1
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

2
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

3
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

4
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

5
Innlent

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður

6
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

7
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

8
Fólk

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum

9
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

10
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Til baka

Telur Magnús Hlyn vera „á svokölluðu gráu svæði“

Siðferðisumræða hefur skapast í kjölfar þess að fréttamaðurinn lék í auglýsingu

Magnús Hlynur RÚV
Magnús Hlynur er einn þekktasti fréttmaður ÍslandsHefur undanfarið unnið á RÚV
Mynd: Samsett

Þátttaka Magnúsar Hlyns Hreiðarssonar, fréttamanns RÚV, í auglýsingu fyrir jólatónleikana Vitringana 3 hefur vakið umræðu um mörkin milli starfa fréttamanna og þátttöku þeirra í auglýsingum.

Í auglýsingunni leikur Magnús Hlynur sjálfan sig í hlutverki fréttamanns. Vitringana 3 standa þeir Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Friðrik Ómar Hjörleifsson og Jógvan Hansen fyrir.

Umræða hefur skapast á samfélagsmiðlum um hvort þátttaka starfandi fréttamanns í auglýsingu geti skapað hagsmunaárekstra eða haft áhrif á trúverðugleika hans.

Magnús Hlynur vildi ekki veita Mannlífi viðtal vegna málsins og vísaði á Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóra RÚV.

Heiðar sagði í skriflegu svari að leyfi hefði verið veitt fyrir þátttökunni en misskilningur hefði komið upp um tímasetningu birtingar auglýsingarinnar.

„Í þessu tilfelli sem þú vísar til var gefið leyfi fyrir misskilning um tímasetningar. Það var misskilningur um það hvenær þetta átti að birtast. Ef fólk er á tímabundnum samningum getur það skipt máli,“ sagði Heiðar.

Hann vildi ekki svara því hvort almenn regla hjá RÚV væri sú að fréttamenn mættu ekki koma fram í auglýsingum.

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, vildi ekki taka sérstaka afstöðu til þess hvort fréttamenn ættu að koma fram í auglýsingum fyrir fyrirtæki en vísaði til siðareglna félagsins í heild sinni.

Auglýsingin umrædda

Óvissa um áframhaldandi störf

Greint var frá uppsögnum og öðrum hagræðingaraðgerðum hjá RÚV í gær. Aðspurður um framtíð Magnúsar Hlyns hjá miðlinum sagði Heiðar að hún væri enn óljós.

„Það eru samtöl í gangi við hann um hvort það verður framhald og þá á hvaða formi en það liggur ekkert fyrir ennþá,“ sagði Heiðar.

Varar við óhóflegum kröfum

Mannlíf leitaði einnig álits Henrys Alexanders Henryssonar á málinu. Hann segir að þátttaka fréttamanna í auglýsingum geti fallið á grátt svæði og að meta þurfi hvert tilvik fyrir sig.

„Mér sýnist þannig að það dæmi sem núna er í umræðunni vera á svokölluðu gráu svæði fremur en augljóslega ámælisvert,“ segir Henry.

Hann bendir á að mikilvægt sé að líta til þess hvaða hagsmunir séu undir og hvers konar vara eða þjónusta sé auglýst. Annað eigi til dæmis við þegar um skemmtiefni sé að ræða en þegar fréttamaður nýti trúverðugleika sinn til að kynna umdeilda eða skaðlega vöru.

Henry telur þátttöku Magnúsar Hlyns ekki hafa farið yfir siðferðileg mörk.

Hann varar jafnframt við því að gera óhóflegar siðferðiskröfur og gagnrýna hvert tilvik með sama þunga. Stöðug hneykslan geti gert almenning ónæmari fyrir þeim málum þar sem raunveruleg ástæða sé til að grípa inn í.

Trúverðugleiki lykilatriði

Henry segir umræðuna þó mikilvæga enda séu fáar starfsstéttir jafn háðar trúverðugleika og fréttamenn.

„Án trausts eru fréttir í raun ákaflega lítils virði og raunar bara eins og hver önnur upplýsingagjöf,“ segir hann.

Þegar trúverðugleiki sé undir þurfi sérstaklega að huga að óhlutdrægni og mögulegum hagsmunatengslum. Gagnsæi geti þó einnig skipt miklu máli og hagsmunatengsl þurfi ekki sjálfkrafa að útiloka trúverðugleika ef þau séu öllum ljós.

Henry segir erfitt að setja algildar og nákvæmar starfsreglur um slík mál. Þess vegna hafi siðareglur frekar verið notaðar sem viðmið sem geri ráð fyrir gráum svæðum og að fólk beiti eigin dómgreind.

„Of geirnegldar reglur geta orðið hjákátlegar – það verður að vera rými fyrir fólk að beita dómgreind sinni,“ segir Henry.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð
Heimur

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð

Lést degi eftir bardaga
Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum
Myndband
Heimur

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

Elko innkallar ofn vegna brunahættu
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum
Myndir
Fólk

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Mikilvægt er að hætta strax notkun á ofninum og taka hann úr sambandi
Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Loka auglýsingu