Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Fundu kókaín fyrir 183 milljónir í skottinu á bíl

Að sögn lögreglunnar voru fíkni­efnin í um 20 pakkningum

Kókaín í lausu
Kókaín í lausu Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

Tveir karlmenn hafa verið hand­teknir á Tenerife eftir að lögregla fann rúmlega 22 kíló af kókaíni í farangurs­rými bifreiðar þeirra. Mennirnir komu til hafnarinnar í Santa Cruz með ferju frá Gran Canaria.

Að sögn lögreglunnar voru fíkni­efnin í um 20 pakkningum og er áætlað götuvirði þeirra meira en 1,3 milljónir evra, jafnvirði um 183 milljóna íslenskra króna.

Lögreglu­menn stöðvuðu bifreiðina skömmu eftir að henni hafði verið ekið frá borði ferjunnar. Fram kemur að hegðun mannanna við eftir­litið hafi vakið grun­semdir lögreglu. Svör þeirra við spurningum lögreglu­manna hafi meðal annars verið misvísandi og mótsagna­kennd.

Í kjölfarið var ákveðið að leita ítarlega í bifreiðinni. Í farangurs­rýminu fannst stór taska með fjölmörgum pakkningum sem vafðar voru í brúnt límband. Frumpróf staðfesti að um kókaín væri að ræða.

Alls reyndust pakkningarnar innihalda 22,16 kíló af kókaíni. Þá fundust tæplega fimm þúsund evrur í reiðufé í bifreiðinni.

Mennirnir voru hand­teknir og færðir fyrir dómara ásamt hald­lögðum fíkni­efnum og öðrum sönnunar­gögnum. Dómari hefur úrskurðað þá í gæslu­varðhald á meðan rannsókn málsins heldur áfram.

Lögreglan segir að með aðgerðinni hafi tekist að uppræta umfangs­mikið fíkniefnanet.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs