1
Innlent

Breyta reglum um bílpróf

2
Heimur

Unglingsstúlka hafði betur í bardaga gegn árásarmanni

3
Heimur

Dómari gripinn að stunda hávært kynlíf í dómshúsi

4
Heimur

Króatar takmarka drykkju ferðamanna

5
Innlent

Elísabet hrækti í andlit lögreglumanns

6
Innlent

Djammari handtekinn í miðbænum

7
Peningar

Icelandair tapaði milljarði en Bogi fékk bónusgreiðslu

8
Fólk

Vel staðsett einbýlishús í Reykjavík til sölu

9
Fólk

Kvikmyndagerðarmaður og grunnskólakennari selur fallega íbúð

10
Innlent

Ók á hús í Mosfellsbæ

Til baka

Óskar eftir frekari rannsókn á dularfullu andláti systur sinnar

„Hún fannst á grúfu í svefnherberginu sínu, vafin inn í rúmteppi“

Halldór Gylfason
Halldór GylfasonLeikarinn vill að lögreglan rannsaki aftur andlát systur hans
Mynd: Borgarleikhúsið

Leikarinn Halldór Gylfason, sem nú leikur í söngleiknum Moulin Rouge! í Borgarleikhúsinu, segist enn í dag eiga erfitt með að sætta sig við dularfullt andlát elstu systur sinnar, Guðbjargar, sem lést árið 2015, aðeins sextug að aldri.

Í viðtali í þættinum Segðu mér á Rás 1 sagði Halldór að systir hans hefði verið einstök og glaðlynd manneskja sem allir hefðu elskað. „Hún var dásamleg manneskja og ógeðslega skemmtileg,“ segir hann.

Guðbjörg bjó á Eyrarbakka síðustu æviárin og glímdi, að sögn Halldórs, við vanlíðan og drykkju. „Hún hafði ekki alveg höndlað hamingjuna síðustu árin,“ segir hann.

Dó við dularfullar aðstæður

Halldór lýsir því að andlátið hafi borið að með óútskýrðum hætti. „Hún fannst á grúfu í svefnherberginu sínu, vafin inn í rúmteppi. Hún hafði drukkið og tekið einhver lyf,“ segir hann og bætir við að hún hafi einnig verið komin með drep í hjartað.

Segir hann að það hafi greinilega verið önnur manneskja með henni kvöldið áður. „Það er alveg klárt mál og eitthvað gengið á, augljóslega,“ segir Halldór. Hann bendir á að líkblettir hafi fundist á bakinu, en að lík hennar hafi greinilega verið snúið við áður en hún fannst.

„Þannig að það er eitthvað skrítið í gangi þarna en lögreglan afgreiðir þetta sem eitthvað óútskýrt. Þetta er mjög skrítið og óþægilegt,“ segir Halldór.

Krefjast nýrrar rannsóknar

Halldór segist enn velta málinu fyrir sér og að hann og dóttir Guðbjargar hafi nýlega sent bréf til lögreglu þar sem þau óska eftir að andlátið verði rannsakað nánar.

Halldór segir þau vilja fá svör við spurningum sínum, „því þetta er mjög óþægilegt.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Guðmundur sló 11 ára dreng í andlitið
Innlent

Guðmundur sló 11 ára dreng í andlitið

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til þess að atlaga hans hefði beinst að barni.
Icelandair tapaði milljarði en Bogi fékk bónusgreiðslu
Peningar

Icelandair tapaði milljarði en Bogi fékk bónusgreiðslu

„Að fá ríkisborgararétt eru forréttindi“
Innlent

„Að fá ríkisborgararétt eru forréttindi“

Kvikmyndagerðarmaður og grunnskólakennari selur fallega íbúð
Myndir
Fólk

Kvikmyndagerðarmaður og grunnskólakennari selur fallega íbúð

Djammari handtekinn í miðbænum
Innlent

Djammari handtekinn í miðbænum

Dómari gripinn að stunda hávært kynlíf í dómshúsi
Heimur

Dómari gripinn að stunda hávært kynlíf í dómshúsi

Unglingsstúlka hafði betur í bardaga gegn árásarmanni
Myndband
Heimur

Unglingsstúlka hafði betur í bardaga gegn árásarmanni

Disney-stjórnandi dæmdur í fangelsi í Rússlandi
Heimur

Disney-stjórnandi dæmdur í fangelsi í Rússlandi

Króatar takmarka drykkju ferðamanna
Heimur

Króatar takmarka drykkju ferðamanna

Elísabet hrækti í andlit lögreglumanns
Innlent

Elísabet hrækti í andlit lögreglumanns

Innlent

Guðmundur sló 11 ára dreng í andlitið
Innlent

Guðmundur sló 11 ára dreng í andlitið

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til þess að atlaga hans hefði beinst að barni.
„Að fá ríkisborgararétt eru forréttindi“
Innlent

„Að fá ríkisborgararétt eru forréttindi“

Djammari handtekinn í miðbænum
Innlent

Djammari handtekinn í miðbænum

Loka auglýsingu