1
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

2
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

3
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

4
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

5
Innlent

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður

6
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

7
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

8
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

9
Minning

Marga Ingeborg Thome er látin

10
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Til baka

Risastór verðmunur á dagvöru

Prís með lægsta verðið á ríflega 300 vörum í nýrri könnun ASÍ

Prís
Prís og Bónus oftast með lægsta verðið – Krambúðin og 10-11 dýrastar
Mynd: Facebook

Verð á dagvöru hækkaði að meðaltali um 0,14% milli júlí og ágúst, samkvæmt nýjustu mælingu verðlagseftirlits ASÍ. Nokkuð hefur hægt á verðhækkunum á matvöru sem mældust miklar í upphafi árs. Á sama tíma sýnir nýr verðsamanburður ASÍ að mikill og viðvarandi verðmunur er á sömu vörum eftir því hvar verslað er. 

Í nýjum verðsamanburði ASÍ á 561 vöru var miðgildi verðmunar milli lægsta og hæsta verðs um 42%, Prís var oftast með lægsta verð en Krambúðin oftast með hæsta verð. 

Prís ódýrast – 10-11 dýrust

Séu borin saman verð á 561 vöru sem fékkst í tíu verslunum í ágúst var lægsta verðið oftast að finna í Prís, eða á 317 vörum, og Bónus næstoftast, á 123 vörum. Þegar hæsta verðið er skoðað snýst myndin við. Krambúðin var oftast dýrust, á 186 vörum, Kjörbúðin á 138 vörum og 10-11 á 124 vörum. 

Sé verðmunur milli verslana mældur má sjá að neytendur geta gert ódýrustu innkaupin í Prís. Verðlag í Bónus er að jafnaði 4% hærra en þar sem varan er ódýrust, sem oftast er í Prís. Krónan er að jafnaði 5% dýrari en ódýrasta verslun og þar á eftir fylgir Nettó um 10% dýrari en ódýrasta verslun. Verðlag í Kjörbúðinni og Hagkaupum er um 30% hærra en þar sem ódýrast er að versla en hæsta verðlag á vörum er að finna í 10-11. 

Verðmunur milli vara getur þó verið mjög breytilegur. Af þeim vörum sem fengust í tíu verslunum í ágúst var munurinn á hæsta og lægsta verði 30% eða meiri á nærri átta af hverjum tíu vörum. 

Þetta er í samræmi við þróunina sem verðlagseftirlit ASÍ hefur mælt yfir lengri tíma. Verð í dýrari verslunum hefur að jafnaði verið tugum prósenta hærra en þar sem sama vara fæst ódýrust. Þannig getur meðalverð dagvöru hækkað um brot úr prósenti milli mánaða á sama tíma og tugir prósenta skilja að verð á nákvæmlega sömu vöru milli verslana. 

Mikill munur á algengum vörum

Munurinn verður sérstaklega áþreifanlegur þegar skoðuð er vörukarfa með 25 algengum mat- og dagvörum, þar á meðal brauði, mjólkurvörum, pylsum, kaffi, morgunkorni og drykkjarvörum. 

Mylluheimilisbrauð kostaði til dæmis 349 krónur þar sem það var ódýrast í Prís en 729 krónur í Krambúðinni þar sem það var dýrast. Einn lítri af léttmjólk kostaði frá 266 krónum í Prís upp í 419 krónur í 10-11 og Felix-tómatsósa frá 309 krónum í Prís upp í 499 krónur í Kjörbúðinni. 

Á einstökum vörum er munurinn enn meiri. Tunnock's Caramel Bar kostaði 98 krónur í Bónus þar sem hann var ódýrastur en 469 krónur í 10-11 þar sem hann var dýrastur og er því um fjórfalt dýrari í 10-11. Bonaqua með skógarberjabragði kostaði frá 124 krónum í Prís upp í 329 krónur í 10-11. 

Niðurstöðurnar sýna að fyrir heimilin skiptir ekki aðeins máli hvernig verðlag þróast frá einum mánuði til annars heldur einnig að það getur verið nokkurra tuga prósenta verðmunur á einstökum vörum sem safnast fljótt upp þegar vörunum fjölgar. 

Um verðtökuna 

Verðlagseftirlitið kannaði verð í verslunum dagana 10.-25. ágúst. Verð voru könnuð í 10-11, Bónus, Krónunni, Nettó, Hagkaupum, Kjörbúðinni, Krambúðinni, Fjarðarkaupum, Prís og SPAR.  Í samantektinni að ofan eru verð borin saman í öllum verslununum. Öll verð ásamt nýjustu verðum geta neytendur nálgast í Nappinu eða á verdlagseftirlit.is. 

Í verðsamanburði er miðað við hilluverð sem neytandi hefur upplýsingar um í versluninni. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur/tilboðsverð af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð. 

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila. 

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

Elko innkallar ofn vegna brunahættu
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum
Myndir
Fólk

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Risk tók áhættuna alla leið í þrot
Peningar

Risk tók áhættuna alla leið í þrot

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Stórmeistarinn Vignir Vatnar stofnar Stórmeistara
Peningar

Stórmeistarinn Vignir Vatnar stofnar Stórmeistara

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

Nýdönsk stofnar fyrirtæki
Peningar

Nýdönsk stofnar fyrirtæki

Loka auglýsingu