Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Íslenskur karlmaður dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum

Hann játaði brot sín skýlaust, bæði við rannsókn málsins og fyrir dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í 60 daga skilorðs­bundið fangelsi fyrir að hafa haft í vörslum sínum rúmlega 100 ljós­myndir og myndbönd sem sýndu börn á kynferðis­legan og klám­fenginn hátt.

Málið var tekið fyrir í Héraðs­dómi Reykja­víkur. Maðurinn var ákærður af lögreglu­stjóranum á höfuð­borgar­svæðinu í maí vegna myndefnis sem fannst í iPhone-farsíma hans.

Samkvæmt ákæru hafði maðurinn alls 91 ljósmynd og tíu myndbönd í vörslum sínum á þáverandi heimili sínu í október 2024. Lögregla lagði hald á símann við húsleit.

Maðurinn játaði brot sín skýlaust, bæði við rannsókn málsins og fyrir dómi. Í niður­stöðu dómsins kemur fram að hann hafi ekki áður verið fundinn sekur um refsiverðan verknað.

Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til játningar mannsins og hreins saka­vottorðs. Á móti var litið til þess að um væri að ræða rúmlega 100 ljós­myndir og myndbönd af börnum og að hluti mynd­efnisins væri mjög grófur.

Maðurinn var dæmdur í 60 daga fangelsi en fullnustu refsingarinnar frestað í tvö ár, haldi hann almennt skilorð.

Þá var farsími hans gerður upptækur. Honum var jafnframt gert að greiða 530.100 krónur í þóknun skipaðs verjanda síns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag