1
Fólk

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein

2
Sport

Sörloth fær líflátshótanir eftir mistök gegn Englandi

3
Fólk

„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“

4
Pólitík

Landssamband eldri borgara mótmælir nýju komugjaldi í sjúkraþjálfun

5
Innlent

Varað við neyslu á nautakjötsrétti

6
Innlent

Bíl ekið á hús

7
Heimur

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“

8
Heimur

Trump ræddi við Lindsey Graham skömmu fyrir andlátið

9
Innlent

Segir verið að ræna regnbogafánann merkingu sinni

10
Heimur

Maður handtekinn grunaður um morðið á Ann Widdecombe

Til baka

Heimildarmynd um Julian Assange frumsýnd á Cannes

„Við erum að stefna fram af hengiflugi ómennsku“

Kristinn Hrafnsson og Julian Assange
Cannes í gær.Kristinn með vinum sínum, Assange-hjónunum.
Mynd: AFP

Kristinn Hrafnsson gekk á rauða dreglinum á Cannes-kvikmyndahátíðinni í gær, í fylgd vinar síns og samstarfsmanns, Julian Assange og eiginkonu hans, Stellu. Tilefnið var frumsýning heimildarmyndarinnar Six Dollar Man sem fjallar um 15 ára baráttu Julian Assange og Wikileaks við yfirvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum.

Kristinn skrifaði færslu um gærkvöldið og segir það sjaldgæft að heimildarmynd sé boðið á Cannes.

„Rauði dregillinn í Cannes er frægur fyrir að vera undirlag fólks sem hrærist í sýndarheimi sögugerðar í hreyfimyndum, þar sem oftar en ekki er ýtt undir glamúr og glans, form fremur en innihald. Það er sjaldan sem heimildarmyndum er boðið á kvikmyndahátíðina í Cannes að slást í hóp skáldaðra afurða á hvíta tjaldinu. Á rauða dreglinum eru karlmenn skikkaðir til að mæta í formlegum búningi en konurnar fá flesta ljósblossa frá myndatökumönnunum og oftar en ekki er meira flass, því efnisminni sem umbúnaðurinn er.“

Segir Kristinn það hafa verið súraelískt að ganga á rauða dreglinum í gærkvöldi:

„Það var súrealískt að ganga þennan rauða dregi í gærkvöld við frumsýningu á heimildarmyndinni Six Billion Dollar Man eftir leikstjórann Eugene Jarecki en hún reynir að fanga 15 ára slag Julian Assange og WikiLeaks gegn ægivaldi afla sem reyndu allt til að kæfa sannleikann og slátra sendiboðanum. Það tóks ekki, vegna þess að spyrnt var við fótum, milljónir manna stigu upp til stuðnings manninum sem var látinn rotna frelsissviptur í á annan áratug.“

Þá segir Kristinn frá því að Julian hafi í myndatöku í fyrradag ákveðið að minnast drepinna ungbarna á Gaza með því að klæðast bol með nöfnum þúsunda barna sem Ísraelsher hefur drepið. Þá hafi eiginkona Julians, Stella, mætt á rauða dregilinn í kjól frá Vivienne Westwood heitinni með einföld en skýr skilaboð fasta á kjólnum.

Julian og Stella Assange
Julian og Stella Assange.Stella hengdi sterk skilaboð á kjólinn.
Mynd: Facebook

„Mitt í fögnuðinum yfir frelsi Julians og þessari frumsýningu varð þó að minnast þess að óréttlætið í heiminum hefur ekkert minnkað, þvert á móti erum við að stefna framaf hengiflugi ómennsku, grimmdar og siðrofs. Í fyrradag mætti Julian í myndatöku í bol með nöfnum þúsunda barna undir fimm ára sem Ísraelsmenn hafa slátrað á Gaza á einu og hálfu ári og áletruninni „Stop Israel“. Í gærkvöld mætti Stella vinkona mín, eiginkona Julians ,á rauða dregilinn í kjól frá Vivienne Westwood sem studdi Julian allt fram í andlátið en í anda pönkdrottningarinnar var
áfest á kjólinn mynd af henni og skilaboð hennar til heimsins „Stop killing“.“

Kristinn segir næst frá því að heimildarmyndinni hafi verið vel tekið á kvikmyndahátíðinni og að hann hafi verið hissa á góðum dómi Guardian sem dagblaðið beri stóran hluta ábyrgðarinnar á því hvernig farið var með Julian.

„Heimildarmyndin sjálf reynir að skila stórri sögu sem er vitaskuld ekki auðvellt enda ekki smásaga heldur margar þykkar bækur. Henni var tekið vel á frumsýningunni og nú þegar hafa birtst jákvæðir dómar. Áhugavert fannst mér að Guardian gaf henni 4 stjörnur af 5 svona í ljósi þess að dagblaðið og sérstaklega fyrrverandi rannsóknarritstjóri þess, bera drjúgan hlut af ábyrgðinni á ömurlegum köflum í örlagasögu Julians og WL og um það er fjallað í myndinni.“

Að endingu segir Kristinn að stigmögnun sé í gangi í „stríðinu gegn sannleikanum“ og það sé okkar að stöðva þá vitfirrinu sem í gangi er.

„En stríðið gegn sannleikanum er í stigmögnun og stríðið gegn þunnu lagi siðmenningarinnar heldur áfram með ógeðslegum drápum. 38 myrtir á Gaza í morgun. Tveir ísraelskir diplómatar myrtir í Bandaríkjnum í gærkvöld. Það er okkar mál að stöðva þessa vitfirringu.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ástarsamband án skuldbindinga
Fólk

Ástarsamband án skuldbindinga

Nálgun sem gerir fólki kleift að njóta nándar og spennu án hefðbundinna krafna
Maður drukknaði í sundlaug hótels á Fuerteventura
Heimur

Maður drukknaði í sundlaug hótels á Fuerteventura

Segir verið að ræna regnbogafánann merkingu sinni
Innlent

Segir verið að ræna regnbogafánann merkingu sinni

Varað við neyslu á nautakjötsrétti
Innlent

Varað við neyslu á nautakjötsrétti

Stórleikarinn Sam Neill látinn
Heimur

Stórleikarinn Sam Neill látinn

Minnst 27 létust í gríðarlegum bruna á skemmtistað í Bangkok
Heimur

Minnst 27 létust í gríðarlegum bruna á skemmtistað í Bangkok

Landssamband eldri borgara mótmælir nýju komugjaldi í sjúkraþjálfun
Pólitík

Landssamband eldri borgara mótmælir nýju komugjaldi í sjúkraþjálfun

Sörloth fær líflátshótanir eftir mistök gegn Englandi
Sport

Sörloth fær líflátshótanir eftir mistök gegn Englandi

Trump ræddi við Lindsey Graham skömmu fyrir andlátið
Heimur

Trump ræddi við Lindsey Graham skömmu fyrir andlátið

„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“
Viðtal
Fólk

„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein
Fólk

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein

Maður handtekinn grunaður um morðið á Ann Widdecombe
Heimur

Maður handtekinn grunaður um morðið á Ann Widdecombe

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“
Heimur

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“

Menning

Heyannir á Árbæjarsafni
Myndir
Menning

Heyannir á Árbæjarsafni

Sýnt verður hvernig hey var slegið með ljá, rakað með hrífum og unnið með handafli
Mugison sló í gegn í Básum
Myndband
Menning

Mugison sló í gegn í Básum

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“
Menning

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“

Una Torfa verður í Vesturbænum
Menning

Una Torfa verður í Vesturbænum

Loka auglýsingu