1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

7
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

8
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

9
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

10
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Til baka

Milljarðamæringur fannst látinn eftir harkalegt rifrildi við eiginkonuna

„Við höfðum verið ástfangin síðan í menntaskóla“

Joshua og frú
Jacqueline og JoshuaHjónin á góðri stundu
Mynd: Instagram

Joshua Pack, 51 árs milljónamæringur og eigandi fjárfestingafyrirtækis sem stendur meðal annars að baki verslunarkeðjunum Majestic Wine og Poundstretcher, svipti sig lífi eftir harkalegt rifrildi við eiginkonu sína, samkvæmt því sem fram kom við rannsókn dauðsfalls hans.

Pack fannst látinn af ræstingarfólki í læstu svefnherbergi á efstu hæð í leiguhöll hjónanna í St John's Wood í Lundúnum aðeins nokkrum klukkustundum eftir rifrildið við eiginkonu sína, Jacqueline Pack.

Hjónin voru nýflutt til Bretlands frá Bandaríkjunum vegna stækkunar fjárfestingarisans Fortress Investment Group sem er metinn á um 50 milljarða dala.

Í skriflegri yfirlýsingu til rannsakenda á dánarorsökunum greindi Pack frá því að hún og eiginmaður hennar til 28 ára hefðu „rifist alla nóttina“ fyrir andlát hans eftir að hafa „verið að drekka með hléum allan daginn“.

„Við höfðum verið ástfangin síðan í menntaskóla. Josh var trúrækinn kaþóliki sem vann gríðarlega mikið til að styðja mig og börnin okkar, sem voru það mikilvægasta í lífi hans. En það var togstreita eins og í öllum löngum hjónaböndum,“ sagði hún.

Að sögn eiginkonunnar hófst rifrildið þegar þau gengu heim eftir að Joshua komst að því í gegnum aðstoðarmann sinn að vandamál hefðu komið upp með flugmiða hans til Bandaríkjanna. Hann hafði reynt að flýta ferð sinni svo hann gæti ferðast með eiginkonu sinni.

Rifrildið magnaðist þegar heim var komið og sagði Jacqueline að Joshua hefði kastað síma hennar þvert yfir herbergið og síðan byrjað að berja sjálfan sig með honum.

Síðar hafi hann farið að skáp, tekið upp hníf og rétt henni hann með orðunum: „Stingdu honum í mig.“

Samkvæmt framburði hennar hótuðu þau bæði að svipta sig lífi í rifrildinu, en hún sagði slíkt hafa gerst áður í deilum þeirra.

„Ég meinti það aldrei og ég trúði því heldur aldrei að Josh meinti það,“ sagði hún.

Joshua Pack fannst látinn af starfsfólki heimilisins um klukkan þrjú daginn eftir.

Við rannsókn dauðsfallsins komst dánardómari við dánardómstólinn Inner West London að þeirri niðurstöðu að um slysadauða hefði verið að ræða.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg

Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu