1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

6
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

7
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

8
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

9
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

10
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

Til baka

Hörður Torfa kveður Megas

„Frelsið hefur sitt verð“

Megas-1
MegasHörður minnist Megasar

Söngvaskáldið Hörður Torfason minnist vinar síns, Magnúsar Þórs Jónssonar, Megasar, í áhrifamikilli færslu sem hann birti á Facebook í gær. Þar rifjar hann upp áratugalanga vináttu þeirra og segir að þeir hafi báðir þurft að takast á við þá hlið frægðarinnar sem fæli í sér höfnun, fordóma og einmanaleika.

Í færslu sinni byrjar Hörður á persónulegum orðum til Megasar.

„Ef allt hefði farið eins og stefnt var að sætum við saman að spjalli nákvæmlega núna. En þú kvaddir í gærkvöldi og kemur ekki aftur.“

Hann segir þá hafa verið fermingarbræður, jafnaldra og vini um áratugaskeið og að þeir hafi deilt reynslu af því að verða áberandi í samfélaginu.

„Við lærðum fljótlega að frægðin er tvíbent. Hún gat opnað dyr sem áður voru lokaðar, en hún gat líka gert mann berskjaldaðan.“

Hörður segir að þegar fólk verði sýnilegt sé það ekki lengur aðeins dæmt fyrir verk sín heldur einnig fyrir líf sitt, skoðanir og ákvarðanir.

„Það var reynsla sem við báðir þurftum að horfast í augu við - hvor með sínum hætti. Enda varð hún uppspretta nokkurra góðra samtala í gegnum tíðina.“

Í færslunni rifjar hann upp að þeir hafi báðir ákveðið að standa með sjálfum sér fremur en að fela sig.

„Þegar við ákváðum að fela okkur ekki á bak við uppgerðina, heldur standa með sjálfum okkur og sannfæringu okkar, vissum við að einhverjir myndu snúa baki við okkur. En jafnvel þú gast ekki vitað hversu djúp sú höfnun yrði.“

Hann segir þá hafa komist að þeirri niðurstöðu að auðveldara hefði ef til vill verið að þegja og falla inn í hópinn, en það hefði ekki verið heiðarlegt.

„Frelsið hefur sitt verð. Stundum er það einmanaleiki. Stundum missir maður vinnu, vini eða öryggistilfinningu. En þegar maður hefur einu sinni ákveðið að lifa í samræmi við eigin sannfæringu verður erfitt að snúa aftur til þess sem maður veit að er ósatt.“

Undir lok færslunnar þakkar Hörður vini sínum fyrir samfylgdina og þau sjónarhorn sem hann færði fólki.

„Kæri Magnús Þór, Megas. Takk fyrir samfylgdina, vináttuna, öll samtölin og öll þau óvæntu sjónarhorn sem þú færðir okkur sem fengum að fylgja þér.“

Að lokum sendir hann fjölskyldu og aðstandendum Megasar innilegar samúðarkveðjur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan rannsakar dánarorsök og reynir að bera kennsl á manninn.
Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg
Innlent

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna
Innlent

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum
Myndir
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum
Myndir
Innlent

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios
Pólitík

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Síðasta kjörtímabil Ingu
Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu

Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Dagný Ósk Vestmann er látin
Minning

Dagný Ósk Vestmann er látin

Flosi Kristinsson er fallinn frá
Minning

Flosi Kristinsson er fallinn frá

Sigurður Hafstein er fallinn frá
Minning

Sigurður Hafstein er fallinn frá

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá
Minning

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá

Loka auglýsingu