1
Minning

Flosi Kristinsson er fallinn frá

2
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

3
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir að losa þig við úr geymslunni

4
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

5
Innlent

Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu

6
Fólk

Selja höll í Garðabæ með þreföldum bílskúr

7
Innlent

Íslandsferð Hönnuh tók óvænta stefnu þegar hún var handtekin

8
Heimur

Borgaði 30 dali fyrir málverk sem reyndist gullnáma

9
Innlent

Reyndi að lauma sér til Íslands með fölsuðu skilríki

10
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Til baka

Konum sparkað úr Eiffel-turninum vegna trúarleiðtoga

Reiði í Frakklandi

eiffel-tower-paris-france
Skandall í Eiffel-turninum
Mynd: Tourist site city Paris

Ákvörðun stjórnenda Eiffel-turnsins í París, um að verða við ósk indversks trúfélags og halda kvenkyns starfsmönnum til hlés, hefur vakið hörð viðbrögð og mikla reiði í Frakklandi. Konunum var gert að vera eins lítið áberandi og mögulegt var á meðan leiðtogi félagsins heimsótti turninn á laugardag. Vegna málsins var turninum lokað í gær á meðan stjórnendur funduðu með starfsfólki.

Heimsókn Mahant Swami Maharaj, leiðtoga hindúatrúfélagsins BAPS (Bochasanwasi Akshar Purushottam Swaminarayan Sanstha), dró dilk á eftir sér þegar í ljós kom að stjórnendur mannvirkisins höfðu skipað kvenkyns starfsmönnum að yfirgefa vinnusvæði sín eða fara afsíðis. Í sumum tilfellum voru karlmenn fengnir til að ganga í störf kvennanna á meðan heimsókninni stóð, svo trúarleiðtoginn þyrfti sem minnst að umgangast konur.

Harðar deilur og lokun turnsins

Starfsmannafélag Eiffel-turnsins fordæmdi ákvörðunina harðlega og lýsti yfir hneykslun á því að konum hefði verið vikið til hliðar og þær gerðar ósýnilegar vegna kyns síns. Mótmæli starfsfólks leiddu til þess að turninum var lokað í heilan dag á meðan stjórnendur ræddu við starfsfólk, en hann var opnaður á nýjan leik í morgun.

Franskir stjórnmálamenn hafa stigið fram og fordæmt atvikið einum rómi. Aurore Berge, jafnréttisráðherra Frakklands, sagði málið forkastanlegt og benti á að í Frakklandi væri engin hefð fyrir því að skipa konum að vera ósýnilegar.

Biðjast afsökunar á mistökunum

Trúfélagið BAPS, sem hefur náin tengsl við Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, hefur sent frá sér afsökunarbeiðni vegna þeirra óþæginda og sársauka sem málið hefur valdið.

Stjórnendur Eiffel-turnsins hafa sömuleiðis beðist opinberlega afsökunar á atvikinu og viðurkenna að það hafi verið alvarleg mistök að verða við beiðni trúfélagsins.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu