1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

8
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Til baka

Mygla fannst í húsnæði Kristnesspítala

Stjórnvöld hvött til að bjarga endurhæfingunni

Kristneshaeli-sumar-2016-1-1200x675
Mynd: Kristnesspítali

Mygla fannst fyrr á árinu í húsnæði Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit. Ákveðið hefur verið að færa alla starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) af staðnum og til Akureyrar um óákveðinn tíma, eins og akureyri.net greindi frá á dögunum. SAk hefur verið þar með endurhæfingarþjónustu en eftir ítarlega skoðun og greiningu á húsnæðinu fékkst sú niðurstaða að það væri óhæft fyrir heilbrigðisþjónustu.

Starfshópur sem heilbrigðisráðuneytið skipaði til að vinna að framtíðarsýn Kristnesspítala skoðaði aðstæður á staðnum og er óráðið hver næstu skref verða miðað við svar ráðuneytisins við fyrirspurn akureyri.net: „Engar framkvæmdir standa yfir á Kristnesspítala um þessar mundir. Verulegra úrbóta er þörf til að koma húsnæðinu í fullnægjandi og heilnæmt ástand og er ekki talið tímabært að ráðast í slíkar framkvæmdir fyrr en niðurstöður liggja fyrir um framtíðarnýtingu húsnæðisins og framtíðarskipan starfseminnar.“

Unnið er að því að koma dag- og göngudeildarhluta þjónustunnar í Kristnesi fyrir í nýju 815 fermetra leiguhúsnæði á Akureyri. Starfsemin þar muni hefjast í september en það á að vera hægt að veita allt að tuttugu skjólstæðingum þjónustu á dag- og göngudeild. Auk þess verði sex legurými fyrir endurhæfingarsjúklinga tekin í notkun á skurðlækningadeild SAk í byrjun ágúst.

Kristnesspítali, eða Heilsuhæli Norðurlands að Kristnesi eins og hann var fyrst kallaður, var tekinn í notkun 1927. Hann reyndist mikilvæg brjóstvörn í baráttunni við hinn hvíta dauða, berklaveikina.

Í mars 1985 samþykkti stjórnarnefnd Ríkisspítalanna nýja stefnumörkun og að á neðri hæð spítalans yrði rekin endurhæfingardeild fyrir lyflæknis-, bæklunar- og gigtarsjúklinga. Þá var lögð áhersla á hvíldarinnlagnir í stað hjúkrunarsjúklinga til dagsins í dag.

Á Kristnesspítala hefur verið starfrækt sjö daga deild og fimm daga eining á þriðju og fjórðu hæð auk dagspítalaþjónustu innan öldrunar- og endurhæfingalækninga. Þjónustan er þverfagleg og lögð er áhersla á að meta heilsufar og færni sjúklinga, sjálfbjargargetu og þörf fyrir hjálpartæki. Farið er í heimilsathuganir og hugað að þörf fyrir þjónustu eftir útskrift. Áhersla er á heilbrigðishvatningu, markmiðssetningu, meðferð, fræðslu og leiðsögn til sjúklinga og aðstandenda. Haldnir eru fjölskyldufundir og markvisst unnið með þjónustuaðilum utan SAk. Kjarni starfsins er þverfagleg teymisvinna sem byggir á samvinnu sjúklings, fjölskyldu og meðferðaraðila. Á Kristnesspítala fer fram einstaklingsmiðuð þjálfun í tækjasal, starfræktir eru göngu- og vatnsleikfimihópar, hjólahópar auk léttleikfimi og háls- og herðaleikfimi. Boðið er upp á hópmeðferð fyrir fólk með langvinna verki, ofþyngd, lungnasjúkdóma og í kjölfar krabbameinsmeðferða þar sem áhersla er á heildstæða nálgun og fræðslu. Þverfaglegt ökumatsteymi er starfrækt á Kristnesspítala auk göngudeildar endurhæfingalækninga.

Hælið - setur um sögu berklanna

María Pálsdóttir
Mynd: Menningarfélag Akureyrar

María Pálsdóttir, sem kom á fót og rekur Hælið – setur um sögu berklanna á Kristnesi, setti af stað undirskriftarsöfnun í maí þar sem stjórnvöld eru hvött til að bjarga endurhæfingunni á Kristnesi, eins og það er orðað. Hægt verður að skrifa undir listann á vefnum út þennan mánuð.

Undirskriftalistinn nefnist Björgum endurhæfingunni á Kristnesi og er textinn svohljóðandi:

„Við skorum á stjórnvöld að bregðast við án tafar og tryggja fjármagn til nauðsynlegs viðhalds og uppbyggingar á Kristnesi svo ekki þurfi að draga úr eða leggja niður starfsemina þar sem hún er samfélaginu nauðsynleg.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal
Landið

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Loka auglýsingu