1
Innlent

Græna gímaldið dregur dilk á eftir sér

2
Innlent

Hekla innkallar lífshættulega Skoda-bíla

3
Fólk

Selja draumaeign á höfuðborgarsvæðinu með ró og næði í fyrirrúmi

4
Menning

Guðmundur snýr aftur í Breiðholtið

5
Pólitík

„Hættið að fela börnum að teikna klámmyndir“

6
Innlent

Þorgrímur Þráins fær milljón

7
Minning

Eggert Ólafur Ásgeirsson er fallinn frá

8
Heimur

Reyndi að taka fyrrverandi eiginkonu af lífi á veitingastað

9
Heimur

Farþegi í Tenerife-flugi veiktist alvarlega

10
Innlent

Telur þingmenn Miðflokksins ýta undir hatur

Til baka

Stærstu breytingar í sögu fríhafnarinnar

Ný vörumerki sem fást eingöngu á Íslandi

Fríhöfnin
Mynd: Fríhöfnin

Viðamestu breytingar sem gerðar hafa verið á fríhafnarverslun á Keflavíkurflugvelli segir í fréttatilkynningu frá fríhöfninni.

Þar má nefna:

  • Ein stærsta fjárfesting í ferðaþjónustuverslun á Íslandi
  • Að minnsta kosti 30% íslensk vörumerki
  • Yfir 370 m² tileinkaðir íslenskum vörum
  • Stafrænar nýjungar og gagnvirkar lausnir
  • Sjálfbærni í hönnun

ÍSLAND Duty Free, íslenskt dótturfélag Gebr. Heinemann, hefur lokið endurbótum og endurnýjað að fullu fríhafnarverslanirnar á Keflavíkurflugvelli (KEF). Endurhönnunin hefur staðið yfir frá því Gebr. Heinemann tók við rekstri fríhafnarverslananna vorið 2025.

Verslanirnar voru opnaðar formlega með viðhafnarathöfn og borðaklippingu miðvikudaginn 9. september 2026. Fjölmargir gestir mættu til fagnaðarins, þar á meðal fulltrúar ÍSLAND Duty Free og Isavia.

Ein stærsta fjárfesting í ferðaþjónustuverslun hingað til

Gebr. Heinemann rekur þrjár verslanir á Keflavíkurflugvelli: brottfararverslun (um 1.600 m²), komuverslun (um 2.000 m²) og verslun við brottfararhlið. Lögð er áhersla á jákvæða upplifun viðskiptavina sem felst meðal annars í góðu aðgengi og þægindum fyrir viðskiptavini. Þá er lögð rík áhersla á fjölbreytt vöruúrval í helstu vöruflokkum eins og ilmvötnum og snyrtivörum, áfengi, sælgæti, tóbaki, og tísku- og lífsstílsvörum.

Á bilinu 120 til 160 starfsmenn starfa hjá Ísland Duty Free, allt eftir árstíma og álagi. Kostnaður við verslanirnar þrjár nam meira en 1,5 milljarði króna en breytingarnar og endurhönnunin eru þær viðamestu sem gerðar hafa verið á fríhafnarverslun á Keflavíkurflugvelli frá upphafi og ein stærsta fjárfesting í ferðaþjónustuverslun á Íslandi á síðari árum.

Íslenskar vörur í öndvegi

Hönnuninni á verslunum er ætlað að skapa ósvikna íslenska upplifun. Að minnsta kosti 30% allra vörumerkja í verslunum Ísland Duty Free eru íslensk og meira en 370 m² af verslunarrými eru tileinkaðir íslenskum vörum, íslenskri frásagnarlist og upplifun af íslenskum vörumerkjum. Arkitektúr, efnisval og vöruúrval var unnið í samvinnu við Basalt arkitekta, eina af þekktustu arkitekta- og hönnunarstofu Íslands. og endurspegla íslensku þjóðarsálina á sama tíma og þörfum alþjóðlegra farþega er mætt. Í miðju verslunarinnar er sérstakt svæði tileinkað íslenskum vörumerkjum í sérhönnuðu umhverfi.

Þá hafa verið sett upp svæði þar sem íslenskir hönnuðir og framleiðendur geta kynnt vörur sínar. Markmiðið er að veita innlendum framleiðendum tækifæri til að tengjast alþjóðlegum ferðamönnum og styrkja sýnileika íslenskrar nýsköpunar, handverks og frumkvöðlastarfs. Ferðalangar finna þannig þekkt íslensk nöfn á borð við Blue Lagoon Skin Science, BIOEFFECT, Nóa Síríus, Freyju, Saltverk, Circolo og Fischersund við hlið leiðandi alþjóðlegra vörumerkja eins og Sol de Janeiro, Maison Margiela, Summer Fridays, KESS, Parfums de Marly, Byredo, Diptyque, Tom Ford, Kérastase, Jo Malone London og LANEIGE í snyrtivörum og Neuhaus, Venchi, Summerbird, Godiva, Biscoff, Barebells, Ritter Sport og M&M's í sælgæti. Áfengisúrvalið spannar allt frá íslensku handverksbrennivíni til heimsþekktra alþjóðlegra framleiðenda.

Í fyrsta skipti eru vörumerki eins Kess, Byredo, Creed, Fugazzi Fragrances, Initio Parfums Privés, Kilian, Parfums de Marly, Xerjoff, Babor, Isntree, Venchi, Summerbird, Henriot og Louis Bouillot til sölu á Íslandi og fást þau eingöngu í verslunum Ísland Duty Free.

Stafræn nýsköpun og gagnvirkni

Í verslunum er lögð áhersla á gagnvirkar lausnir eins og svokallaða „lyftu og lærðu“ tækni (lift and learn) sem virkar þannig að þegar vara er tekin úr hillu birtast upplýsingar og áhugaverðar sögur á skjá sem auðveldar viðskipavinum að bera saman vörutegundir og veitir þeim frekari upplýsingar um vöruna. Í verslunum er einnig að finna sjálfs- og snjallsímaafgreiðslu, stafræna hillumiða og stafrænar verð- og tollkvótaleiðbeiningar.

Í komuverslun er lögð áhersla á hraða, skilvirkni og sparnað. Meðal nýjunga þar er færanlegur smakkbar fyrir sælgæti, sérstök „Rauð svæði“ (Red Zones) sem auðveldar aðgang að innlendum og alþjóðlegum tilboðum, snyrtivöruráðgjöf og staður til þess að taka sjálfu sem listamaðurinn Juan Arctic hannaði.

Þá er boðið upp á svokallað „Click & Collect“ (smella & sækja) og „Reserve & Collect“ (panta & sækja) á vefsíðu Ísland Duty Free og í verslunum má finna gagnvirk tæki sem aðstoða við að finna vörur og verð. Að auki gefst fólki tækifæri til að skrá sig í vildarfélag Ísland Duty Free sem býður upp á sérstök tilboð og verð fyrir meðlimi, ekki bara á Íslandi heldur í öllum fríhafnarverslunum sem Gebr. Heinemann rekur sem og tilboð á hótelgistingu og bílaleigubílum svo eitthvað sé nefnt.

Notast við endurunnið plast úr sjónum

Lögð var áhersla á sjálfbærni í allri hönnun og framsetningu. Þannig var endurunnið efni nýtt í miklum mæli. Sem dæmi þá eru innréttingarnar frá spænska fyrirtækinu Nagami sem sérhæfir sig í framleiðslu með þrívíddarprentun úr endurunnu plasti sem að hluta til er fengið úr sjó. Þá er veggfóðrið í verslunum frá Omexco MINERALS en það er unnið úr endurunnum pappír og fínu glimmeri. Að auki er lýsingin orkusparandi og hillumiðarnir eru stafrænir. Í verslununum er svo Dopper-vatnsstöð þar sem fólk fær ókeypis áfyllingu af fersku kranavatni sem styður við hringrásarhagkerfið frá degi til dags. Dopper-vatnsstöðin var sett upp í samvinnu við ISAVIA.

Mikilvægur áfangi fyrir Keflavíkurflugvöll

„Með opnun ÍSLAND Duty Free hefjum við nýjan kafla í norrænni ferðaþjónustuverslun hér í Keflavík. Við erum afar ánægð með það traust sem Isavia hefur sýnt okkur og höfum fjárfest verulega í verslununum til að bjóða ferðamönnum upp á upplifun sem er ætlað að vera jafn einstök og Ísland sjálft. Verslanirnar á Keflavíkurflugvelli eru mjög stefnumarkandi fyrir okkur því með þessu verkefni sýnum við hvernig næsta kynslóð ferðaþjónustuverslunar getur litið út þar sem áhersla er lögð á djúpstæðar rætur samfélagsins og stafræna upplifun sem er hönnuð með þarfir nútímaferðalangsins í huga,“ segir Max Heinemann, annar af forstjórum Gebr. Heinemann, í tilefni af enduropnuninni.

Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia fagnar samstarfinu og segir það mikilvægan áfanga fyrir Keflavíkurflugvöll: „Sú upplifun sem við bjóðum uppá á Keflavíkurflugvelli skiptir miklu máli þar sem flugvöllurinn er tengin okkar við umheiminn. Fjölbreytt og gott vöruúrval í fríhafnarversluninni gegnir þar lykilhlutverki og gerir flugvöllinn samkeppnishæfari. Heinemann býr yfir mikilli þekkingu og sérfræðikunnáttu á þessu sviði og við hlökkum til að bæta upplifun farþega enn frekar. Um leið sköpum við verðmæti fyrir íslensk vörumerki og landið allt.“

Jens Wolf, sölustjóri hjá Gebr. Heinemann, segir nýju ásýndina vera afrakstur náins samstarfs við birgja Gebr. Heinemann. „Þeir tóku framtíðarsýn okkar fagnandi strax í upphafi og með því að blanda saman sterkum íslenskum vörum og leiðandi alþjóðlegum vörumerkjum höfum við skapað úrval sem er bæði mjög íslenskt en um leið á heimsmælikvarða. Þessi blanda er nákvæmlega það sem ferðamenn eru að leita að og hún gefur samstarfsaðilum okkar frábæran vettvang til að kynna vörumerki sín.“

Um samstarfið

Sérleyfið var veitt í kjölfar alþjóðlegs útboðsferlis og markar langtímasamstarf á milli Isavia og Heinemann Travel Retail Iceland ehf. Hugmyndafræðin var framkvæmd í samstarfi við hóp innlendra aðila: Basalt arkitekta (hönnun), Mannverk (aðalverktaki), Brandenburg (markaðsmál), Pipar\TBWA (almannatengsl) og XPrent (2D kynningarefni/prentun).

Island Duty Free Departure 11
Mynd: Fríhöfnin
Island Duty Free Departure 7
Mynd: Fríhöfnin
Fríhöfnin
Mynd: Fríhöfnin
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Samtökin ’78 ráðleggja HÍ um námsefni og orðanotkun
Innlent

Samtökin ’78 ráðleggja HÍ um námsefni og orðanotkun

Kennarar geta einnig óskað eftir sértækri fræðslu frá samtökunum innan námskeiða
Sjaldséð risastór eign í Þingholtunum komin í sölu
Myndir
Fólk

Sjaldséð risastór eign í Þingholtunum komin í sölu

Ekki henda bolnum alveg strax
Innlent

Ekki henda bolnum alveg strax

Tók barnsmóður sína kverkataki með báðum höndum og sparkaði í hana
Innlent

Tók barnsmóður sína kverkataki með báðum höndum og sparkaði í hana

Beltislausir, réttindalausir og undir áhrifum
Innlent

Beltislausir, réttindalausir og undir áhrifum

Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku
Sport

Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku

Reyndi að taka fyrrverandi eiginkonu af lífi á veitingastað
Myndband
Heimur

Reyndi að taka fyrrverandi eiginkonu af lífi á veitingastað

Sorphirðan í Reykjavík fer í stafrænan búning
Innlent

Sorphirðan í Reykjavík fer í stafrænan búning

Seldi „Lemon alien dawg“ og flúði út um glugga
Innlent

Seldi „Lemon alien dawg“ og flúði út um glugga

Lest með 120 manns innanborðs rakst á steypubíl
Heimur

Lest með 120 manns innanborðs rakst á steypubíl

Tveir alvarlega slasaðir eftir sprengingu í virkjun
Heimur

Tveir alvarlega slasaðir eftir sprengingu í virkjun

Leyndardómurinn á bak við raunverulegar lífsbreytingar
Fólk

Leyndardómurinn á bak við raunverulegar lífsbreytingar

Innlent

Samtökin ’78 ráðleggja HÍ um námsefni og orðanotkun
Innlent

Samtökin ’78 ráðleggja HÍ um námsefni og orðanotkun

Kennarar geta einnig óskað eftir sértækri fræðslu frá samtökunum innan námskeiða
Sorphirðan í Reykjavík fer í stafrænan búning
Innlent

Sorphirðan í Reykjavík fer í stafrænan búning

Stærstu breytingar í sögu fríhafnarinnar
Myndir
Innlent

Stærstu breytingar í sögu fríhafnarinnar

Ekki henda bolnum alveg strax
Innlent

Ekki henda bolnum alveg strax

Tók barnsmóður sína kverkataki með báðum höndum og sparkaði í hana
Innlent

Tók barnsmóður sína kverkataki með báðum höndum og sparkaði í hana

Beltislausir, réttindalausir og undir áhrifum
Innlent

Beltislausir, réttindalausir og undir áhrifum

Loka auglýsingu