1
Innlent

Íslenski barinn Nostalgía tilkynnir stórtíðindi

2
Heimur

Áhrifavaldurinn Einar Méndez fallinn frá

3
Innlent

Eygló lenti í leiðinlegu atviki með hráefni úr Costco

4
Heimur

Kona fær nálgunarbann samþykkt eftir ofbeldi sem sást á eftirlitsmyndavél

5
Fólk

Opnuðu sig um heilaæxli Unu

6
Fólk

Sjaldséð risastór eign í Þingholtunum komin í sölu

7
Menning

Ónæði á Akranesi

8
Innlent

Ekki henda bolnum alveg strax

9
Innlent

Bananar innkalla epli

10
Innlent

Stærstu breytingar í sögu fríhafnarinnar

Til baka

Lagði álög og bölvun á fyrrverandi sambýliskonu

Sendi henni 90 óvelkomna tölvupósta, þar sem meðal annars komu fram alvarlegar hótanir

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur
Mynd: Víkingur

Karlmaður hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot í nánu sambandi gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni. Sex mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir til tveggja ára. Maðurinn var jafnframt dæmdur til að greiða konunni eina milljón króna í miskabætur.

Brotin áttu sér stað frá 24. mars til 11. júní síðastliðins. Samkvæmt dóminum raskaði maðurinn ítrekað og með alvarlegum hætti friðhelgi einkalífs konunnar og ólögráða barna hennar. Háttsemin fól meðal annars í sér líkamlegt og andlegt ofbeldi, hótanir, óvelkomin símtöl og skilaboð auk eftirfarar.

Í mars réðst maðurinn á konuna, tók hana kverkataki, hrinti henni í jörðina og hélt henni niðri. Hann tók hana síðan aftur kverkataki þannig að hún átti erfitt með andardrátt og beit hana í hönd.

Á næstu vikum sendi hann henni 90 óvelkomna tölvupósta, þar sem meðal annars komu fram alvarlegar hótanir. Hann hringdi jafnframt 48 óvelkomin símtöl í konuna. Í einum tölvupóstanna fylgdi myndband þar sem ljósmynd af konunni hafði verið komið fyrir á borði með kertum, hauskúpum og dulrænum táknum sem gáfu til kynna álaga- eða bölvunarathöfn.

Maðurinn var settur í sex mánaða nálgunarbann í maí en braut ítrekað gegn því. Meðal annars nálgaðist hann konuna á almannafæri, fór að heimili hennar og barna hennar og hafði samband við hana með ýmsum hætti. Hann lét einnig útbúa myndband með ljósmynd af henni þar sem óskað var eftir því að hún yrði fyrir langvarandi líkamlegum og andlegum þjáningum og dauða.

Maðurinn játaði brotin skýlaust. Dómurinn taldi honum það til málsbóta en til þyngingar að brotin hefðu verið alvarleg, samfelld og stigvaxandi og að hann hefði ekki látið af háttseminni þrátt fyrir afskipti lögreglu og nálgunarbann.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Guð og Jesús þurfa meira fjármagn
Innlent

Guð og Jesús þurfa meira fjármagn

Amen fyrir því
Strætó, hjól og rafskútur freista bílstjóra borgarinnar
Innlent

Strætó, hjól og rafskútur freista bílstjóra borgarinnar

Hálfsannleikur og ýkjur Hildar
Slúður

Hálfsannleikur og ýkjur Hildar

Ein dýrasta gata landsins heldur áfram að standa undir nafni
Myndir
Fólk

Ein dýrasta gata landsins heldur áfram að standa undir nafni

„Innbrotsþjófurinn“ reyndist vera í vinnunni
Innlent

„Innbrotsþjófurinn“ reyndist vera í vinnunni

Kona fær nálgunarbann samþykkt eftir ofbeldi sem sást á eftirlitsmyndavél
Myndband
Heimur

Kona fær nálgunarbann samþykkt eftir ofbeldi sem sást á eftirlitsmyndavél

Osló bannar snjallgleraugu í skólum
Heimur

Osló bannar snjallgleraugu í skólum

Stal bíl við Skeifuna og setti röng skráningarmerki á hann
Innlent

Stal bíl við Skeifuna og setti röng skráningarmerki á hann

Eygló lenti í leiðinlegu atviki með hráefni úr Costco
Innlent

Eygló lenti í leiðinlegu atviki með hráefni úr Costco

Innlent

Guð og Jesús þurfa meira fjármagn
Innlent

Guð og Jesús þurfa meira fjármagn

Amen fyrir því
Stal bíl við Skeifuna og setti röng skráningarmerki á hann
Innlent

Stal bíl við Skeifuna og setti röng skráningarmerki á hann

Lagði álög og bölvun á fyrrverandi sambýliskonu
Innlent

Lagði álög og bölvun á fyrrverandi sambýliskonu

Strætó, hjól og rafskútur freista bílstjóra borgarinnar
Innlent

Strætó, hjól og rafskútur freista bílstjóra borgarinnar

„Innbrotsþjófurinn“ reyndist vera í vinnunni
Innlent

„Innbrotsþjófurinn“ reyndist vera í vinnunni

Loka auglýsingu