1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

3
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

4
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

5
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

6
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

7
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

8
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

9
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

10
Innlent

Veðurskipti framundan

Til baka

Reykvíkingur tekinn með barnaníðsefni

Maðurinn játaði skýlaust sök

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið
Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Reykvíkingur hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu á barnaníðsefni, samkvæmt dómi sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Samkvæmt ákæru hafði Reykvíkingurinn í vörslum sínum sjö ljósmyndir og þrjú myndbönd sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Myndefnið fannst við húsleit á heimili hans í Reykjavík 6. maí 2024 og var geymt á tölvubúnaði og snjalltækjum sem lögregla lagði hald á.

Maðurinn játaði skýlaust sök samkvæmt ákæru og féllst jafnframt á að tiltekin tæki yrðu gerð upptæk. Með vísan til játningar hans og rannsóknargagna taldi dómurinn sannað að hann hefði gerst sekur um brotið.

Við ákvörðun refsingar var litið til þess að maðurinn hefur ekki áður sætt refsingu og að hann játaði brotið bæði hjá lögreglu og fyrir dómi. Á móti vó alvarleiki brotsins, enda var þaððar um að ræða vörslu myndefnis sem sýnir börn á kynferðislegan hátt.

Refsing hans var ákveðin 30 daga fangelsi en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Haldi hann almennt skilorð á því tímabili fellur refsingin niður.

Jafnframt voru HP-tölvuturn, Samsung-farsími og Samsung-spjaldtölva gerð upptæk. Þá var honum gert að greiða 353.400 krónur í málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“
Fólk

„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“

Valur Gunnarsson veltir fyrir sér klíkuskap landans
Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum
Heimur

Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans
Heimur

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu