleikjafyrirtæki heldur áfram að leka peningum

Risastór verðmunur á dagvöru
Peningar

Risastór verðmunur á dagvöru

Fyrirtæki Höllu forseta greiðir út tugi milljóna í arð
Peningar

Fyrirtæki Höllu forseta greiðir út tugi milljóna í arð

Loka auglýsingu