Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Hin látnu á Krýsuvíkurvegi voru fædd á árunum 2005 til 2009

Fjölmargir vinklar til skoðunar eftir bana­slysið á Krýsuvíkur­vegi

Krýsuvík
Krýsuvík Ungi mað­ur­inn var fæddur árið 2005 en stúlk­urnar árin 2007 og 2009 Mynd: BHJ

Þrjú ungmenni létust í alvarlegu bílslysi á Krýsuvíkur­vegi aðfara­nótt mánudags. Þetta stað­festir Sævar Guðmundsson, aðal­varðstjóri hjá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu samkvæmt frétt RÚV.

Hin látnu voru ungur maður fæddur árið 2005 og tvær stúlkur fæddar árin 2007 og 2009. Slysið varð með þeim hætti að bifreiðin sem ungmennin voru í hafnaði utan vegar.

Sömuleiðis er til skoðunar hvort að um hraða­akstur hafi verið að ræða.

Önnur stúlknanna var nemandi í Mennta­skólanum við Sund. Kyrrðar­stund fór fram á vegum skólans vegna slyssins í Langholts­kirkju í gærkvöldi sem um tvö hundruð ungmenni sóttu.

Miklum fjölda blóma auk kerta og krossa hefur verið komið fyrir á slys­staðnum í dag og í gær, til minningar um hin látnu.

Fjölmargir vinklar til skoðunar

Að sögn Sævars er rannsókn málsins á frumstigi og lítið hægt að segja um tildrög slyssins að svo stöddu. Fram undan eru meðal annars yfirheyrslur yfir vitnum.

„Við eigum eftir að ræða við vitni og fá þetta formlega fram en við höfum einhverjar hugmyndir og vitneskju um hvað gerðist,“ segir Sævar í samtali við fjölmiðla.

Aðspurður hvort hraða­akstur hafi valdið slysinu segir Sævar að það sé eitt af því sem verið sé að skoða. Lögreglan rannsaki nú málið vítt og breitt: „Það eru fjölmargir vinklar skoðaðir, það eins og hvað annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning