
Tawnia McGeehan, sem er talin hafa myrt 11 ára dóttur sína, Addi Smith, áður en hún svipti sig lífi í Las Vegas í febrúar síðastliðnum, var með nokkur lyf í líkamanum þegar hún lést. Þetta kemur fram í krufningarskýrslu réttarmeinafræðings í Clark-sýslu sem fjölmiðar í Bandaríknum hafa undir höndum.
Mæðgurnar fundust látnar á hótelherbergi á Rio-hótelinu í Las Vegas, þar sem þær höfðu dvalið vegna klappstýrukeppni. Samkvæmt skýrslunni létust þær báðar af völdum skotsára á höfði.
Fyrrverandi eiginmaður McGeehan hafði óskað eftir velferðareftirliti lögreglu eftir að honum tókst ekki að ná sambandi við mæðgurnar. Starfsfólk hótelsins fór að herberginu og fann þar miða fyrir utan dyrnar þar sem varað var við því að fara inn og beðið um að hringt yrði í neyðarlínuna. Á miðanum kom jafnframt fram að tvö lík væru inni í herberginu og að annað þeirra væri 11 ára barn.
Mæðgurnar fundust í rúmi inni á herberginu. Lögregla fann þar tvö kveðjubréf og kom fram í öðru þeirra að Addi hefði verið gefið mikið magn lyfja áður en hún lést.
Við rannsókn herbergisins fundust fjölmargar lyfjaflöskur sem tilheyrðu McGeehan, opnar umbúðir með THC-gúmmíi og svefnlyf sem fást án lyfseðils. Skothylki fundust á gólfinu og Ruger-skammbyssa á vettvangi.
Eiturefnamælingar sýndu að McGeehan var með lyf í líkamanum sem meðal annars eru notuð við þunglyndi, svefnleysi og kvíða.
Í skýrslunni kemur fram að McGeehan hafi átt við alvarlegt þunglyndi að stríða og áður fengið ávísað þunglyndislyfjum. Aðstandendur hafi vitað af fyrri sjálfsvígshugsunum hennar en ekki haft vitneskju um fyrri sjálfsvígstilraunir.
Lögreglumaður skráði jafnframt að McGeehan hefði að sögn glímt við alvarlegt þunglyndi vegna sambandsslita og yfirstandandi forræðisdeilu við fyrrverandi eiginmann sinn.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg
Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.
