1
Fólk

Leyndarmál langlífis leynist í fimm hversdagslegum matvælum

2
Innlent

Páll sakar Helga um smekkleysi eftir orðaskipti um Karl Th.

3
Fólk

Ráðgáta Alzheimer mögulega leyst

4
Minning

Rannveig Pálsdóttir er fallin frá

5
Fólk

Svarta krúttbomban á Selfossi kostar sitt

6
Fólk

Gamall sjarmur við sjóinn til sölu

7
Innlent

Ungmenni leitaði á bráðamóttöku

8
Innlent

Tveggja pilta saknað frá heimilum sínum í Borgarnesi

9
Innlent

Karlmaður játar innbrot í Stjörnugrís á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ

10
Innlent

Ættarnafn ömmunnar varð að langri deilu við stjórnvöld

Til baka

Páll sakar Helga um smekkleysi eftir orðaskipti um Karl Th.

„Það hefði verið ‚flott‘ að sýna þetta meðan maðurinn var á lífi“

Páll Helgi
Páll og Helgi fyrir framan RÚV
Mynd: Samsett

Sagnfræðingurinn og varaborgarfulltrúinn Stefán Pálsson hefur lagt til að RÚV geri útvarpsþættina Orð skulu standa, sem Karl Th. Birgisson hafði umsjón með, aðgengilega á netinu til minningar um Karl en greint var frá andláti hans í fjölmiðlum í gær.

Stefán setti hugmyndina fram á Facebook og sagði þættina geta átt vel við nú þegar margir leiti sér að hlaðvörpum til hlustunar.

Brynjólfur Þór Guðmundsson, blaðamaður RÚV, sagði í umræðum við færsluna að honum skildist að málið væri til skoðunar og gæti orðið að veruleika innan skamms. Stór hluti efnis þáttanna væri tímalaus, þótt óljóst væri hvernig réttindamálum vegna þeirra væri háttað.

Stefán sagði jafnframt að hann teldi vanta skýrari stefnu hjá RÚV um miðlun eldra efnis. Velti hann því meðal annars upp hvort þróa mætti vef RÚV í átt að Tímaritavefnum og gera þar gamalt efni aðgengilegt í stórum stíl, eftir því sem réttindi leyfðu.

Brynjólfur sagði „stóra drauminn“ vera að koma sem mestu efni á vefinn. Um væri að ræða stórt og kostnaðarsamt verkefni en mikið af eldra efni hefði á síðustu árum verið fært yfir á stafrænt form.

Umræðan varð síðar hvassari þegar Páll Baldvinsson, fyrrverandi ritstjóri og blaðamaður sem meðal annars hefur starfað fyrir RÚV, vakti athygli á höfundarréttarmálum. Hann velti því upp hvort RÚV hefði á sínum tíma keypt allan rétt að þáttunum eða hvort samningar hefðu aðeins gert ráð fyrir tiltekinni notkun í takmarkaðan tíma.

Helgi Seljan, fréttamaður RÚV, svaraði Páli með kaldhæðnum hætti og sagði tilefnið „aldeilis flott til að tuða yfir endurflutningi á efni og aðgengileika þess, sem gerist auðvitað gratís“.

Páll brást við og sagði orðið „flott“ vart eiga við. „Það hefði verið ‚flott‘ að sýna þetta meðan maðurinn var á lífi,“ skrifaði hann og lagði áherslu á að endurflutningur efnis væri háður réttindum.

Helgi skýrði þá að um kaldhæðni hefði verið að ræða og sagðist fremur hafa verið að „hnýta í þennan status“. Hann benti jafnframt á að ekki væri langt síðan þættir Karls um Frændur okkar í Persíu hefðu verið endurfluttir og gerðir aðgengilegir.

„Það verður auk þess og er þegar búið að leggja grunn að því að birta meira af efninu hans,“ skrifaði Helgi.

Páll svaraði því að lokum með beittum orðum og sagði: „Svona af því að maðurinn var rétt orðinn kaldur. Smekkvís strákur Helgi.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Óður KR-ingur gekk berserksgang
Innlent

Óður KR-ingur gekk berserksgang

Var með hníf í bardaga
Fimm mistök sem margir gera í sturtunni
Fólk

Fimm mistök sem margir gera í sturtunni

Eyrún Anna og Olga Helena stíga til hliðar eftir tíu ár
Peningar

Eyrún Anna og Olga Helena stíga til hliðar eftir tíu ár

Kennaravinkonur játuðu kynferðisbrot gegn börnum
Heimur

Kennaravinkonur játuðu kynferðisbrot gegn börnum

Dóri DNA skaut Eddu Falak í hnakkann
Fólk

Dóri DNA skaut Eddu Falak í hnakkann

Íslenska vegabréfið fellur í neðsta sæti Schengen-ríkja
Innlent

Íslenska vegabréfið fellur í neðsta sæti Schengen-ríkja

Karlmaður játar innbrot í Stjörnugrís á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ
Innlent

Karlmaður játar innbrot í Stjörnugrís á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ

Slæm tannheilsa tengd við auknar líkur á vitglöpum
Fólk

Slæm tannheilsa tengd við auknar líkur á vitglöpum

Boðar Icelandair og flugvirkja á fund klukkan 12
Innlent

Boðar Icelandair og flugvirkja á fund klukkan 12

„Þeim fannst ég svo ógeðsleg“
Fólk

„Þeim fannst ég svo ógeðsleg“

Níu ákærðir í sögulegu Straumsvíkurmáli
Innlent

Níu ákærðir í sögulegu Straumsvíkurmáli

Grunaður um að skipuleggja hryðjuverk gegn eigin samstarfsmönnum
Heimur

Grunaður um að skipuleggja hryðjuverk gegn eigin samstarfsmönnum

Gallabuxurnar fá annað tækifæri í Árbænum
Menning

Gallabuxurnar fá annað tækifæri í Árbænum

Innlent

Óður KR-ingur gekk berserksgang
Innlent

Óður KR-ingur gekk berserksgang

Var með hníf í bardaga
Umboðsmaður setur stórt spurningarmerki við hegðun Skattsins
Innlent

Umboðsmaður setur stórt spurningarmerki við hegðun Skattsins

Íslenska vegabréfið fellur í neðsta sæti Schengen-ríkja
Innlent

Íslenska vegabréfið fellur í neðsta sæti Schengen-ríkja

Karlmaður játar innbrot í Stjörnugrís á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ
Innlent

Karlmaður játar innbrot í Stjörnugrís á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ

Boðar Icelandair og flugvirkja á fund klukkan 12
Innlent

Boðar Icelandair og flugvirkja á fund klukkan 12

Níu ákærðir í sögulegu Straumsvíkurmáli
Innlent

Níu ákærðir í sögulegu Straumsvíkurmáli

Loka auglýsingu