Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Lögmaður Lindsay Clancy vill að Trump náði hana

Clancy hefur verið ákærð fyrir þrjú morð vegna dauða barna sinna

Lindsay Clancy með börnum og eiginmanni
Lindsay Clancy með börnum og eig­in­manni Mynd: Facebook

Lögmaður bandarísku konunnar Lindsay Clancy hefur opinber­lega hvatt Donald Trump, forseta Banda­ríkjanna, til að íhuga að náða skjólstæðing sinn. Clancy er ákærð fyrir að hafa orðið þremur ungum börnum sínum að bana á heimili fjöl­skyldunnar í Massachusetts.

Kevin Reddington, lögmaður Clancy, lét þessi orð falla í viðtali við George Stephanopoulos í þættinum Good Morning America á þriðjudag. Réttar­höldum yfir Clancy lauk í síðustu viku án niður­stöðu þar sem kviðdómur náði ekki samhljóða niður­stöðu. Dómari lýsti því yfir að réttar­höldin væru ógild.

Clancy hefur verið ákærð fyrir þrjú morð vegna dauða barna sinna. Saksókn­arar halda því fram að hún hafi kyrkt börnin.

Reddington beindi orðum sínum sérstak­lega að Trump í viðtalinu og sagðist vonast til þess að forsetinn tæki mál Clancy til skoðunar með hliðsjón af því sem hún hefði gengið í gegnum.

Slík náðun af hálfu forsetans væri þó ekki möguleg samkvæmt bandarískum lögum. Náðunar­vald forseta Banda­ríkjanna nær til alríkis­brota en mál Clancy er rekið samkvæmt lögum Massachusetts-ríkis.

Clancy neitar sök á grund­velli geðveiki. Vörn hennar hefur haldið því fram að hún hafi glímt við alvarlegt geðrof eftir barnsburð auk geðhvarfa­sýki þegar börnin létust.

Saksókn­arar hafa hafnað þeirri málsvörn og segja Clancy hafa verið meðvituð um gjörðir sínar. Meðal annars hefur verið bent á að hún hafi sent eiginmann sinn í erindi skömmu áður en börnin létust.

Trump tjáði sig um málið á föstudag og sagðist hafa fylgst með réttar­höldunum. Hann lýsti málinu sem hræðilegum harmleik og sagði stöðuna afar sorglega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs