Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Erlendur námsmaður á meðal þeirra sem létust á Krýsuvíkurvegi

Á yfir 200 kílómetra hraða þegar bíllinn hafnaði á hraun­kletti

Minnast ungmennanna sem létust á Krýsuvíkurvegi
Minnast ung­menn­anna sem lét­ust á Krýsu­vík­ur­vegi Mynd: Lögreglan

Þrjú ungmenni létust þegar bifreið þeirra hafnaði utan vegar og skall á hraun­kletti á Krýsuvíkur­vegi, rétt sunnan við gatnamót Leiðarenda­vegar, aðfara­nótt mánudags. Gögn málsins benda til þess að bíllinn hafi verið á yfir tveggja hundruð kílómetra hraða þegar slysið varð, Vísir greindi fyrst frá. Minningar­stundir um hin látnu fara fram í dag.

Tilkynning um slysið barst lögreglu skömmu eftir miðnætti. Bíllinn fór út af veginum og hafnaði á hraun­kletti með þeim afleiðingum að eldur kviknaði í honum og varð hann alelda á vettvangi.

Hin látnu voru tvær stúlkur og einn ungur karlmaður:

  • Arndís Halla Guðlaugs­dóttir, fædd 2009.
  • Benjamín Guðmundsson, fæddur 2005.
  • Erlend stúlka, fædd 2007, sem var hér á landi við nám.

Rannsókn á hraðakstri og mörg vitni

Rannsókn lögreglu á tildrögum slyssins er á frumstigi, en rík áhersla er lögð á að upplýsa hvort gríðar­legur hrað­akstur hafi átt sér stað. Samkvæmt heimildum frétta­stofu benda myndbönd og önnur gögn sem verið hafa í dreifingu meðal almennings til þess að hraði bílsins hafi farið yfir 200 km/klst augna­blikum áður en hann lenti á klettinum.

Lögreglan hefur þegar rætt við fjölda vitna sem voru á svæðinu um nóttina. Samkvæmt heimildum voru þrír aðrir bílar, mannaðir ungmennum, á ferðinni þarna þegar slysið varð. Lögreglan hefur ekki gefið upp nákvæman fjölda þeirra sem vitnis­burður hefur verið tekinn af.

Minningarstundir í dag

Sorg ríkir í samfélaginu vegna málsins og fara minningar­stundir fram í dag. Minningar­stund fyrir Arndísi Höllu verður í Lága­fellskirkju í Mosfellsbæ klukkan 17:30. Þá verður einnig minningar­stund um Benjamín í Háteigs­kirkju.

Þetta er annað alvarlega bana­slysið á árinu þar sem hrað­akstur ungra ökumanna er til skoðunar hjá lögreglu, en í febrúar síðastliðnum lést sautján ára piltur í slysi á Miklubraut þar sem farþegi lést þegar bíll hafnaði á stólpa hæðarrár. Það mál er enn í rannsókn og er einn með stöðu sakbornings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning