
Fjölmiðlamaðurinn Kristján Kristjánsson hefur verið ráðinn einn umsjónarmanna Kastljóss og hefur störf 1. september. Kristján snýr þar með aftur í þáttinn eftir um tveggja áratuga fjarveru, en hann gegndi sama hlutverki í sex ár upp úr aldamótum.
RÚV greinir frá þessu.
Kristján hefur starfað við fjölmiðla í þrjá áratugi og var síðast umsjónarmaður Sprengisands á Bylgjunni í tíu ár. Hann hefur einnig starfað við samskiptamál hjá Landsbankanum, ríkisstjórninni og FL Group. Áður starfaði hann á fjölmiðlum, meðal annars á Viðskiptablaðinu.
Þá hefur Rúnar Pálmason verið ráðinn einn umsjónarmanna fréttaskýringaþáttarins Spegilsins og hefur störf í byrjun september. Rúnar starfaði um 15 ára skeið hjá Morgunblaðinu áður en hann hóf störf hjá Landsbankanum árið 2014, fyrst sem vefritstjóri og síðar upplýsingafulltrúi. Hann lét af störfum hjá bankanum í sumar.
