1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

5
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

6
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

7
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

8
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

9
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

10
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Til baka

Martin Short opnar sig um sjálfsvíg dóttur sinnar

„Pabbi, leyfðu mér að fara“

Martin Short
Martin ShortHeimildarmynd um Martin Short birtist von bráðar á Netflix
Mynd: LISA O'CONNOR / AFP

Martin Short hefur í fyrsta sinn tjáð sig opinberlega um andlát dóttur sinnar Katherine Short, sem lést í febrúar síðastliðnum, 42 ára að aldri, eftir sjálfsvíg.

Í viðtali við CBS sagði hinn ástsæli leikari að fjölskyldan hefði gengið í gegnum mikla sorg.

„Þetta hefur verið martröð fyrir fjölskylduna,“ sagði hann í samtali við Tracy Smith í þættinum CBS Sunday Morning.

Martin sagði að dóttir hans hefði glímt lengi við alvarleg geðræn veikindi.

„Dóttir mín barðist lengi við mjög alvarleg geðræn veikindi,“ sagði hinn 76 ára gamli leikari. „Persónuleikaröskun af jaðargerð og fleira, og hún gerði sitt besta þar til hún gat ekki meira.“ Bætti hann við:

Hann tengdi einnig reynslu dóttur sinnar við andlát eiginkonu sinnar, Nancy Dolman, sem lést úr krabbameini árið 2010 eftir þrjátíu ára hjónaband þeirra.

„Síðustu orð Nan til mín voru: „Martin, leyfðu mér að fara“,“ sagði hann og bætti við um dóttur sína: „Og hún var bara að segja: „Pabbi, leyfðu mér að fara“.“

Bætti hann við:

„En skilningurinn á því að geðsjúkdómar og krabbamein, eins og hjá eiginkonu minni, eru hvort tveggja sjúkdómar og stundum eru sjúkdómar banvænir.“

Martin sagði að sorgin hefði verið gríðarleg fyrir hann og syni hans, Oliver Short og Henry Short.

Only Murders in the Building-stjarnan rifjaði upp að daginn sem dóttir hans lést hafi hann efast um tilgang lífsins.

„Ég var að fara inn í bílinn þennan dag og hugsaði: „Ég er 75 ára. Af hverju er ég eiginlega að halda áfram? Hver er tilgangurinn?“.“

En þegar hann kom heim til sonar síns í Newport Beach hafi barnabörn hans hjálpað honum að finna aftur tilgang.

„Þessir tveir afastrákar mínir, fimm og fjögurra ára, stukku á mig og sögðu: „Leikum risa!“ Og allt í einu hugsaði ég: „Þess vegna. Þess vegna“.“

Sorg Martin Short og seigla hans verða meðal annars til umfjöllunar í væntanlegri Netflix-heimildarmynd um líf hans og feril sem ber heitið Marty, Life is Short.

Í kynningarstiklu fyrir heimildarmyndina segir Andrea Martin, leikkona og gömul vinkona hans, við myndavélarnar um Martin: „Að vera pabbi er honum jafn eðlislægt og að draga andann.“

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg

Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu