Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Ísraelsher drap sex sjúkraflutningamenn í loftárásum í suðurhluta Líbanon

Myndband náðist af annarri árásinni

Sjúkraliðarnir
Sjúkra­lið­arnir Sekúndu síðar voru þeir allir. Mynd: Skjáskot

Sex líbanskir sjúkra­flutninga­menn létust í tveimur loft­árásum Ísraels á suður­hluta Líbanons á innan við sólar­hring, samkvæmt heilbrigðis­ráðuneyti Líbanons sem fordæmdi árásirnar og sagði þær brjóta gegn alþjóða­lögum.

Samkvæmt ráðuneytinu féllu fjórir sjúkra­flutninga­menn úr Islamic Health Association í loftárás á bæinn Hanaway aðfara­nótt föstudags.

Síðar á föstudags­morgun létust tveir sjúkra­flutninga­menn til viðbótar úr Al-Rissala Scouts Association í árás á Deir Qanoun En-Nahr.

Ísraelsher sagði árásina í Hanaway hafa beinst að innviðum Hezbollah þar sem liðsmenn samtak­anna hefðu verið staddir.

Varðandi árásina í Deir Qanoun En-Nahr sagði herinn að tveir liðsmenn Hezbollah á mótor­hjólum hefðu verið skotmörk árásarinnar.

Í báðum tilvikum sagðist herinn rannsaka fregnir um að óbreyttir borgarar sem ekki hefðu verið skotmörk hefðu einnig særst eða látist. Þá sagði herinn að íbúum hefði verið skipað að yfirgefa svæðin til að draga úr hættu á mannfalli meðal almennra borgara.

Heilbrigðis­ráðuneyti Líbanons birti myndskeið sem það sagði sýna atburðinn í Deir Qanoun En-Nahr. Þar sjást tveir menn í gulum vestum hlúa að særðum einstaklingi við vegkant þegar sjúkra­bíll nálgast. Skömmu síðar sést ljós­blossi og heyrist sprenging áður en mennirnir liggja hreyfingar­lausir á jörðinni.

Frétta­stofan Reuters sagðist hafa staðfest stað­setningu mynd­bandsins út frá byggingum, trjám og vegakerfi á svæðinu.

Samkvæmt heilbrigðis­ráðuneytinu létust alls sex manns í árásinni á Deir Qanoun En-Nahr, þar á meðal sjúkra­flutninga­mennirnir tveir og sýrlenskt barn.

Bærinn varð einnig fyrir loftárás fyrr í vikunni þar sem 14 manns létust, í mann­skæðustu stöku árás síðan brothætt vopnahlé var kynnt í síðasta mánuði.

Yfir 3.100 manns hafa fallið í Líbanon síðan 2. mars þegar Hezbollah hóf eldflauga­árásir á Ísrael í upphafi nýrra átaka ríkjanna.

Samkvæmt tölum frá heilbrigðis­ráðuneytinu eru meðal hinna látnu 123 sjúkra­flutninga­menn, yfir 210 börn og nærri 300 konur.

Alþjóðleg mannúðarlög veita viðbragðs­aðilum, heilbrigðis­starfsfólki og borgara­legum innviðum sérstaka vernd í stríðs­átökum.

Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnunin segir nokkur sjúkrahús í suður­hluta Líbanons hafa skemmst eða lagst af vegna árása Ísraela.

Á fimmtudag varð loftárás nærri Tebnine-sjúkra­hússins til þess að allar þrjár hæðir byggingarinnar skemmdust, þar á meðal bráða­móttaka, gjörgæsla, skurð­deild og sjúkra­bílar sem stóðu fyrir utan sjúkra­húsið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs