
Sextán manns létust og 28 særðust þegar rúta fór út af veginum í Egyptalandi í morgun. Heilbrigðisráðuneyti Egyptalands greindi frá slysinu.
Slysið varð á veginum milli ferðamannabæjanna Dahab og Nuweiba. Tuttugu sjúkrabílar voru sendir á vettvang og voru hinir slösuðu fluttir til aðhlynningar á sjúkrahúsum.
Meðal þeirra sem létust voru tíu jórdanskir ríkisborgarar. Jórdanska ríkissjónvarpsstöðin Al-Mamlaka greindi frá því að alls hefðu 43 verið um borð í rútunni, þar af 22 Jórdanar.
Ekki hefur verið greint frá því hvað olli slysinu. Yfirvöld hafa sagt að þeir sem slösuðust njóti læknisaðstoðar.
Svæðið þar sem slysið varð er vinsæll áfangastaður ferðamanna og er meðal annars þekkt fyrir fjölbreytt lífríki sjávar, náttúrufegurð og gönguleiðir í fjalllendi.
Alvarleg umferðarslys eru tíð í Egyptalandi. Samkvæmt opinberum tölum létust nærri sex þúsund manns í umferðarslysum í landinu á síðasta ári.
Í síðasta mánuði létust að minnsta kosti 18 manns, margir þeirra unglingar, þegar tveir pallbílar sem fluttu landbúnaðarverkamenn lentu í árekstri í norðurhluta Egyptalands.